Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Það mál sem hér er til flutnings er till. til þál. um flutning varnarmálaskrifstofu utanrrn. sem er flutt af okkur þingmönnum Sjálfstfl. í Reykjanesi. Hún hljóðar einfaldlega svo:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta flytja svo fljótt sem kostur er varnarmálaskrifstofu utanrrn. frá núverandi aðsetri til Keflavíkur.``
    Tillagan sem hér er flutt er eðlileg og sjálfsögð vegna þess að verkefni þessarar skrifstofu eru að stærstum hluta ýmiss konar samskipti við aðila á varnarsvæðinu. Þó ber að geta þess að skrifstofan er hluti af utanrrn. og starfsemi þess en meginhlutinn af vinnunni sem fer fram er við menn á Keflavíkurflugvelli. Stefnan í þessari till. er skýr og lýtur að því að hafa starfsemi ríkisins á þeim stað þar sem hún fer fram að mestum hluta. Í þessu tilfelli er augljóst og eðlilegt að staðsetning skrifstofunnar sé í Keflavík.
    Auðvitað væri hægt að halda alllanga tölu til frekari stuðnings því að þessa starfsemi eigi að flytja til Keflavíkur en að sinni verður það ekki gert. En ég tel mikilvægt að í ljósi þeirrar stefnu, sem hefur átt að ríkja hjá núverandi ríkisstjórn, að flytja starfsemi ríkisins út í hinar dreifðu byggðir, verði starfsemi varnarmálaskrifstofu utanrrn. flutt til Keflavíkur, enda hefur hæstv. forsrh. skilgreint það dreifbýli þegar komið er suður fyrir Straumsvík. Það liggur því í augum uppi að við, dreifbýlisþingmennirnir, óskum eftir því að þessi starfsemi verði flutt þegar í stað til Keflavíkur.