Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika það að það er á engan máta á annan veg í þessum viðræðum en öðrum. T.d. fer hæstv. utanrrh. með málefni sjávarútvegs, iðnaðar og fjölmargs fleira í viðræðum um Evrópskt efnahagssvæði. Þetta er nákvæmlega eins og það er, samkvæmt íslenskum lögum. Ég þarf ekki að endurtaka það sem ég sagði að þessu leyti. Mér fannst hv. þm. vilja tortryggja þetta. Það finnst mér ekki vera réttmætt.
Ég vil taka undir það með hv. þm. að hér er um mjög viðkvæmt mál að ræða. Ég lagði áherslu á það að þetta er m.a. unnið í samráði við fulltrúa Stéttarsambands bænda og endurskoðun á búvörusamningi og mér finnst vel koma til greina og mjög eðlilegt að t.d. landbúnaðarnefndir þingsins geti fylgst með framkvæmd eins viðkvæms máls.