Umferðarlög
Miðvikudaginn 07. nóvember 1990


     Flm. (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 50/1987, með síðari breytingum. Í frv. felst að Umferðarráði er falin stefnumörkun í umferðaröryggismálum, frumkvæði að aðgerðum og að vinna að stefnumarkandi áætlun um forvarnaaðgerðir til fjögurra ára í senn. Dómsmrh. er ætlað að leggja fyrir Alþingi till. til þál. um fjögurra ára áætlun í umferðaröryggismálum ásamt skýrslu og lagt er til að ákveðið hlutfall af sektargreiðslum renni til forvarnastarfa í umferðaröryggismálum.
    Virðulegi forseti. Greinar frv. hljóða svo:
 ,,1. gr. Við 112. gr. laganna bætast þrír nýir stafliðir svohljóðandi:
    k. að móta stefnu í umferðaröryggismálum,
    l. að hafa frumkvæði að aðgerðum til að bæta umferðaröryggi,
    m. að vinna stefnumarkandi áætlun til fjögurra ára í senn um forvarnaaðgerðir á sviði umferðaröryggismála sem lögð skal fyrir dómsmrh.
    2. gr. Á eftir 115. gr. laganna komi tvær nýjar greinar svohljóðandi:
    a. (116. gr.) Dómsmrh. skal á fjögurra ára fresti leggja fyrir Alþingi till. til þál. um áætlun í umferðaröryggismálum að fengnum tillögum Umferðarráðs.
    Í áætluninni komi fram sundurliðuð framkvæmdaáform og áætlaðar fjárveitingar til einstakra verkefna í umferðaröryggismálum.
    Áætlun þessa skal endurskoða á tveggja ára fresti og í tengslum við það skal ráðherra leggja fram á Alþingi skýrslu um stöðu og árangur í umferðaröryggismálum.
    b. (117. gr.) Þriðjungur sektargreiðslna vegna umferðarlagabrota skal renna til forvarnastarfa í umferðaröryggismálum, sbr. 116. gr.
    3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.``
    Verkefni Umferðarráðs eru tilgreind í 10 stafliðum í 112. gr. umferðarlaganna og vil ég leyfa mér að lesa þá grein upp hér, með leyfi forseta:
    ,,Dómsmrh. skipar Umferðarráð til þriggja ára í senn og skal hlutverk þess vera:
    að beita sér fyrir bættum umferðarháttum,
    að beita sér fyrir því að haldið sé uppi umferðarfræðslu,
    að vera fræðsluyfirvöldum, umferðarnefndum sveitarfélaga og samtökum er vinna að bættri umferðarmenningu til hjálpar og ráðuneytis eftir því sem óskað er og aðstæður leyfa,
    að standa fyrir útgáfu fræðslurita og bæklinga um umferðarmál og hafa milligöngu um útvegun kennslutækja og annarra gagna til nota við fræðslustarfsemi,
    að hafa milligöngu um umferðarfræðslu í Ríkisútvarpi og öðrum fjölmiðlum,
    að sjá um að á hverjum tíma sé til vitneskja um fjölda, tegund og orsakir umferðarslysa í landinu með samræmdri slysaskráningu lögreglu, slysadeilda, sjúkrahúsa og tryggingarfélaga sem ná yfir landið allt,
    að beita sér fyrir könnunum á umferðarháttum og öðru er umferð varðar,

    að vera stjórnvöldum og öðrum til ráðuneytis um umferðarmál,
    að fylgjast með þróun umferðarmála erlendis og hagnýta reynslu og þekkingu annarra þjóða á því sviði,
    að leitast við að sameina sem flesta aðila til samstilltra og samræmdra átaka í umferðarslysavörnum og bættri umferðarmenningu.
    Umferðarráði ber að hafa samvinnu við þá aðila, félög, samtök og stofnanir sem fjalla um umferðarmál í landinu og láta sig umferðaröryggi varða. Umferðarráði ber árlega að efna til opinnar ráðstefnu um umferðaröryggismál.``
    Á eftir þessari upptalningu er eins og fram hefur komið lagt til að komi þrír nýir stafliðir.
    Virðulegi forseti. Umferðarslys eru skelfileg. Þau eru vandamál hjá hverri þjóð. Þau eru alvarlegt vandamál hjá okkur hér á Íslandi og há tíðni þeirra er blettur á okkar velferðarþjóðfélagi. Hér á landi slösuðust yfir 800 manns á síðasta ári í umferðinni og á hverju ári látast að meðaltali 25 manns í umferðarslysum.
    Þegar við berum okkur saman við Norðurlandaþjóðirnar kemur í ljós að í umferðarmálum stöndum við þeim langt að baki, a.m.k. ef við notum samanburðartölur um slasaða og látna í umferðinni sem mælikvarða. Nýverið kom út Nordisk statistisk aarsbok 1989 -- 1990 sem gefin er út á vegum ráðherranefndar Norðurlanda. Þar getur m.a. að líta samanburðartölur um umferðarslys vegna áranna 1984 -- 1988. Öll þessi ár erum við með hæstu tölur yfir slasaða í umferðinni. Þannig eru tölur miðað við 100 þús. íbúa 371 slasaðir og látnir á Íslandi árið 1988 á móti 244 í Danmörku, 254 í Finnlandi, 269 í Noregi og 280 í Svíþjóð. Þetta er með öllu óásættanlegt fyrir okkur. Okkur ber að taka á þessum vanda af festu.
    Í okkar norræna samstarfi hafa umferðaröryggismál fengið aukið vægi. Þannig hefur verið samþykkt framkvæmdaáætlun um aukið umferðaröryggi á vegum Norðurlandaráðs sem hefur það að markmiði að í hverju Norðurlandanna verði umferðaröryggisstarf aukið og bætt þannig að ná megi niður tölum slasaðra og látinna í umferðinni. Í framkvæmdaáætlun sem verið er að vinna fyrir árið 1992 -- 1994
um öruggari umferð á Norðurlöndum koma fram þau markmið sem hvert landanna hefur sett sér. Þar kemur fram að í Danmörk hefur verið sett fram áætlun til 12 ára sem miðar að því að slysum verði fækkað um 15% á tímabilinu 1989 -- 1991, um 15% til viðbótar á tímabilinu 1992 -- 1994 og enn um 10 -- 15% á næstu sex árum þar á eftir. Í Finnlandi var sett á laggirnar sérstök þingnefnd árið 1989 og er henni ætlað að koma með tillögur til að bæta umferðaröryggi og skila skýrslu vorið 1991. Þannig hefur norska Stórþingið einnig samþykkt ákveðin markmið um að ná niður slysatölu þrátt fyrir mikla aukningu í umferðinni þar. Í Svíþjóð miðast áætlanir við það markmið að tala látinna og slasaðra í umferðinni lækki um 4% á ári og að árið 2000 verði tala látinna í umferðinni í hæsta lagi 600 en var 904 á árinu 1989. Fjölda slasaðra á jafnframt að fækka um þriðjung á sama tíma. Í norrænu framkvæmdaáætluninni kemur fram að sérstakt opinbert markmið eða framkvæmdaáætlun liggur ekki fyrir hérlendis þótt á vegum opinberra aðila sé víða unnið að auknu umferðaröryggi. Það kemur einnig fram að Umferðarráð vinnur að samræmingu umferðaröryggismála og getið er nýrrar lagasetningar.
    Umferðarráð vinnur nú að áætlun í umferðarmálum, samanber framkvæmdaáætlun Norðurlandaráðs, en með þessu frv. er m.a. lagt til að lögfesta slíka áætlanagerð og taki hún til fjögurra ára í senn. Oft hefur náðst frábær árangur í forvörnum þegar sérstakt átak hefur verið gert. Má þar nefna árið 1968 þegar skipt var yfir í hægri umferð og norræna umferðaröryggisárið 1983. Á Alþingi var samþykkt í mars 1987 þál. um þjóðarátak í umferðaröryggi flutt af hv. þm. Salome Þorkelsdóttur ásamt fulltrúum allra flokka á Alþingi, en þingmaðurinn Salome Þorkelsdóttir hefur látið umferðarmál mjög mikið til sín taka á Alþingi. Var í framhaldi af því skipuð nefnd sem starfaði á árinu 1988 og fylgdi hún m.a. eftir breytingu á umferðarlögunum. Það hefur sýnt sig að þegar umferðaráróður er mikill og stöðugur þá skilar það sér í umtalsverðri fækkun umferðarslysa.
    Þrátt fyrir að ríkisvaldið njóti mikilla beinna tekna af umferðinni í formi skatta, en sú upphæð er talin nema um 3 milljörðum kr. á ári miðað við núgildandi verðlag, eru áherslur hins opinbera á forvarnastarf í lágmarki.
    Til Umferðarráðs sem, eins og hér hefur komið fram, ber að annast forvarnastarf í umferðarmálum runnu á síðasta ári um 28 millj. kr. Þar af fóru um 8 millj. kr. beint í umferðarskólann Ungir vegfarendur og svipaðri upphæð var varið til reksturs skrifstofu, þar með talið launa fastra starfsmanna. Því er ljóst að það er ekki há fjárupphæð sem Umferðarráð hefur úr að spila til að sinna hlutverki sínu.
    Þess ber að geta hér að sveitarfélögin fjármagna umferðarskólann að 3 / 4 hlutum og að menntmrn. veitir u.þ.b. 3 millj. kr. til forvarnastarfa í skólum landsins. En sú upphæð fer að mestum hluta í launakostnað námsstjóra í umferðarfræðslu auk ferðakostnaðar hans. Þá kosta tryggingafélög einnig að einhverju marki umferðarfræðslu í skólum.
    Árlega kosta umferðarslysin samfélagið milljarða króna. Hefur þannig verið reiknað út að eitt dauðaslys sé í samfélagslegum kostnaði metið í krónum talið um 10 millj. og alvarlegt slys sem hefur í för með sér varanleg örkuml um 40 -- 50 millj. kr. Þá er ekki nefndur sá mannlegi harmleikur sem óneitanlega fylgir slíkum slysum og aldrei verður metinn til fjár. Ég vil draga það sérstaklega fram að þó hér sé settur fram áætlaður samfélagslegur kostnaður við umferðarslysin til áréttingar því að meira fjármagni sé veitt til forvarna þá er það fyrst og síðast skylda okkar að reyna að afstýra þeim hörmungum sem alvarleg umferðarslys eru fórnarlambanna og aðstandendanna vegna. Forvarnastarf verður að efla til að árangur náist í baráttunni við umferðarslysin en um helmingur allra þeirra sem slasast er undir 25 ára aldri og þriðjungur á aldrinum 17 -- 20 ára. Öflugt og markvisst

forvarnastarf í umferðarmálum skilar árangri þegar til lengri tíma er litið. Fórnarlömbum umferðarslysanna fækkar og þar með lækka útgjöld í heilbrigðis-, dóms- og félagsmálum.
    Til þess að unnt sé að ná árangri verður að tryggja fjármagn til þessa mikilvæga málaflokks. Hér er því lagt til að fjármagn komi frá þeim er umferðarlögin brjóta. Sektir vegna umferðarlagabrota eru ákvarðaðar með þrennum hætti, af lögreglustjóra, með sátt fyrir dómi og með dómi. Lögreglustjóri ákveður sektir samkvæmt viðmiðunarreglum ríkissaksóknara. Í yfirliti frá Ríkisendurskoðun kemur fram að samkvæmt upplýsingum innheimtuembættanna er varlega áætlað að 3 / 4 hlutar allra dómsátta og dómsekta séu vegna umferðarlagabrota. Samkvæmt því nema innheimtar umferðarlagasektir árið 1989 liðlega 112 millj. kr. Hér er lagt til að þriðjungur þessara sekta renni til forvarnastarfa.
    Í grg. með frv. hef ég sett fram að til vara komi til greina að leggja sérstakt álag á sektir og renni álagið, t.d. 30% álag, óskert til forvarnastarfa í umferðaröryggismálum. Ég geri mér grein fyrir að það er umdeilt bæði að marka málum ákveðna tekjustofna og eins mundi einhver gagnrýna að Umferðarráð eigi að njóta tekna af brotum. Varðandi fyrra atriðið má benda á að hlutfall af skemmtanaskatti rennur til áfengis - og fíkniefnavarna og hluti gjalds af einkasöluvörum rennur í svokallaðan gæsluvistarsjóð. Varðandi síðara atriðið er það skoðun flm. að réttlætanlegt sé að þeir sem umferðarlög brjóta eigi að leggja sitt af mörkum til forvarnastarfa. Sérstakt álag á umferðarlagasektir er frá því sjónarmiði líka réttlætanlegt, ekki síst þar sem það er skoðun margra er að þessum málum vinna að umferðarsektir séu hér fremur lágar.
    Virðulegur forseti. Það þarf hugarfarsbreytingu hjá okkur varðandi umferðarmálin. Alþingi hefur látið sig þessi mál varða og á að láta þau enn meira til sín taka. Þess vegna er hér lagt til að dómsmrh. leggi fyrir Alþingi sérstaka áætlun í umferðaröryggismálum til fjögurra ára í senn og skýrslu um hvernig til hefur tekist á tveggja ára fresti. Með þessu á að vera tryggt að Alþingi fylgist reglulega með framvindu mála og marki stefnu í þessum mikilvæga málaflokki.
    Virðulegi forseti. Að lokinni umræðu legg ég til að málinu verði vísað til allshn.