Búminjasafn
Þriðjudaginn 06. nóvember 1990


     Ingi Björn Albertsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Á 111. löggjafarþingi lagði ég ásamt nokkrum þingmönnum úr Vesturlandskjördæmi fram till. til þál. um stofnun búminjasafns á Hvanneyri. Sú tillaga var nokkuð rædd hér í þinginu og fékk þinglega meðferð og kom út úr þeirri nefnd eins og vera bar og var samþykkt hér í þinginu að vísa þeirri tillögu til ríkisstjórnarinnar og væntanlegs þjóðminjaráðs. Þetta var eins og ég fyrr sagði á 111. löggjafarþingi. Síðan hefur ekkert heyrst um afdrif þessarar tillögu og því hef ég lagt fram fyrirspurn til ráðherra um afdrif tillögunnar og hvers er að vænta í þessu máli. Með tilliti til þess tel ég óraunhæft að taka hér til umræðu frv. til laga um stofnun búminjasafns þar sem fyrir liggur samþykkt þáltill. og vil því fara þess á leit við forseta að þessu máli verði frestað þar til þeirri fyrirspurn sem ég hef lagt fram um afdrif þessa máls verður svarað.