Varaflugvöllur vegna alþjóðaflugs
Fimmtudaginn 08. nóvember 1990


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
    Hæstv. forseti. Ég fagna áhuga hv. fyrirspyrjanda á þessu máli sem bæði nú og áður hefur komið fram. Ég held að ég geti í raun og veru svarað spurningu hv. fyrirspyrjanda, þeirri sem hann bar fram hér síðast, með einu, einföldu og stuttu jái. Ég tel að þær ráðstafanir sem voru í raun og veru á okkar valdi hafi þegar verið gerðar í þessum efnum.
    Það urðu kaflaskipti í meðferð þessara mála í framhaldi af ríkisstjórnarskiptum haustið 1988 eins og á fleiri sviðum. Fram að þeim tíma höfðu í raun og veru ekki verið í undirbúningi neinar ráðstafanir af hálfu íslenskra stjórnvalda til þess að leysa þetta svokallaða varaflugvallarmál á okkar forsendum. Hins vegar biðu menn eftir því að hugsanlega kæmi til þess einhvern tíma um miðjan tíunda áratuginn að erlend ríki reistu hér herflugvöll sem unnt væri að nota sem varaflugvöll einnig.
    Ég hóf þegar viðræður við Flugmálastjórn á haustmánuðum 1988, skrifaði Flugmálastjórn bréf í byrjun desember og óskaði eftir tillögum og skýrslu frá henni um þetta efni eins og segir í bréfi frá 7. des.: ,,Í framhaldi af samtölum undafarna daga ítreka ég óskir um að unnar verði tillögur um uppbyggingu flugvallar eða flugvalla sem þjónað geti sem varaflugvöllur eða flugvellir fyrir millilandaflug okkar Íslendinga og allt almennt farþegaflug á okkar slóðum.``
    Flugmálastjórn brást vel við og skjótt og í janúar 1989 kom út skýrsla á vegum Flugmálastjórnar í framhaldi af ósk minni frá í byrjun desember þar sem gerðar voru tillögur um ráðstafanir til að leysa þetta mál. Þær tillögur tók ég síðan upp í ríkisstjórn og í febrúarmánuði 1989 samþykkti ríkisstjórnin tillögur mínar um ráðstafanir í svonefndu varaflugvallarmáli sem fólu í sér í fyrsta lagi að auka þjónustu, viðbúnað og tækjakost á Akureyrarflugvelli þannig að hann væri betur í stakk búinn til að þjóna því varaflugvallarhlutverki sem hann reyndar þá þegar gerði og hefur lengi gert. Í öðru lagi að við allar framkvæmdir á Egilsstaðaflugvelli, sem þá voru hafnar, yrði tekið mið af því að lagður yrði flugvöllur miðað við ýtrustu afkastagetu tveggja hreyfla þotna og þarfir alls almenns farþegaflugs. M.a. yrði athugað með útvegun lands til þess að hægt væri að lengja flugbrautina. Öll hönnun burðarþols og annarra þátta við uppbyggingu tæki mið af því að flugvöllurinn þyldi snertiþunga þyngstu flugvéla o.s.frv.
    Þessar ráðstafanir hafa síðan gengið eftir. Það hefur þegar verið aukinn nokkuð tækjakostur á Akureyrarflugvelli og þyrfti að halda áfram á þeirri braut og núna liggja fyrir fjvn. tillögur ráðuneytis og flugráðs um að auka rekstur og þjónustu á vellinum þannig, og helst þannig, að flugvöllurinn verði opinn allan sólarhringinn. Það er í raun og veru forsenda þess að hann nýtist sem skyldi sem varaflugvöllur að flugvöllurinn sé opinn allan sólarhringinn og brautarskilyrðum sé jafnan haldið uppi með þeim hætti að ekki taki nema tiltölulega mjög stuttan tíma að undirbúa

völlinn fyrir lendingu stórra flugvéla.
    Þegar svo Egilsstaðaflugvöllur kemur í gagnið, þ.e. sá áfangi sem nú er í byggingu upp á 2000 metra lengd, í síðasta lagi um mitt ár 1992 vona ég, verður að sjálfsögðu endurmetið hvernig haga skuli rekstri annars vegar á Egilsstöðum og hins vegar á Akureyri sem þá verða tveir aðalvaraflugvellirnir í þessu sambandi.
    Ég vil því leyfa mér að svara þannig að með þessum ráðstöfunum og reyndar því sem til viðbótar er í gangi varðandi Húsavíkurflugvöll og lengingu þar í 2000 metra og ákvörðun um að flýta lagningu slitlags á Sauðárkróksflugvelli, þá séu allar aðstæður í raun og veru að gerbreytast í þessum efnum og innan fárra ára verði þarna frekar um að ræða þrjá eða fjóra flugvelli heldur en einn.
    Ég tel mjög mikilvægt að haldið verði við þá stefnumörkun sem ríkisstjórnin afgreiddi fyrir sitt leyti í febrúarmánuði 1989, að í beinu framhaldi af núverandi framkvæmdum á Egilsstaðaflugvelli verði sá völlur lengdur í 2700 metra eða þar um bil. Þá mun að því loknu í raun og veru verða svo vel fyrir þessum hlutum séð sem nokkur kostur er og nokkur raunhæf ástæða er til.
    Þá vísa ég til þess að þegar þannig væri komið gætu allar tegundir flugvéla sem mér eru kunnar lent á vellinum nema geimskutlan, en hins vegar mundu einhverjar takmarkanir vera á því að allra stærstu flugvélar gætu hafið sig til flugs fulllestaðar af eldsneyti og vörum eða farþegum. Það eru hins vegar takmarkanir sem engin minnsta ástæða er til að hafa áhyggjur af þó að það gæti hent sig að júmbóþotur eða aðrar slíkar stærstu flugvélar yrðu að takmarka eitthvað hleðslu sína þegar þær færu aftur í loftið frá slíkum varaflugvelli. Það er auðvitað ekkert vandamál svo fremi sem allar vélar geti lent á vellinum.
    Ég vil því leyfa mér að segja að með þeirri stefnubreytingu sem varð við tilkomu núverandi ríkisstjórnar var horfið frá því að mæna á og bíða eftir bjargræðinu af hálfu erlendra hervelda en þegar í stað hafnar aðgerðir til að leysa þessi mál á okkar forsendum hefur mikill tími sparast og af þeim sökum horfir núna til þess að þessi mál leysist með fullnægjandi hætti á allra næstu árum.