Málefni geðsjúkra afbrotamanna
Fimmtudaginn 08. nóvember 1990


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
    Virðulegur forseti. Það er aðeins örstutt. Ég skil það að mönnum er nokkuð heitt í hamsi sumum yfir því ástandi sem í þessum málum ríkir og það hefur lítið gerst á undanförnum árum. Ég get auðvitað ekki svarað mikið fyrir það sem hefur gerst í þessum ráðuneytum og á vettvangi stjórnvalda á undanförnum árum fyrir 1987, en síðan þá hef ég reynt að vinna að þessum málum, ítrekað haldið fundi með þeim sem ég tel að ættu að geta aðstoðað við lausn þeirra. Það er líka rétt hjá hv. þm. Salome Þorkelsdóttur að nefndir leysa ekki mál. En það er nú einu sinni svo að þeir sem sitja í ráðherrastólum á hverjum tíma þurfa að hafa sína vinnumenn og aðstoðarmenn og ráðgjafa og úr nefndarálitunum ber okkur síðan að reyna að vinna. Það mun ég reyna að gera þegar þessi nefnd hefur endanlega lokið störfum, sem ég hygg að muni geta orðið alveg á næstunni, til að koma þessum málum betur fram en er í dag.
    Varðandi það sem kom fram hjá hv. 5. þm. Vesturl. um að aðstæður væru fyrir hendi, þá vil ég ítreka það aftur að það þýðir auðvitað að við yrðum að setja til hliðar aðra þjónustu. Ef við tökum þessa þjónustu eða húsnæði undir slíka þjónustu inn á sjúkrahúsunum yrði núverandi starfsemi sem þar er fyrir að víkja fyrir þeirri áherslu sem við teldum að þarna þyrfti að koma í staðinn. Aðstæðurnar eru ekki fyrir hendi að öðru leyti en á þennan hátt. Og þegar talað er um að sumir læknar standi í vegi er það kannski fyrst og fremst af þessum ástæðum. Þeir segja: Við erum hér með aðra þjónustu. Þjónusta af því tagi sem hér er verið að tala um fyrir geðsjúka afbrotamenn eða öryggisgæslumenn fellur ekki að þeirri þjónustu sem við erum með hér. Við viljum ákveða það sjálfir hvenær sjúklingar eru teknir inn á sjúkrahúsin og hvenær þeir eru útskrifaðir af sjúkrahúsunum en ekki láta dómstóla eða dómsmálayfirvöld segja okkur fyrir verkum í því efni. --- Þetta er kannski ágreiningurinn í hnotskurn. Mér hefur hins vegar fundist þessi sjónarmið vera of stíf og trúi því ekki að það sé ekki hægt að leysa þessi mál. Ég vænti þess og vonast sannarlega til þess að það takist og viðunandi lausn fáist því ástandið í dag er óviðunandi.