Jón Kristjánsson :
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli og hæstv. ráðherra svörin. Erindi mitt í þessa umræðu er aðeins að taka undir það og hvetja til þess að þeirri stefnumörkun í flugmálum sem er nú í þessum varaflugvallarmálum verði haldið áfram og henni verði haldið til streitu. Ég hef ekkert á móti því að útbúa Akureyrarflugvöll betur að tækjum og mannafla og tel að það þurfi ekkert að koma í veg fyrir að Egilsstaðaflugvöllur verði vel útbúinn þegar hann kemst í gagnið.
Ég vil líka undirstrika í flugvallarmálum að útbúnaður og mannafli á flugvöllum eykur flugöryggið innan lands ekki síður en í millilandaflugi. Það er náttúrlega mjög mikið öryggi fyrir flugið í heild, allt það flug sem fer hér fram, að í hverjum landshluta sé eins vel útbúinn flugvöllur og völ er á. Ég minni á sjúkraflug og annað erfitt flug í þessu sambandi sem við þekkjum allir vel sem búum úti á landsbyggðinni.
Ég vildi aðeins minna á þennan þátt en að öðru leyti taka undir það að þeirri stefnumörkun sem er nú á þessum málum verði haldið til streitu og styð hana eindregið.