Vegar- og brúargerð yfir Gilsfjörð
Fimmtudaginn 01. nóvember 1990


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :     Hæstv. forseti. Ég get verið sammála hv. flm. um það að þetta sé ein þarfasta framkvæmd sem bíður þess að ráðist verði í í okkar vegakerfi. Má um það margt segja og ég hygg að þeir sem kynna sér aðstæður þarna, keyra fyrir Gilsfjörð og kynna sér nokkuð hagi fólksins í byggðarlögunum báðum megin við, þurfi ekki langa dvöl á þessum slóðum né hitta marga að máli til þess að sannfærast um hvílíkt gífurlegt stórmál og hagsmunamál fyrir viðkomandi landsvæði þessar samgöngubætur eru.
    Ég tel líka skynsamlegt og til fyrirmyndar, eins og við mátti búast af hálfu hv. flm., að hér er ekki lagt til að rokið verði til strax á morgun og framkvæmdir hafnar af fullum krafti heldur horfst í augu við það með raunsæjum hætti að þetta verkefni verður auðvitað að koma með einhverjum hætti inn í framkvæmdaröðina þar sem viðráðanlegt er. Ég tek það fram að ég teldi sjálfur mjög æskilegt að koma hlutum þannig fyrir að þessi framkvæmd kæmi í sem beinustu framhaldi af stórframkvæmdum í Dýrafirði og öðrum meiri háttar framkvæmdum sem nú eru í gangi. Hér er á ferðinni brúargerð og uppfylling yfir fjörð af því tagi sem nefnd er sérstaklega til sögunnar í einum af þremur undirflokkum stórverkefnaflokks samkvæmt nýrri vegáætlun. Þess vegna er það ljóst að ákvörðun um vegagerð yfir Gilsfjörð er sameiginleg ákvörðun sem þarf að taka með þeim hætti að afgreiða í ályktun Alþingis. Hér er þess vegna í raun stærra mál á ferðinni en venjubundin uppröðun framkvæmda innan hvers einstaks kjördæmis, enda eiga hér fyrir það fyrsta í hlut tvö kjördæmi þar sem mörkin skiptast um Gilsfjörð. Síðan er stærðargráða framkvæmdanna, eins og hér kemur fram í fskj., allveruleg, a.m.k. hálfur milljarður kr., ef ég man þetta rétt.
    Nú ber svo vel í veiði að vegáætlun fyrir næsta fjögurra ára tímabil skal koma hér til skoðunar á Alþingi á þessum vetri. Sömuleiðis er, eins og hv. þm. er væntanlega kunnugt, verið að leggja drög að nýrri langtímaáætlun um vegagerð og er hvort tveggja í undirbúningi og vinnu. Ég tel þess vegna æskilegt að þessi tillaga, sem væntanlega verður vísað til hv. fjvn., komi til skoðunar í tengslum við endurskoðun þessara áætlana sem ég hef nefnt og tek það fram að náist um það samstaða hér á hv. Alþingi að setja þessa framkvæmd á þann stað eða svipaðar slóðir í framkvæmdaröð sem hv. flm. leggur til, þá mun ekki skorta mitt samþykki fyrir því.