Búminjasafn
Þriðjudaginn 06. nóvember 1990


     Flm. (Alexander Stefánsson) :
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um búminjasafn sem er endurflutt frá síðasta Alþingi. Þetta mál fór í gegnum 1. umr. hér í hv. deild og var vísað til menntmn. Menntmn. fjallaði ítarlega um málið og fékk umsagnir ýmissa aðila en því miður entist ekki þingtími til þess að ljúka þeim störfum þannig að Alþingi gæti tekið endanlega afstöðu til málsins.
    Út frá því sem hér hefur komið fram hjá flm. þáltill. á sínum tíma er lítið um það að segja annað en það að hér er um lagafrv. að ræða af þeirri einföldu ástæðu að það lá alveg ljóst fyrir að lausn á þessu máli fólst ekki í þessari þáltill. enda kom það á daginn að nýju þjóðminjalögin eru ekki í stakk búin, hvorki nú eða á næstunni, að taka afstöðu til þessara mála fjárhagslega eða á annan hátt. Því töldum við flm. eðlilegt að fara að ósk skólans og flytja hér frv. til laga um búminjasafn á Hvanneyri. Þess vegna er þetta frv. nú endurflutt og ég vænti þess að um það náist samstaða hér á hv. Alþingi að taka af skarið um þetta mál sem búið er að vera raunar í meðferð í áraraðir.
    Frv. gerir ráð fyrir því að stofnað verði búminjasafn sem hafi aðsetur á Hvanneyri. Og eins og stendur hér í 2. gr. er gert ráð fyrir að hlutverk safnsins sé að safna munum og minjum og hvers konar heimildum er snerta íslenskan landbúnað, varðveita og hafa til sýnis almenningi.
    Í 3. gr. er gert ráð fyrir því að menntmrh. skipi stjórn safnsins eftir tilnefningu Þjóðminjasafns, Búnaðarfélags Íslands, Bændaskólans á Hvanneyri og Bændaskólans á Hólum. Einn stjórnarmaður verði skipaður án tilnefningar.
    Það er einnig gert ráð fyrir því að ráðherra skipi forstöðumann safnsins eftir tillögu stjórnar þar um til sex ára í senn og stjórn safnsins ráði safnverði og aðra starfsmenn eftir því sem fé er veitt til á fjárlögum hverju sinni.
    Það er gert ráð fyrir því í 5. gr. að stjórn búminjasafns og forstöðumanni beri að hafa náið samráð við Þjóðminjasafnið um varðveislu minja og skipulega starfshætti safnsins. Og það er einnig gert ráð fyrir því í þeirri grein að Þjóðminjasafni sé heimilt að varðveita búminjar á búminjasafninu ef það telur varðveislu muna og minja nægilega trygga þar.
    Í 6. gr. er mikilvægt atriði. Gert er ráð fyrir því að forstöðumaður búminjasafns muni annast kennslu í búnaðarsögu og véla- og verkfærafræði við Bændaskólann á Hvanneyri. Síðan er gert ráð fyrir því að kostnaður við rekstur búminjasafns greiðist úr ríkissjóði.
    Það þarf lítið um þetta að segja umfram það sem kom fram hér þegar mælt var fyrir frv. á síðasta þingi. Ég vil geta þess að á sl. ári var Bændaskólinn á Hvanneyri 100 ára. Skólinn hefur alla tíð haft mikil áhrif á þróun landbúnaðar á Íslandi og haft forustu um nýjungar í landbúnaði sem nemendur frá skólanum hafa fylgt eftir til framfara í sveitum landsins. Skólinn hefur ávallt verið undir stjórn hæfustu manna

sem af eldmóði hafa mótað uppbyggingu hans. Hann hefur því hlotið viðurkenningu og virðingu landsmanna og á erlendum vettvangi. Þar er nú starfandi búvísindadeild og enn fremur bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Og stefnt er að því að starfsemi á rannsóknasviði landbúnaðar verði flutt að Hvanneyri í vaxandi mæli. Ég vil geta þess að einmitt núna stendur yfir athugun á því hvort ekki er hægt að hefja framkvæmdir við svokallað bútæknihús á Hvanneyri sem Rannsóknastofnun landbúnaðarins, í gegnum Rannsóknasjóð, hefur veitt fjármagni til og sömuleiðis Stéttarsamband bænda. Þess er vænst að það mál verði tekið hér til umræðu í sambandi við fjárlögin.
    Með þessu frv. fylgir sem fskj. I greinargerð frá Bændaskólanum á Hvanneyri um vísi að verkfærasafni við skólann sem mikill áhugi hefur verið á og rakin saga þess gegnum áraraðir. Þessi vísir að safni hefur þegar vakið mikla athygli á ýmsum landbúnaðarsýningum sem hér hafa verið haldnar. Þar kemur einnig fram að sökklar undir verkfærasafn eru til við hlið verkfærahúss Bændaskólans og bíða framkvæmda. Þetta fskj. frá skólanum nr. I er mjög viðamikið. Þar er saga safnsins rakin mjög ítarlega sem ég ætla ekki að ræða hér. Ég rakti það í framsögu þegar frv. var lagt fram á síðasta þingi, en það er mjög merkileg saga og sýnir áhuga fyrir þessu safni sem vantar herslumuninn á að koma upp.
    Menntmn. Nd. bárust fjölmargar umsagnir um frv. Flestar þeirra voru mjög jákvæðar. Frá Búnaðarsambandi Borgarfjarðar kom fram að aðalfundur þess samþykkir að skora á Alþingi að lögfesta sem fyrst fyrirliggjandi frv. um búvélasafn á Hvanneyri. Jafnframt lýsir fundurinn yfir ánægju með þann áfanga sem náðst hefur í samstarfi Bændaskólans og RALA, bútæknideildar, í varðveislu gamalla véla og hvetur til áframhaldandi vinnu á þessu sviði.
    Síðan er umsögn frá Bændaskólanum. Þar kemur fram að rökstuðning fyrir því að mæla með samþykkt frv. sé að finna í fylgiskjali með frv. Áréttað er að búminjasafn á Hvanneyri hefur mikla þýðingu fyrir kennslu í véla- og verkfærafræði, auk þess sem það hefur almennt gildi sem safn og fellur vel að starfsemi skólans og starfsemi bútæknideildar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins.
    Búnaðarþing samþykkti einnig um þetta mál. Búnaðarþing mælir eindregið með að lögfest verði frv. til laga um búminjasafn.
    Síðan kemur umsögn frá þjóðminjaverði sem ræðir ítarlega um safnið og rekur það í fylgiskjali sem hér fylgir með. Hann gerir athugasemdir við einstakar greinar lagafrv. Þar segir við 1. gr.: ,,Athugandi er hvort safnið ætti ekki fremur að heita bútækjasafn en búminjasafn þar sem væntanlega yrðu aðallega hin stærri landbúnaðartæki í safninu. Hin minni áhöld, sem fyrr er minnst á, er nú orðið nær ógerningur að fá. Þau sem eru til eru nánast öll komin á söfn.``
    Þjóðminjavörður segir enn fremur í sambandi við hlutverk safnsins að það sé erfitt eða nær ógerningur að afla nokkurs að ráði af munum frá íslenskum landbúnaði fyrrum, þ.e. fyrir vélaöld, þar sem þeir gripir

eru nær allir komnir á söfn og meiri hlutinn að sjálfsögðu glataður. Hann minnir á hverja þýðingu þetta hefur fyrir íslenskan landbúnað og hann tekur fram í sambandi við 3. gr. hvort athuga ætti --- og leggur raunar til --- að Byggðasafn Borgarfjarðar tilnefni einn stjórnarmann, þar sem mikilvægt sé að milli þessara safna sé föst samvinna. Ég vil geta þess hér að við flm. höfum ekkert við það að athuga í raun og veru þó að nafninu sé breytt í samræmi við tillögu þjóðminjavarðar og eins að bætt sé við í stjórn safnsins fulltrúa frá Byggðasafni Borgarfjarðar.
    Þjóðminjavörður ítrekar að það sé mjög mikilvægt að forstöðumaður sé fyrst og fremst safnmaður sem sinni kennslu, eftir því sem aðstæður leyfa, en sé þó ekki fyrst og fremst kennari, honum sé falin forstaða safnsins, svo sem að framan greinir. Hann leggur áherslu á að það sé alveg ljóst að mikil tengsl verði milli safnsins og skólans, hvort sem safnið verður hluti hans eða sjálfstæð stofnun. Hann vill endurtaka að hann mælir með samþykki frv. með þeim athugasemdum sem hann hefur gert og telur að hér sé verið að vinna vel og myndarlega að málum ef þau verða unnin á annað borð.
    Síðan kemur umsögn frá Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal. Í henni segir að Bændaskólinn á Hólum fagni þessu frv. og taki undir mikilvægi þess og hlutverk. ,,Þróun á vélum, tækjum og tækni til landbúnaðarstarfa á þessari öld og þeirri nítjándu hefur orðið geysimikil og eru þættir í sögu iðnvæðingar á Íslandi, búháttabreytinga, gjörbreyttum lifnaðarháttum og þjóðfélagsskipan. Söfnun og varðveisla verkfæra og tækja frá þessum tíma ásamt vitneskju um notkun þeirra hefur sígilt gildi fyrir atvinnuveginn sjálfan. Hugmyndir hafa verið uppi um söfnun og vörslu landbúnaðarverkfæra og tækja á Hólum og þá í samráði við þáverandi sýslunefnd Skagafjarðar og byggðasafnið í Glaumbæ. Þessar hugmyndir eru engan veginn eins stórtækar og frv. gerir ráð fyrir á Hvanneyri. Telja verður eðlilegt að búminjasafnið eigi sér höfuðmiðstöð á Hvanneyri. Skólinn og staðurinn hér gætu vel tengst því, t.d. með því að á Hólum væru sérstakar deildir, svo sem tæki og búnaður tengdur hrossum, reiðmennsku og notkun hrossa til dráttar og burðar. Þá mætti hugsa sér deild fyrir veiðarfæri og búnað til veiða í ám og vötnum. Hugsanleg söfnun og varðveisla muna á Hólum í samstarfi við byggðasafnið í Glaumbæ ætti vel að geta tengst starfinu við búminjasafnið á Hvanneyri.``
    Frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun lá fyrir greinargerð með frv. sem var hér síðast til umræðu og ég vísa til þess sem þar segir en jafnframt segir í umsögninni:
    ,,Samkvæmt frv. því er hér liggur fyrir er gert ráð fyrir að búminjasafnið verði á Hvanneyri. Samkvæmt greinargerð með því eru fyrir hendi margir munir á Hvanneyri sem tengjast sögu og tækniþróun í landbúnaði hér á landi. Ef ríkissjóður hyggst ráðast í stofnun og rekstur safns af þessu tagi má ætla að hagkvæmast væri að það yrði rekið í nánum tengslum við búnaðarskólann, eins og frv. gerir ráð fyrir. Með því

móti gæfust möguleikar á að samnýta bæði starfskrafta skólans og húsnæði. Einnig mætti hugsa sér að nemendur skólans gætu þá tekið virkan þátt í varðveislu og viðgerðum á tækjum og munum safnsins. Þannig mætti halda rekstrarkostnaði safnsins í lágmarki samtímis að nýta safnið á virkan hátt í skólastarfinu.``
    Hagsýslustofnun telur að það muni vera erfitt að gera sér hugmyndir um hver kostnaður yrði af rekstri. Miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja reiknar Hagsýslan með að árlegur launakostnaður yrði um 3,5 millj. kr. á verðlagi síðasta árs. Til viðbótar kæmi annar rekstrarkostnaður. Miðað við þær byggingarframkvæmdir sem nauðsynlega þyrftu að koma gera þeir ráð fyrir að byggingarkostnaður án innréttinga yrði um 9 millj. 600 þús. á því verðlagi eða um 30 þús. kr. á fermetra.
    Síðan var umsögn frá Félagi ísl. safnmanna sem gerir nokkrar athugasemdir við slíkt safn. Þeir vísa til búminjalaga og til umsagna sem þeir gáfu 1988 til félmn. Alþingis um þáltill. og leggja áherslu á að óeðlilegt sé að sérstök lög verði sett um búminjasafnið.
    Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara ofan í þetta nánar. Hv. þm. geta lesið sér til. En ég legg áherslu á að það er mjög brýnt að tekin verði ákvörðun um hvort það heiti búminja- eða bútækjasafn á Hvanneyri, það er beðið eftir því. Og það er alveg ljóst eins og ég sagði hér í upphafi að langur tími mun líða áður en hægt er að reikna með því að hin nýju þjóðminjalög geti sinnt þessu verkefni, það hef ég kynnt mér, þannig að gert er ráð fyrir því að þetta safn tengist Þjóðminjasafninu eða þeim lögum sem eru í gildi. Því er engin ástæða til þess að efast um að það ber brýna nauðsyn til þess að um þetta verði sett lög en ekki verði beðið eftir einhverjum svörum við þáltill. sem í raun og veru flækist fyrir málinu.
    Ég legg svo til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.