Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Miðvikudaginn 07. nóvember 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Egill Jónsson greip hér fram í um leið og ég gekk í ræðustólinn og sagði: ,,Einn skatturinn enn.`` Þetta er ekki alveg rétt hjá hv. þm. vegna þess að þessi skattur er þeirrar náttúru, umfram alla aðra skatta sem hér eru til meðferðar á Alþingi hefur hann það sérkenni að engir fjmrh. hafa mælt eins oft fyrir honum og fjmrh. Sjálfstfl. Hér er því ekki um að ræða einn skattinn enn, heldur gamlan kunningja sem er búinn að vera á dagskrá þingsins síðan 1978 og kom fyrst til sögunnar þegar hv. núv. forseti deildarinnar var formaður fjh. - og viðskn. á þinginu 1978 -- 1979. Þeir ágætir þingmenn Sjálfstfl. hér í deildinni, sem gegnt hafa formennsku í fjh. - og viðskn. á síðustu 12 árum, hafa mælt fyrir samþykki þessa skatts á sínum tíma og vona ég að það takist nú einhugur í deildinni.
    Hér er ég þess vegna í því hefðbundna hlutverki fjmrh. síðustu 12 ára að mæla fyrir því að þessi skattur sé framlengdur, en hann er ólíkur öðrum sköttum að því leyti til að á ári hverju hefur þurft að flytja um hann sérstakt frv.
    Skatturinn hefur, eins og ég sagði áðan, verið lagður á árlega síðan árið 1979. Í ár hefur álagningin og innheimtan farið eftir lögum nr. 127/1989. Í endurskoðaðri tekjuáætlun fyrir árið 1990 er áætlað að innheimtar tekjur af skattinum verði um 445 millj. kr. Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1991 er gert ráð fyrir að framhald verði á þessari skattlagningu og er þetta frv. þess vegna flutt. Er það efnislega alveg sammála þeim lögum sem nú eru í gildi nr. 127/1989. Hér er því ekki um að ræða neina breytingu á þeirri skipan sem gilt hefur á þessu ári.
    Í tekjuáætlun fjárlagafrv. fyrir árið 1991 er gert ráð fyrir að álagning skattsins nemi um 535 millj. kr. en innheimtan 482 millj. kr.
    Virðulegi forseti. Ég tel ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þennan gamla kunningja, en mælist til þess að að lokinni 1. umr. verði málinu vísað til hv. fjh. - og viðskn. og 2. umr.