Tvöföldun Reykjanesbrautar
Fimmtudaginn 01. nóvember 1990


     Flm. (Hreggviður Jónsson) :
     Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þær umræður sem hér hafa orðið um tvöföldun Reykjanesbrautarinnar. Þær hafa á margan hátt verið fróðlegar og varpað ljósi á vegamál og uppbygginu þeirra og hugsun margra þingmanna í þeim málum. Það liggur ljóst fyrir eftir þessa umræðu að það er víða þörf á átaki í vegamálum. Það er þörf á því að ráðist verði í stórátök í vegalagningu á einstökum stöðum.
    Ég get einnig tekið undir það og fagnað því að hér skuli hafa komið fram stuðningur frá þingmönnum, mjög eindreginn, við að fara út í tvöföldun Reykjanesbrautar og hefur raunar aldrei áður í umræðum um þetta mál, þetta er nú fjórða árið sem það er flutt, verið svona eindreginn stuðningur við það.
    Ég gæti rifjað hér upp bæði fyrsta og annað árið, sem ég man sérstaklega eftir, sem þetta mál var flutt, umræður um það og hvernig málið varð til. Það var ekki jafneindreginn stuðningur þá og er nú. Ég fagna því að svo skuli vera orðið.
    Auðvitað hefði verið æskilegt að fleiri hefðu verið á till. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir svona eindregnum stuðningi almennt. Að vísu hélt ég að í þingflokki Sjálfstfl. væru ákveðin vinnubrögð með að leggja slíkt fram. Menn óskuðu þá eftir að verða meðflm., þannig að það eru nú mistök að Salome Þorkelsdóttir skuli ekki vera hér með á frv. Ég hafði ekki áttað mig á því að það þyrfti að óska eftir því að menn væru með á því sem slíkir. Miðað við þær umræður sem hafa átt sér hér stað, þá er kominn tími til þess að við þingmenn Reykjaness sameinumst um þetta mál og ég fagna því að það skuli vera svo eindreginn stuðningur við það, eins og hér hefur komið fram.
    Mér datt í hug þegar hv. 8. þm. Reykn. var að ræða um járnbraut á milli Keflavíkur og Reykjavíkur, að ég átti þess kost í sumar að ræða við forstjóra járnbrauta Svíþjóðar og járnbrauta Noregs og spurði þá um kostnað við lagningu á járnbrautum. Í þeim tölum sem þeir gáfu mér upp var ljóst að undirbygging og gerð teina fyrir járnbrautir var svo há tala að í fljótu bragði var það nokkuð ljóst að það mundi ekki vera á næstu árum sem við hefðum fjármagn til þess að hefja járnbrautarlagningu, og var þá ekki tekinn með búnaður og tæki, þ.e. lestirnar sem slíkar.
    Ég vek athygli á því að í töflunum hér um umferðarslys kemur fram að þeim hefur fækkað miðað við 1987 -- 1989. Ástæðan fyrir þessu er sú að á miðju ári 1988 var tekin upp ný skipan mála varðandi skráningu á slysum, þ.e. þetta eru bara slys sem lögregla hefur skráð. Þau slys eða árekstrar sem verða með þeim hætti að það er gefin skýrsla beint til tryggingarfélaga eru ekki hér með. Ég áttaði mig ekki á því þegar ég var að skrifa greinargerðina að láta það koma fram.
    Varðandi umferðina þá er það svo að umferð milli tveggja ára er ekki marktæk sem slík. Það er umferðin yfir tímabil og umferðin yfir tímabil sýnir þennan stígandi. Hún getur auðvitað verið minni eitt árið en

annað en það er ekki meginmálið. En aðalatriðið er það að það er stígandi í umferðarþunganum og það er það sem skiptir máli.
    Ég tek einnig undir það sem hefur verið sagt hér um að tryggja fjármuni til þessara hluta með einhverjum öðrum hætti en gert hefur verið, eða með þeim hætti að það sé hægt að fara í slík stórverkefni. Í grg. með till. gerði ég ráð fyrir því að það væri hægt að fjármagna þessa framkvæmd með sama hætti og sambærilega framkvæmd sem þegar hefur verið farið út í og var samþykkt hér orðalaust á síðasta vori og þótti mönnum ekkert að því að samþykkja þá aðferð. Í till. er þess vegna aðeins vikið að því að það verði farið út í fjármögnun með sama hætti og var samþykkt sl. vor með þá framkvæmd. Ég ætla ekki að hafa þessi orð um það öllu lengri.