Ingi Björn Albertsson :
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að gera smáathugasemd við það sem hæstv. forseti sagði áðan sem svar við beiðni minni um frestun. Mér fannst hann eitthvað mistúlka það. Ég var aðeins að biðja um frest, ekki það að koma í veg fyrir framgang máls eða að það yrði dregið til baka. Mér fannst eðlilegt að umræðu um þetta mál yrði frestað þar til það skýrðist í hvaða farvegi málið er þegar fyrirspurn um búminjasafn á Hvanneyri yrði svarað. Ég vil bara að þetta sé alveg á hreinu, að það var alls ekki meining þess sem hér stendur að koma í veg fyrir framgang þessa máls, enda er það eins og hv. síðasti ræðumaður sagði sameiginlegt áhugamál allra þingmanna Vesturl. að á Hvanneyri rísi búminjasafn. Það er hins vegar meiningarmunur um það hvernig að því verður staðið.
En ég fagna því að þessi umræða er enn á ný komin í gang þó að ég harmi það um leið að þessir tveir ágætu flm. að þessu frv. urðu til þess að Hvanneyri fékk ekki þá 100 ára afmælisgjöf sem efni stóðu til, þ.e. að fá búminjasafn þegar þáltill. var lögð fram. Með flutningi sínum á lagafrv. því sem þeir lögðu fram komu þeir í veg fyrir það og eyðilögðu málið. Ég ætla ekkert að rifja mjög mikið upp þann hamagang sem var hér í þingsal þegar þáltill. kom til umræðu, en það mega þeir hafa á samviskunni, þessir ágætu tveir herrar, að þeir eyðilögðu þá afmælisgjöf hreint og klárt. Og af hverju skyldi það hafa verið? Það var vegna þess að ekki var farið eftir hefðbundinni röð þingmanna í kjördæminu. 1. þm. kjördæmisins gat ekki sætt sig við það að þingmaður nr. 5 skyldi leggja fram þáltill. sem höfðaði til kjördæmisins. Það var eina ástæðan. Honum var gert það fyllilega ljóst að til þess að búminjasafn risi á Hvanneyri þyrfti til þess viljayfirlýsingu Alþingis. Fyrir þinginu voru ný þjóðminjalög og undir þau fellur þetta safn og gerir í dag. Það er staðfest, þannig að þetta frv. í dag er ekkert annað en sýndarmennskan ein. Og að leyfa sér að koma hér upp, eins og hv. síðasti ræðumaður gerði, og lýsa þessu sem vilja allra þingmanna kjördæmisins vegna þess að það stendur í greinargerð að þeir muni fylgja málinu eftir, bæði í þessari deild og hinni, það eru ósannindi, það eru hrein og klár ósannindi. Í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:
,,Þingmenn Vesturl. hafa því ákveðið að flytja þetta frv. til laga um stofnun búminjasafns er hafi aðsetur á Hvanneyri. Málið er flutt í Nd. en þingmenn Vesturl. í Ed. munu fylgja málinu áfram í þeirri deild.``
Þetta sem ég hér var að lesa er uppspuni frá rótum. Það eru ósannindi frá rótum og þetta leyfa þessir þingreyndu menn sér að setja inn í greinargerðina. Við mig var ekki talað, fyrstu ósannindi. Við engan þingmann Ed. var talað, engan þeirra. Ég innti þá alla eftir því. Við engan þeirra var talað. Það sem hér stendur í greinargerð er rangt, eru ósannindi. Og ætla svo að nota það sem einhver rök í málinu er gersamlega út í hött og jafnþingreyndir menn og þessir tveir
ágætismenn eru eiga ekki að láta slíkt henda sig. Þeim var reyndar bent á það í fyrra frv. því að þeir beittu sömu brögðum þar en þeir virðast ekkert læra.
Það er kindarleg ástæða fyrir framlagningu frv. Ég ætla að vitna til þess sem hv. þm. Skúli Alexandersson sagði í umræðunni um þáltill. og þann hamagang sem varð í þessum ágætu þingmönnum annars. Hann sagði, með leyfi forseta:
,,Af hverju ætti þetta mál að bíða sem lagt er fram á undan og á að fá alla eðlilega þinglega afgreiðslu á undan því lagafrv. sem lagt var fram í kappi við þetta mál? Það gera sér allir ljóst að það var á þeirri forsendu sem það frv. var lagt fram. Ég hef vissan grun um að ef hv. þm. sem lögðu lagafrv. fram í Nd. hefðu haft aðstöðu til að flytja um það þáltill. hefði það líkast til verið lagt fram á þann hátt.``
Þetta var álit hv. þm. Skúla Alexanderssonar á lagafrv. þeirra félaga, lagt fram í kappi við þetta mál, sagði hann. Það er akkúrat málið. Menn gátu ekki þolað það að nr. 5 færi fram fyrir nr. 1 og 2. Það er kjarni málsins.
Við lögðum fram tillögu, hv. þm. Skúli Alexandersson og Danfríður Skarphéðinsdóttir ásamt mér, á 111. löggjafarþinginu um stofnun búminjasafns á Hvanneyri. Tillagan sjálf hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela landbrh. að hefja nú þegar, í samráði við menntmrh., undirbúning að stofnun búminjasafns í tengslum við bændaskólann á Hvanneyri.``
Eftir allan hamaganginn hér í þingsal var þessu vísað til nefndar, fékk þar þinglega meðferð og út úr nefndinni kom nál. á þskj. 1016 sem ég ætla að leyfa flm. að heyra, með leyfi forseta:
,,Nefndarálit um till. til þál. um stofnun búminjasafns á Hvanneyri. Frá félmn.
Nefndin hefur fjallað um málið og sendi það til umsagnar. Svör bárust frá eftirtöldum: Búnaðarfélagi Íslands, Byggðasafni Akraness og nærsveita, Félagi íslenskra safnamanna, skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri og þjóðminjaverði. Umsögn Byggðasafns Akraness og nærsveita fylgdi ítarleg greinargerð dr. Bjarna Guðmundssonar um búminjasafn á Hvanneyri.
Umsagnaraðilar taka vel undir þetta mál og hvetja til að stofnað verði safn á þeim grunni sem vísir er að á Hvanneyri.
Þjóðminjavörður telur að heitið ,,búvélasafn`` nái betur yfir þann stofn muna sem fyrir er og að erfitt sé að koma upp yfirgripsmiklu og alhliða búminjasafni ,,þar sem allar eldri búminjar, áhöld, verkfæri og ílát fást ekki lengur að neinu marki``. ,,Mér þykir rétt``, segir þjóðminjavörður, ,,að mæla með fyrrgreindri þáltill., enda verði safnið einkum bundið við búvélar og hin stærri tæki frá vélaöld.`` Síðan telur hann upp ýmis atriði er málið varða, ekki síst að uppbygging slíks safns sé kostnaðarsöm, bæði varðandi stofnkostnað og rekstur. Telur hann að ekki ætti að fara lengra með málið nema tryggt sé að safninu verði búin viðunandi fjárhagsleg skilyrði.
Félag íslenskra safnamanna ,,telur þó eðlilegt að
slíkt safn falli undir það heildarskipulag safnamála sem gert er ráð fyrir í frv. til þjóðminjalaga sem nú liggur fyrir Alþingi``.
Í svipaðan streng tekur forstöðumaður Byggðasafns Akraness og nærsveita um leið og hann fagnar tillögunni. ,,Sjálfgefið er að vísa þessu máli til væntanlegs þjóðminjaráðs eða þeirrar yfirstjórnar minjavörslunnar í landinu sem komið verður á fót verði umrætt frv. að lögum ... Á þessu stigi málsins sýnist því naumast þörf á frekari umræðu um þetta tiltekna mál. Mælt er sérstaklega með samþykkt þáltill. sem viljayfirlýsingar þingsins um að stofnað verði með formlegum hætti búminjasafn á Hvanneyri sem hluti af samræmdri heildarstefnu um uppbyggingu Þjóðminjasafns Íslands.``
Skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri segir m.a. í umsögn sinni:
,,Þó skal á það bent til áréttingar að Búminjasafn á Hvanneyri hefði mikla þýðingu fyrir kennslu í véla - og verkfærafræði, auk þess sem það hefur almennt gildi sem safn og fellur vel að starfsemi skólans og að starfsemi bútæknideildar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins.``
Nefndin minnir á að á yfirstandandi þingi kom fram frv. til laga um búminjasafn á Hvanneyri, en ekki eru líkur á að það nái fram að ganga. Hins vegar er líklegt að samþykkt verði ný þjóðminjalög með margvíslegum nýmælum, m.a. að því er varðar skiptingu landsins í minjasvæði og samræmda yfirstjórn minjavörslunnar í höndum þjóðminjaráðs.
Nefndin tekur undir þau sjónarmið flutningsmanna tillögunnar og umsagnaraðila að rétt sé að ganga formlega frá stofnun safnsins á þeim grunni sem vísir er að á Hvanneyri. Slíkt safn þarf að falla að heildarstefnu í safnamálum Vesturlands og á landinu öllu á grundvelli nýrra þjóðminjalaga. Því leggur nefndin til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar og væntanlegs þjóðminjaráðs.``
Undir þetta rita Hjörleifur Guttormsson, form. og frsm., Eiður Guðnason fundaskrifari, þingmaður Vesturlands, Guðni Ágústsson, Birgir Ísl. Gunnarsson, Hreggviður Jónsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og Alexander Stefánsson. Hann ritar undir þetta nefndarálit. Hann sendir þetta mál til þjóðminjaráðs og hann óskar eftir því að safnið verði stofnað á grundvelli nýrra þjóðminjalaga. Síðan kemur hann hér inn með frv. núna. Ég leyfi mér að spyrja: Hvers lags vinnubrögð eru þetta? Þegar frv. kom svo fram var ekkert óeðlilegt, sérstaklega miðað við það sem á undan var gengið að það er skrökvað meðflutningi upp á menn, að þingmönnum Vesturlands bregði við. Þeir eru svo sannarlega sammála, eins og var verið að reyna að segja hér áðan, því fjórir af þingmönnum Vesturl. lögðu fram fyrirspurn um málið. Og það er á grundvelli þeirrar fyrirspurnar sem ég fór fram á frestun á þessu máli, til þess að það verði hægt að ræða þetta í ljósi þeirra upplýsinga sem þá koma fram. En offorsið er svo mikið að það má ekki bíða. Menn eru hræddir við að missa forskotið. Og það er rangt að þetta falli ekki undir nýju þjóðminjalögin. Ég hvet
flutningsmenn til þess að lesa þau. Það er það minnsta sem þeir geta gert ef þeir ætla að beita rökum sem slíkum.
Hæstv. forseti. Lokaorð hv. 1. þm. Vesturl. um þáltill. hér um árið eiga mjög vel við í dag og ég ætla að hafa þau mín lokaorð, alla vega í þessari 1. umr. Hann sagði, með leyfi forseta:
,,Sumir menn eru þannig gerðir að þeir þurfa að reyna að slá sér upp á kostnað annarra.``