Karl Steinar Guðnason :
Frú forseti. Það kemur mér á óvart að hv. flm. virðist misskilja sína eigin tillögu en hún fjallar, eins og fyrirsögnin segir hér, ,,um forgang Vestfirðinga til samninga við Grænlendinga``, sem þýðir náttúrlega það að þeir eigi að hafa forgang umfram aðra Íslendinga til að semja við Grænlendinga, það mundi merkja það á íslensku máli yfirleitt.
Ég tel og að ég hafi ekki gert honum upp neinar skoðanir því hann lætur að því liggja, eins og ég sagði réttilega, að það sé sjálfsagt að útlendingar vinni hér og ég stend við það að textinn hljóðar svo. En ég tel aftur á móti að menn eigi að vinna að því að hafa sem allra fæsta útlendinga í fiskvinnslunni, eigi heldur að reyna að freista þess að íslenskt verkafólk fái mannsæmandi laun til þess að lifa af. Þá hlýtur eitthvað annað að vera að ef það er ekki það að fólk fæst ekki til vinnu þar í fiskiðnaði. Ég er sannfærður um að þeir útlendingar sem þarna vinna eru dýrari fyrir fyrirtækin en íslenskir.
Ég tel að það eigi að vera frelsi í þessum viðskiptum, frelsi eins og hv. flm. er annað slagið að boða. Það á að vera frelsi fyrir menn að skipta við okkur og okkur við aðra. Það á ekki að átthagabinda það. Það getur aldrei orðið hagkvæmt fyrir hvorugan aðilann. Ég tel reyndar að það sé mjög óhagkvæmt fyrir Grænlendinga að vera bundnir við einn landshluta og þeir telja það sjálfir.
Það var rætt um fjarlægð á milli landa. Menn skyldu gera sér grein fyrir því að þrátt fyrir að það sé styst milli stranda frá Vestfjörðum þá er byggðin næstum því öll vestan megin á Grænlandi og atvinnulífið er mestallt vestan megin. Í hlutfalli við það er fjarlægðin svo afar lítið styttri en menn skyldu ætla. Fiskimiðin eru sameiginleg, það er alveg rétt og Vestfirðingar eiga að njóta þessa alveg eins og aðrir en ekki hafa neinn forgang.
Ég er stuðningsmaður þess að Vestfirðingar njóti í fyllsta mæli allra þeirra viðskipta sem þeir geta mögulega haft. En að bera fram tillögu hér um það að einhver einn landshluti skuli hafa forgang fram yfir aðra finnst mér með ólíkindum og þess vegna er ég ósammála þessari tillögu. Ég er mjög sammála því að auka viðskipti við Grænlendinga og efla þau sem kostur er á. Þeir munu geta fengið alla þá þjónustu sem þeir vilja hvarvetna á landinu. Ég bendi á það enn einu sinni að þau fornu lög, þau gömlu úreltu lög sem ákveða að ráðherrar geti ákveðið hvert skip fer frá Grænlandi, ber að afnema. Grænlendingar óska mjög eftir því að geta fengið að ráða því hvar þeir landa. Það er kallað frelsi, sem hv. flm. boðar annað slagið, eða gerði.