Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson) :
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. flm. fyrir flutning þessa máls. Það fer ekki á milli mála að hér er hreyft mjög mikilsverðu máli, þýðingarmiklu, ekki síst í okkar samtíð. Sú var tíð að sjóslys voru mikil við Ísland og mannfórnir á þeim vettvangi voru mikill harmleikur víða um land. Nú er það hins vegar umferðin sem tekur stærsta tollinn. Þess vegna er það áreiðanlega rétt sem flm. leggur hér áherslu á að hér er mikið verkefni fyrir höndum.
Mér sýnist þetta frv. á þann veg upp byggt að það taki einmitt á því á þann veg að árangurs megi vænta. Frv. gerir ráð fyrir því að Umferðarráð fái aukið verkefni um mótun forvarnastarfsins. En eins og kom fram í máli flm. hefur verkefni Umferðarráðs fyrst og fremst verið fræðsla og upplýsingastarfsemi. Hér fengi ráðið nýtt verkefni og hálfu þýðingarmeira. Í annan stað leggur flm. til að annað hvert ár fái Alþingi yfirlitsskýrslu um þennan mikilvæga málaflokk, hvernig gangi, hvernig miði. Áætlun verði gerð til fjögurra ára. Það held ég að sé skynsamlegt. En í þriðja lagi leggur flm. til það sem skiptir nú kannski ekki síst máli, að þessu starfi verði fenginn ákveðinn skilyrtur tekjustofn. Ef frv. yrði að lögum sýnist mér að þar væri um verulega tekjuöflun að ræða. Því það er náttúrlega augljóst mál að árangursríkt starf af þessu tagi verður ekki unnið á annan veg en þann að tekjustofn sé öruggur.
Mér sýnist sem sagt að flm. leggi á það áherslu sem þýðingarmest er að þessi málaflokkur fái í framkvæmd aukið vægi og til þess vil ég hvetja.