Skúli Alexandersson :
    Virðulegi forseti. Mér finnst svolítið sérstök kynning þeirra þingmanna, hv. þm. Hreggviðs Jónssonar og hv. þm. Ellerts Eiríkssonar á flm. og hvaða flokki þeir tilheyrðu, eða frá hvaða kjördæmi þeir eru kjörnir. Ég get náttúrlega ekki borið á móti því að sú athöfn hefur farið fram að hv. þm. Hreggviður Jónsson hefur gerst þingmaður Sjálfstfl., en hvort hann verður þannig sjálfkrafa þingmaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi átta ég mig ekki alveg á. Það má segja að það sé nokkur munur á því hvort hann er þingmaður og kjörinn sem þingmaður Sjálfstfl. eða genginn í Sjálfstfl. eftir að hafa verið kjörinn sem þingmaður Borgaraflokksins á svipaðan máta og hæstv. utanrrh. var að benda á að í texta tillögunnar: ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni``, ekki utanrrh., að framkvæma þetta verk, væri um hlut að ræða sem sé kannski formsins vegna ekki alveg fullkominn. Mér finnst þessi tillaga seint á ferðinni. Við höfum fylgst með því í fréttum fjölmiðla undanfarnar vikur, og síðast í morgun, að herstöðvar vítt og breitt um heiminn eru að verða til hinna mestu vandræða. Þær eru að verða til vandræða vegna þess að sú góða þróun er að það er verið að leggja þær niður. M.a. er verið að leggja niður herstöð ekki langt frá okkur, þ.e. flugvöllinn í Syðri - Straumsfirði. Grænlendingar eru í miklum vandræðum með hvernig á að halda þeim flugvelli gangandi eftir að ameríski herinn hættir að greiða kostnað við hann og sjálfsagt koma þar upp vandamál í sambandi við starfsfólk kringum flugvöllinn. Mér finnst þess vegna að þessi tillaga sé allt of seint á ferðinni, vegna þess að það er trú flestra að herstöðvum muni fækka áfram, þessi þróun muni halda áfram, og við vonumst eftir því að ein af þeim herstöðvum sem fyrst verður þannig ástatt um verði herstöðin í Keflavík. Ég held að það væri því hálfgerður bjarnargreiði við Keflvíkinga ef ætti að fara að flytja Varnarmálaskrifstofuna, sem hér er lagt til, til Keflavíkur. Það er nóg fyrir Keflvíkinga að horfa upp á það að missa atvinnuna sem þessi staður skaffar þeim, eins og nú er, án þess að farið verði að auka umsvifin í Keflavík nú á, vonandi, þeim síðustu dögum sem þessi herstöð verður.
    Ég sé að hv. þm. Ellert Eiríksson setur nú á sig þanniglagaðan svip að hann trúi því kannski ekki að þróunin verði sú að herstöðin verði lögð niður. En ég hef mikla trú á því og ekki síst vegna þess að fyrir nokkrum dögum var miðstjórnarfundur þess flokks sem ég er nú félagi í, Alþb., haldinn á Akureyri og mér er sagt það, ég var nú því miður ekki á þeim fundi, að líkast til í fyrsta skipti sem Alþb. hefur haldið miðstjórnarfund og gert stjórnmálaályktun hafi ekki verið minnst á að herstöðin á Miðnesheiði ætti að leggjast af. Mér sýnist því flest benda til þess að þeir menn sem hafa góða yfirsýn og að bestu manna yfirsýn, séu hlutirnir að snúast á þann veg að þessi herstöð verði lögð niður. Þess vegna tel ég að þessi tillaga sé óþörf og jafnvel hættuleg fyrir Keflvíkinga og langt frá því að vera sá góði hlutur sem frsm. fyrir tillögunni og flm. hafa verið að benda á.