Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
Hæstv. forseti. Það er skaði að heilbrrh. skuli ekki vera nærstaddur umræðuna, og hefði þá getað skýrt okkur frá því sem til skoðunar hefur verið og mér er kunnugt um á vegum heilbrrn. og samræðum sem átt hafa sér stað milli heilbrrn. og fjmrn. um þetta tiltekna vandamál sem er undirrót tillöguflutningsins. Ég get þó upplýst að þar hafa menn rætt og skoðað vandamál H1 - stöðvanna og þeirra heilsugæsluumdæma sem verst hefur gengið að manna á undanförnum árum og mörg voru nefnd af hv. flm.
Þar ber margt til. Eitt af nokkrum atriðum sem að sjálfsögðu hljóta að koma til skoðunar eru einfaldlega launakjör þeirra lækna sem við þessar aðstæður starfa. Því miður hefur nú tekist svo óhönduglega að á síðustu árum hefur launamunur í raun vaxið, þessum afskekktu einmenningslæknishéruðum í óhag, frá því sem áður var. Gengur það auðvitað þvert á það sem vera þyrfti og þvert á þá tilhneigingu, sem í æ ríkara mæli verður vart við, að menn mikla fyrir sér þau erfiðu starfsskilyrði sem að mörgu leyti eru búin starfsmönnum í einmenningslæknishéruðum og ekki þarf að fjölyrða neitt um.
Ég vil þakka hv. flm. fyrir að taka þetta mál hér upp og finnst það skaði, þó ég sé ekki að lasta félagsskapinn sem hér er nema síður sé, að ekki skuli fleiri láta sig þetta mál varða. Ég held að hér sé á ferðinni mjög stórt mál í samhengi við það sem stundum er rætt undir samheitinu byggðamál eða byggðastefna. Það kemur einmitt inn á sjálfar rætur umfjöllunar um þau efni að mínu mati. Ég hef nú gjarnan viljað skilgreina byggðastefnu sem eitthvert vit væri í þannig að hún ætti að taka til og sjá um með fullnægjandi hætti þau undirstöðuatriði þjónustu og uppbyggingar á sviði samgangna og slíkra hluta sem samfélagið allt stæði á bak við og samkomulag væri um í þjóðfélaginu að allir landsmenn stæðu jafnir gagnvart án tillits til búsetu, kynferðis, aldurs eða slíkra hluta. Þar held ég að heilbrigðisþjónustan sé einmitt eitt besta dæmið, ef ekki það besta, sem til er um það, þar sem svo rík rök, jöfnuðarrök, sanngirnisrök og mannúðarrök og hvað eina, mæla með því að samfélagið allt standi á bak við þessa þjónustu og tryggi mönnum jafnan rétt og jafnan aðgang eftir því sem kostur er án tillits til búsetu. Reyndar gerir okkar löggjöf ráð fyrir því að svo sé, að sjálfsögðu þó með þeim fyrirvörum sem alltaf hljóta á að verða vegna mismunandi aðstæðna eftir staðháttum og enginn gerir kröfu til að verði nokkurn tíma jafnaðir út að fullu og öllu.
Þess vegna gætir nú sívaxandi gremju og óánægju íbúanna í þessum byggðarlögum með það að lögbundinni þjónustu á þessum sviðum skuli ekki vera haldið uppi. Og þetta fólk spyr ósköp einfaldlega: Hvers eigum við að gjalda og af hverju eigum við að sætta okkur við það að ríkið standi ekki við þá þjónustu sem lögum samkvæmt ber að halda uppi í okkar byggðarlögum? Erum við eitthvað verri skattborgarar, einhverjir annars flokks þegnar í þessu landi? Og ef svo er, hvers vegna? Ætlar þá ekki bara hið háa Alþingi og ríkisstjórn að gera svo vel og viðurkenna það og segja okkur að það sé bara svoleiðis? Við hér við Þistilfjörð eða á Flateyri eða einhvers staðar annars staðar séum bara þarna í einhverjum öðrum flokki og það sé allt í lagi að ríkið sjái ekki um sinn þátt opinberrar þjónustu á okkar svæði.
Og ég held að menn verði ósköp einfaldlega að svara fyrst spurningunni: Ætla menn að standa við ákvæði heilbrigðislaga, grunnskólalaga og aðra slíka þætti? Ef svarið er já, þá verða menn að gera svo vel að kosta því til sem til þarf svo hægt sé að halda uppi þessari þjónustu með sómasamlegum hætti.
Ég tek það auðvitað fram og vona að það skiljist af mínu máli að ég er þeirrar skoðunar að nákvæmlega svona eigi að fara í þetta mál. Við eigum að svara þeirri spurningu fyrst: Ætlum við að halda uppi lágmarksheilsugæslu, fræðslustarfsemi og öðrum slíkum grundvallarþáttum opinberrar þjónustu og velferðarkerfisins? Og ætlum við að láta landsmenn standa jafnt að vígi, eftir því sem kostur er að breyttu breytanda, gagnvart slíkum þáttum? Ef svarið er já, þá verða ríkisstjórnir og hið háa Alþingi og fjárveitingavaldið að gera svo vel og átta sig á því að þetta kostar peninga og leggja til þá peninga sem til þarf.
Ég vil ítreka þakkir mínar til hv. flm. og lýsa því yfir að ég vonast til þess að á þessu máli verði tekið á þessum vetri í tengslum við fjárlagaafgreiðslu og eftir því sem tilefni er til að öðru leyti. Og ég vænti þess að það starf sem unnið hefur verið á vettvangi heilbrrn. og í samskiptum heilbrrn. og fjmrn. skili einhverjum niðurstöðum og tillögum sem unnt verði að hrinda í framkvæmd til að ráða bót á því ófremdarástandi og óviðunandi ástandi sem ríkt hefur í þessum efnum á ákveðnum svæðum í landinu. Svo býð ég utanrrh. velkominn til fundar.