Jóhann Einvarðsson :
Hæstv. forseti. Níels Árni Lund varaþingmaður flutti fsp. til heilbrrh. um nýtingu Bláa lónsins við Svartsengi, eins og kemur fram á þskj. 47. Fsp. er svohljóðandi:
,,Hvað hefur verið gert til að fylgja eftir ályktun Alþingis um könnun á fjölþættri nýtingu Bláa lónsins við Svartsengi?``
Ályktun Alþingis sem Níels Árni er að vitna til var samþykkt hér á Alþingi 5. apríl sl. og hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera könnun á möguleikum á uppbyggingu við Bláa lónið við Svartsengi með það að markmiði að nýta þá möguleika sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Einkum skal beint sjónum að hvernig megi nýta lækningamátt lónsins fyrir Íslendinga og útlendinga, svo og að fyrirhuguð starfsemi tengist ferðamannaþjónustu almennt.
Við þetta starf verði haft náið samstarf við Hitaveitu Suðurnesja, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Grindavíkurbæ, Ferðamálasamtök Suðurnesja, landlæknisembættið, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga og aðra þá sem málinu kunna að tengjast.``
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um tilgang og nauðsyn þess að framfylgja þessari ályktun sem Alþingi hefur samþykkt. Ég held að flestir sem hér eru inni þekki það vel til Bláa lónsins og þeirrar trúar að almenningur sem sækir það títt, ekki síst húðsjúklingar eða sjúklingar með húðmein, telur sig hafa mikið gagn af þessu. Það kemur reyndar líka fram í frumrannsókn sem landlæknisembættið beitti sér fyrir að mikill meiri hluti þeirra sem rætt hefur verið við telur að þetta sé til mikilla bóta vegna meinsemda þeirra.
Á sl. ári má reikna með að á milli 50 og 60 þús. manns hafi komið þarna. Þarna er ófullkomin aðstaða fyrir þá sem sækja böð í lóninu. Þar er lítið baðhús sem Hitaveita Suðurnesja byggði fyrir nokkrum árum en þyrfti að sjálfsögðu að vera miklu meiri ef ætti að vera hægt að taka á móti þeim fjölda sem menn trúa að vilji koma þarna. Þá á ég bæði við innlenda og erlenda aðila.
Áður en gengið er til þess að markaðssetja svona lón, eins og Bláa lónið er, þarf náttúrlega að liggja ljóst fyrir, vegna fyrirspurna sem þegar liggja fyrir um það, að það sé bót að þessu fyrir sjúklinga og heilbrigðisyfirvöld mæli með því að sjúklingar noti þessa aðstöðu.
Ég hef fregnir af því að vegna ástandsins sem núna er fyrir botni Miðjarðarhafsins hafi ýmis erlend samtök psoriasis- og exemsjúklinga beint fyrirspurnum hingað um það vegna þess að þau hafa styrkt og að hluta til kostað ferðir meðlima sinna til Dauðahafsins, svo dæmi yrði tekið, og núna vilji þeir færa sig til vegna þess ástands sem ríkir fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Ég skal ekki orðlengja þetta, hæstv. forseti. Fsp. liggur nokkuð ljóst fyrir og ég vænti þess að ráðherra gefi svör við henni hér á eftir.