Fjárhagsvandi byggingarsjóðanna
Mánudaginn 05. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill upplýsa að hæstv. forsrh. kom að máli við forseta fyrir fundarlok í kvöld og skildi eftir símanúmer þannig að til hans mætti ná ef á lægi. Hann hafði hins vegar ráðstafað sér á þessu kvöldi en sé þess sterklega óskað er forseti fús til þess að hafa samband við hæstv. forsrh.