Varaflugvöllur vegna alþjóðaflugs
Fimmtudaginn 08. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Hv. 1. þm. Suðurl. setur forseta nú í nokkur vandræði. Samkvæmt þingsköpum hafa aðrir þingmenn en fyrirspyrjandi og ráðherra leyfi til að gera athugasemd, eins og þar segir. Fari forseti út í það að leyfa fleiri athugasemdir er þinghaldið komið út fyrir lög um þingsköp. Ég vil nú mælast til við hv. 1. þm. Suðurl. að hann sætti sig við að hafa þegar notað þennan rétt sinn. ( ÞP: Samkvæmt þingsköpum mega menn bera af sér sakir.) Það er rétt hjá hv. 1. þm. Suðurl. Telji hann að hann hafi verið borinn sökum, þá leyfi ég hér með að hann beri af sér sakir.