Karl Steinar Guðnason :
Virðulegur forseti. Tvöföldun Reykjanesbrautar er málefni sem oft hefur verið rætt hér á Alþingi og ég fullyrði að allir þingmenn Reykjaness hafa mikinn áhuga á og hafa margoft rætt á fundum með vegamálastjóra. Hins vegar vekur það athygli mína þegar maður les hverjir bera fram þessa tillögu að hv. þm. Salome Þorkelsdóttur hefur ekki verið boðið að vera með, þrátt fyrir að hún sé ein þeirra manneskja sem hvað mest hafa sýnt þessu máli áhuga. Kannski má rekja það til þess að prófkjör er væntanlegt hjá Sjálfstfl. Önnur skýring getur varla verið fyrir hendi.
Það er ástæða til að geta þess að Reykjanesbraut hefur eyðst mjög illa á undanförnum árum. Þó er þetta braut sem sennilega hefur farið hvað minnst viðhald í síðan hún var byggð vegna þess að hún var byggð úr steinsteypu. Þær endurbætur sem nú eiga sér stað og hafa verið framkvæmdar nú í sumar hafa orðið vegna þess að þingmenn Reykjaneskjördæmis töldu rétt að leggja áherslu á það nú að hefja endurbætur, gera brautina akfæra, verja fjármunum í það sem að mestu leyti koma af viðhaldsfé nú vegna þess að menn sáu það fyrir að ekki voru til fjármunir til nýframkvæmda, ekki af vegafé Reykjaness alla vega núna þetta árið og eitthvað áfram.
Þingmenn Reykjaness létu gera könnun á ástandi Reykjanesbrautar. Frá Vegagerðinni kom stutt greinargerð um brautina. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
,,Nú þegar er orðið erfitt með framúrakstur á vissum tímum dagsins og skapar það hættu fyrir umferðina. Ef gerðar yrðu þær úrbætur sem lýst er í næsta kafla, þyrfti ekki að tvöfalda brautina fyrr en umferð verður orðin 8 -- 10 þúsund bílar á dag að meðaltali allt árið. Ef umferðaraukning verður svipuð og sýnt er á mynd 1,`` --- sem er í þessari skýrslu og mönnum var afhent á sínum tíma, --- ,,þá þarf að tryggja aðra braut á árunum 2005 -- 2010. En hafa þarf í huga að þessi umferðarspá getur hæglega breyst t.d. vegna byggðaþróunar og atvinnustarfsemi á Suðurnesjum.``
Þá er farið nokkrum orðum um kostnaðinn þar sem hann er metinn í fyrra 950 millj. en síðan er rætt um það hvað skuli gera til þess að brautin verði betri, til þess að hún verði ökufær. Hún var orðin vart ökufær vegna þess hversu steinsteypan hafði eyðst. Þá er lagt til að ljúka klæðningu á axlir en eftir er að leggja klæðningu á kaflann frá Kúagerði að flugstöð eða samtals um 23 km. Og síðan segir: ,,Stefnugreina og lýsa öll helstu gatnamót,`` og eru þau talin upp í þeirri röð er undirritaður telur að eigi að vera forgangsröðun, þ.e. Rögnvaldur Jónsson. Hann telur síðan upp þá staði og það er fyrirhugað að gera þetta. 11 gatnamót eru talin upp og er meiningin að verði haldið áfram að gera brautina öllu betri.
Um fleira sem þarf að gera segir hann:
3. Gera framúrakstursreinar til að auðvelda og gera framúrakstur öruggari. Líklega væri rétt að byggja reinar með 5 km millibili og að lengd hverrar reinar verði um 1,5 -- 2 km. Samtals gæti því lengd þessara framúrakstursreina verið um 16 km.
4. Setja þarf stærri og betri leiðamerkingar á og við öll gatnamót svo að ökumenn eigi ekki í neinum erfiðleikum með að finna gatnamótin.
5. Eftir að framúrakstursreinar hafa verið byggðar er rétt að breyta yfirborðsmerkingum þannig að hindra eins og hægt er framúrakstur án þess þó að banna hann nema á framúrakstursreinum.
6. Setja vegstikur með stærra og meira endurskini heldur en nú er.
7. Auka vetrarviðhaldsþjónustu þannig að byrjað sé að þjónusta veginn áður en umferð byrjar á morgnana.
Þetta eru verkefni sem þigmenn Reykjaneskjördæmis fengu framgengt að verða framkvæmd. Byrjað hefur verið á þessu og búið er að leggja að mestu það lag á brautina sem þurfti að gera en annað er eftir. Ég vænti þess að það gangi fljótt fyrir sig. Það mun bæta brautina allmikið. Sérstaklega þarf að huga að því að laga axlir vegarins þannig að þær verði úr varanlegu slitlagi. Tilfellið er að flest slysin hafa gerst við það að menn hafa ekið út af og mundi slysum fækka ef axlirnar yrðu malbikaðar.
Það kemur líka fram í því sem vegagerðarmenn segja að helsta ástæðan fyrir slysum er hraðakstur. Hraðakstur er geysilegur á brautinni og ég tel að löggæsla ætti að vera þar meiri. Það er líka allnokkuð um það að menn lenda í óhöppum vegna þess að áfengi hefur verið haft um hönd.
Þetta eru þau viðfangsefni sem þingmenn Reykjaness hafa talið brýnast að framkvæma til þess að gera veginn skaplegri. Hins vegar er það hugsjón okkar, ég býst við allra, að brautin verði tvöfölduð og það verður að gera eins fljótt og unnt er. Það leysist ekki með þáltill. örfárra þingmanna án samráðs við aðra, ég tala nú ekki um þeirra sem hafa sýnt þessu hvað mestan áhuga. Ég vænti þess að samstaða takist um það að þessi vegur verði tvöfaldaður. Ég minni á það líka að úr þéttbýlinu kemur mest fé í Vegasjóð og þar er nauðsynin mest að umferðin verði greið því að þar eru bílarnir flestir. Þær röksemdir sem hv. flm. setti hér fram eru allar réttar og var það ágætlega gert. En ég minni á það að til þess að ná fram framkvæmdum í þessu þarf að tryggja fé, það þarf að tryggja fjármuni, það þarf að koma því til vegar að staðið verði að verki þannig að brautin verði lögð á sem allra stystum tíma. Á meðan það er ekki tryggt verða menn væntanlega að leggja til nýjar fjáröflunarleiðir.