Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
Hæstv. forseti. Ég kannast nú betur við mig núna þegar umræður um varaflugvallarmálið hníga í þennan farveg. En hv. 1. þm. Suðurl. las nú meira út úr mínum orðum en ég sagði. Ég lýsti fyrst og fremst þeirri stefnumörkun sem var afgreidd í byrjun árs 1989 um að hefja aðgerðir og leysa þetta varaflugvallarmál á okkar forsendum hvað sem öðru liði. Það getur hver og einn túlkað það á þann hátt sem honum sýnist en það er auðvitað alveg ljóst að þá var mörkuð ný stefna í þessum efnum. Það var ákveðið að fara í aðgerðir og ráðstafanir til að leysa þetta mál á okkar forsendum, af okkur sjálfum, en bíða ekki eftir því að aðrir kynnu e.t.v. að gera það fyrir okkur einhvern tíma síðar.
Þessi stefnubreyting og þessi tímamót verða m.a. í sögunni mörkuð við það að upp frá því og frá og með þeim tíma skrýddust skýrslur Flugmálastjórnar rauðri kápu og hafa gert svo síðan. En þessi skýrsla kom sem sagt út í janúar 1989 og sú fyrsta sinnar tegundar í kápu af þessu tagi.