Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson) :
Hæstv. forseti. Ég hef ekki tök á því að gera þær athugasemdir sem vert væri við mál hv. 4. þm. Reykn. Ég vil aðeins segja að mér finnst það kasta tólfunum þegar hv. þm. segir ítrekað og heldur fram ítrekað úr þessum ræðustól að ég sé einhver áhugamaður fyrir því eða það sé mín stefna að það eigi að notast við erlent verkafólk á Vestfjörðum. Ég mótmæli þessu og vænti þess að þingheimur taki meira mark á því sem ég sjálfur segi um mína eigin skoðun og stefnu í þessu máli en því sem ranglega er borið fram af hv. 4. þm. Reykn.