Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
Þriðjudaginn 06. nóvember 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á og viðauka við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Frv. þetta er á þskj. 121.
    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, The International Monetary Fund, var stofnaður skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldar og var Ísland meðal stofnaðilanna. Nú eru 154 aðildarríki að sjóðnum, Mongólía og Sviss hafa nýlega sótt um aðild að honum og þess er vænst að Sovétríkin bætist í hópinn innan tíðar. Þá má heita að í sjóðnum séu flest aðildarríki Sameinuðu þjóðanna.
    Starfsemi sjóðsins hefur tekið ýmsum breytingum frá stofnun hans. Í fyrstu beindust kraftarnir að því að útrýma hömlum á gjaldeyrisviðskiptum milli þjóða og greiðslum fyrir innflutning. Góður árangur á því sviði ásamt farsælu samstarfi fjölmargra þjóða um tollalækkun og afnám ýmissa viðskiptahafta og samstarf iðnríkjanna í efnahags- og framfarastofnuninni OECD hefur án alls efa örvað milliríkjaviðskipti og átt sinn þátt í örum efnahagsframförum á áratugunum eftir síðari heimsstyrjöld.
    Þessi þróun hefur ekki síst komið fámennum þjóðum eins og Íslendingum til góða sem byggja sína velferð að miklu leyti á utanríkisviðskiptum. Þegar fastgengisfyrirkomulagið leið undir lok árið 1971 varð mikil breyting á starfsemi sjóðsins þar sem hann lék ekki lengur meginhlutverk í ríkjandi gengisfyrirkomulagi og við gengisákvarðanir einstakra ríkja. Önnur veigamikil breyting varð á starfsemi sjóðsins þegar skuldakreppan í fjölmörgum þróunarríkjum, einkum ríkjum rómönsku Ameríku og í nokkrum ríkjum Austur-Evrópu, hófst árið 1982. Þá gegndi sjóðurinn lykilhlutverki í aðgerðum til að létta skuldabyrði þessara ríkja, og hefur síðan gert, og til þess að finna leiðir og örva hagvöxt og auka útflutningstekjur til að standa undir afborgunum og vöxtum af erlendum lánum. Oft á tíðum hafa frumkvæði og þátttaka sjóðsins með aðgerðum til hjálpar skuldugum þjóðum verið forsenda þess að aðrar fjölþjóðlegar fjármálastofnanir, einstök ríki og einkaaðilar hafa verið reiðubúin að leggja hönd á plóg við lausn slíkra viðfangsefna.
    Það er tilefni þessa frv. að sjóðráð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti hinn 28. júní á þessu ári að breyta stofnskrá sjóðsins og er það í þriðja sinn frá því sjóðurinn var stofnaður. Breyting þessi tekur gildi þegar 3 / 5 hlutar aðildarríkjanna, sem til samans ráða 86% af heildaratkvæðamagni í sjóðnum, hafa samþykkt hana. Það er gert ráð fyrir því og að því stefnt að þetta verði eigi síðar en í ársbyrjun 1992. Breytingin á stofnskránni er birt í heild sem fskj. með þessu frv. og vísa ég til þess skjals um orðalag á einstökum greinum.
    Ég vil þó hér fara örfáum orðum um meginefni tillögunnar. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, líkt og Alþjóðabankinn, getur gripið til þeirra ráða að svipta aðildarríki, sem brýtur gegn ákvæðum stofnskrárinnar, réttinum til að nota fjármagn sjóðsins. Bæti aðildarríkið

ekki ráð sitt er heimilt að vísa því úr sjóðnum. Ólíkt Alþjóðabankanum getur sjóðurinn hins vegar ekki gengið skrefið skemur en þetta og svipt aðildarríki tímabundið atkvæðisrétti, brjóti það gegn stofnskránni. Breyting sú á stofnskránni sem hér er til umræðu felur einmitt í sér heimild af þessu tagi. Meginástæða þess að talin er þörf fyrir slíka breytingu er sú að nokkur aðildarríkjanna hafa ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart sjóðnum og ekki endurgreitt lán sem þau hafa fengið úr honum. Þessar vanskilaskuldir fara vaxandi og nokkur af þessum skuldugu ríkjum hafa hafnað því að eiga samstarf við sjóðinn til að leita leiða til að geta staðið í skilum. Vanskilaskuldir við sjóðinn veikja fjárhagsstöðu hans, hækka vexti á lánum til annarra aðildarríkja og gera honum erfiðara um vik að standa við skuldbindingar gagnvart öðrum aðildarríkjum. Tilefni breytinganna er sem sagt að gefa færi á millistigi við það að gera ekkert eða reka ríkið úr sjóðnum.
    Ég vil að síðustu geta þess að fyrir þinginu liggur annað frv. til laga um málefni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Það er frv. til laga um heimild til ríkisstjórnarinnar að semja um hækkun á kvóta Íslands hjá sjóðnum og mun ég mæla fyrir því máli hér á eftir.
    Virðulegi forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.