Skógræktarátak
Fimmtudaginn 01. nóvember 1990


     Fyrirspyrjandi (Birgir Ísl. Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Í málefnasamningi ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar segir í kafla um umhverfismál á bls. 10: ,,Samvinna hins opinbera, einstaklinga og frjálsra samtaka um skógrækt og landgræðslu verður efld. Ríkissjóður mun leggja fram fjármagn til sérstaks skógræktarátaks næstu þrjú árin og mun helmingur fjárins renna til skógræktarfélaga.``
    Ég held að óhætt sé að segja að þessar setningar í málefnasamningnum hafi valdið mikilli ánægju hjá skógræktaráhugafólki. Reyndar bar vel í veiði að fá slíkt loforð því að á vegum Skógræktarfélags Íslands var einmitt um þessar mundir, þegar þetta var skrifað, verið að undirbúa sérstakt skógræktarátak í tilefni af 60 ára afmæli Skógræktarfélagsins á þessu ári. Þetta skógræktarátak hefur farið fram með mjög myndarlegum hætti nú á þessu ári og verður vonandi upphafið að stærri átökum á þessu sviði. En þar sem nú eru tvö ár liðin af því tímabili sem sérstaklega var nefnt í málefnasamningnum og frv. til fjárlaga liggur fyrir varðandi þriðja árið hefur mér þótt rétt að bera fram svofellda fsp. til hæstv. landbrh.:
    ,,Hvernig hefur það loforð í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar að ríkissjóður muni leggja fram fjármagn til sérstaks skógræktarátaks næstu þrjú árin og helmingur fjárins renni til skógræktarfélaga verið efnt? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hversu mikið hefur runnið til skógræktarfélaga?``