Vegakerfið milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar
Fimmtudaginn 01. nóvember 1990


     Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson) :
    Hæstv. forseti. Hv. 2. þm. Vesturl. minntist hér á Gilsfjarðarbrúna. Ég tek undir hvert einasta orð sem hv. þm. sagði um það mál og ég minnist alls þess sem hann sagði um góða fundinn í Þórshamri. Ég vil taka undir þær frómu óskir og þá ákveðnu afstöðu sem þessi hv. þm. hefur til þessa máls og ég ætla að við tveir höfum alltaf haft álíka afstöðu.
    Ég vildi svo standa upp til þess að þakka hæstv. samgrh. fyrir það sem hann sagði. Ég tek undir hinar almennu athugasemdir sem hann gerði um framkvæmd vegamála, undirbúning og áætlanagerð. Sérstaklega tek ég undir það sem hann sagði um tillögu þá sem hér er til umræðu og þakka honum fyrir hans ágætu undirtektir.