Varamenn taka þingsæti
Mánudaginn 05. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf frá forseta Nd.:
    ,,Ólafur Þ. Þórðarson, 2. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda á vegum Byggðastofnunar og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Pétur Bjarnason fræðslustjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Pétur Bjarnason hefur áður tekið sæti á Alþingi og ég býð hann velkominn til starfa.
    Þá hefur einnig borist eftirfarandi bréf frá forseta Nd.:
    ,,Jón Sæmundur Sigurjónsson, 5. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, Birgir Dýrfjörð, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.
``

    Birgir Dýrfjörð hefur einnig tekið sæti á Alþingi áður á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.