Fyrirspyrjandi (Anna Ólafsdóttir Björnsson) :
Virðulegi forseti. Ég hef í framhaldi leyft mér að bera fram aðra fyrirspurn til hæstv. félmrh. um vernd kvenna vegna barneigna o.fl. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Hyggst félmrh. beita sér fyrir því að Íslendingar gangist undir skuldbindingar 8. gr. félagsmálasáttmála Evrópu um sérstaka vernd kvenna í starfi í sambandi við barnsburð og önnur tilvik eftir því sem við á?``
Þessi grein félagsmálasáttmála Evrópu hljóðar svo, með leyfi forseta, svo ég gefi til kynna hvert efnið er:
,,Í því skyni að tryggja að réttur vinnandi kvenna til verndar sé raunverulega nýttur skuldbinda samningsaðilar sig til:
1. Að sjá um að konur fái frí frá störfum í samtals a.m.k. 12 vikur fyrir og eftir barnsburð og sé það gert annaðhvort með fullum launum, nægum greiðslum frá almannatryggingum eða styrk úr opinberum sjóðum.
2. Að álíta ólöglegt að vinnuveitandi segi konu upp starfi meðan hún er fjarverandi í barnsburðarleyfi eða segi henni upp með fyrirvara þannig að fyrirvarinn renni út á slíkum fjarvistartíma hennar.
3. Að sjá um að mæður sem hafa ungbörn á brjósti skuli eiga rétt á nægum tíma í því skyni.
4. a. Að hafa hönd í bagga með næturvinnu kvenna í iðnaði. b. Að banna ráðningu kvenna við námugröft neðan jarðar og eftir því sem við á við öll önnur störf sem ekki hæfa þeim vegna þess að þau eru í eðli sínu hættuleg, óholl eða erfið.``