Eftirlaunasjóðir einstaklinga
Mánudaginn 12. nóvember 1990


     Flm. (Guðni Ágústsson) :
    Hæstv. forseti. Ég hef hér leyft mér að leggja fram þáltill. sem ég flyt ásamt hv. þm. Alexander Stefánssyni og Stefáni Guðmundssyni um eigin eftirlaunasjóði einstaklinga. Till. hljóðar svo:
    ,,Alþingi ályktar að skipa nefnd sem fái það hlutverk að móta reglur um eigin eftirlaunasjóði allra landsmanna og gera tillögur um hvernig hægt væri að gera upp réttindi launþega í núverandi lífeyrissjóðum.``
    Þessi tillaga var flutt á 112. löggjafarþingi, síðasta þingi, en varð þá ekki útrædd.
    Oft er sagt að við stjórnmálamenn séum uppteknir við að ræða liðna tíð eða vandamál líðandi stundar. Hér er þó flutt mál sem snýr beint að framtíðinni, einu stærsta máli sem snertir hagsmuni, ekki síst þess fólks sem fætt er eftir síðari heimsstyrjöld. Málefni sem kallar á það að menn þori að taka á ákveðnum vandamálum til að forða miklu slysi sem annars mun af hljótast.
    Svo ég ræði hér í stuttu máli þá hugmynd sem við leggjum fram um nýtt kerfi þá vil ég fyrst segja það að auðvitað leggjum við til að lífeyrissjóðakerfið, eins og það stendur, verði gert upp og teljum ýmsar leiðir þar fyrir hendi. En það kerfi sem við viljum að taki við eru þessir eigin eftirlaunasjóðir. Hugmyndin er þessi:
    1. Við upphaf ævistarfs eignast hver einstaklingur eigin eftirlaunareikning í umsjón banka, tryggingafélags eða þeirra aðila sem til þess hafa hlotið tilskilin leyfi, og fylgir eftirlaunareikningurinn viðkomandi einstaklingi út starfsævina. Í sjóðinn skal greiða iðgjald sem er 10% af öllum launatekjum hvers launþega og reiknuðum launatekjum þeirra sem sjálfstæðan atvinnurekstur stunda. Að því er varðar skiptingu hjá öðrum en þeim sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur skulu 6% greidd af atvinnurekanda en 4% af launþega. Sem sé, við leggjum til að svipað hlutfall fari af laununum og gerist í dag.
    2. Eftirlaunasjóðir verði verðtryggðir og ávaxtaðir á bankareikningum eða með verðbréfum skráðum á opinberu verðbréfaþingi.
    3. Þegar einstaklingur verður 65 -- 70 ára gamall er farið að endurgreiða eigandanum eftir ákveðnum reglum úr sjóðnum og er hann endurgreiddur að fullu á t.d. 20 ára tímabili.
    4. Allar greiðslur úr eigin eftirlaunasjóðum yrðu skattfrjálsar, enda búið að skatta þessar tekjur sem laun einu sinni.
    5. Við andlát er eftirlaunasjóðurinn eign maka eða erfðafé aðstandenda. Þarna leggjum við til að það verði viðurkennt að þessir peningar séu eign eigenda sinna og farið með þá eins og bílinn, húsið eða hverja aðra eign.
    6. Eigin eftirlaunasjóðir eru sameign meðan hjónaband eða sambúð varir en skiptast til helminga við skilnað eða búskipti.
    7. Ríkið stofnar tryggingasjóð sem tekur við tryggingarþætti lífeyrissjóðanna, örorkubótum, barna- og

makalífeyrisgreiðslum. Sjóðurinn starfi við hliðina á eða yrði felldur undir Tryggingastofnun ríkisins. Hér yrði um að ræða gegnumstreymissjóð og yrðu greiðslur til hans innheimtar í staðgreiðslunni.
    Við teljum að ekki sé síður hægt að reikna það út hvað öryrki þarf til lífsviðurværis og í rauninni eigi að gera það. Þeir sem hafa fulla heilsu eigi að greiða í sérstakan gegnumsteymissjóð og þannig komi peningar til þess fólks sem hefur af einhverjum ástæðum misst starfsgetu sína.
    Við leggjum fram útreikninga um það hvernig þessir sjóðir mundu ávaxta sig á löngu tímabili, verðtryggðir með 5% vöxtum umfram verðbólgu. Einhverjum kann kannski að þykja 5% vextir umfram verðbólgu mikið en ég vek athygli á því að á þessari stundu munu lífeyrissjóðirnir krefjast hærri vaxta en flestir aðrir og gera samninga um raunvexti á bilinu 7 -- 8%.
    Við vekjum hér athygli á því að launamenn sem hafa sparað með þessum hætti í 45 ár, annar með mánaðarlaunin 70 þús. kr. og legði þá fyrir 7 þús. kr. á mánuði ætti eftir þennan starfstíma 13,5 millj. kr. Hinn sem hefði 100 þús. kr. í mánaðarlaun á þessu sama tímabili og borgaði þá mánaðarlega 10 þús. kr. ætti 19,2 millj. kr.
    Sé miðað við mánaðarlegar endurgreiðslur á eftirlaunaaldrinum, sömu vexti og 20 ára endurgreiðslutíma mundi maður sem hefði 70 þús. kr. mánaðarlaun njóta um 87 þús. kr. á mánuði í eftirlaun en hinn 125 þús. kr. á mánuði. Þetta væru skattfrjálsar tekjur eins og ég sagði áðan.
    Það má líka vekja athygli á því að ef þetta væri greitt hægar upp, t.d. á 30 ára tímabili, mundi lægri tekjumaðurinn hafa skattfrjálst 72 þús. kr. en sá sem hafði 100 þús. kr. mundi hafa liðlega 100 þús. kr. eða þeir mundu halda á eftirlaunaaldrinum sömu launum og þeir höfðu í starfinu næstu 30 árin eftir að þeir láta af störfum.
    Menn geta spurt: Hvers vegna flytja menn svona tillögur? Ég segi að ég geri það unga fólksins vegna sem nú er að hefja sitt lífsstarf og einnig ungra manna sem munu lenda í óvissu í framtíðinni ef ekki verður tekið á þessu mikla máli. Þetta fólk greiðir til lífeyrissjóðanna í góðri trú um að það sé að kaupa sér öryggi í ellinni og tryggingu í lífinu. En getur það, ágætu alþingismenn, gerst eftir 25 -- 30 ár að þá verði lífeyrissjóðirnir tómir og gjaldþrota? Hinir færustu reiknimenn eru í engum vafa, þeir hafa sýnt fram á að þetta muni gerast ef við sofum á verðinum, eins og mér því miður sýnist að Alþingi Íslendinga ætli að gera í þessum efnum.
    Við verðum búnir að brenna timbrið úr björgunarbátnum sem unga fólkið trúir að verði til taks þegar það eldist. Allir peningar búnir í sjóðunum sem það hefur lagt fyrir á starfsævinni. Þá verður þetta sama unga fólk annaðhvort að éta það sem úti frýs eða leggja drápsklyfjar á börnin sín til að framfleyta hinni öldruðu kynslóð á þriðja og fjórða tug næstu aldar. Vilja Íslendingar almennt að þessari siglingu verði haldið áfram? Vilja alþingismenn staldra við og reyna

að móta hér nýja löggjöf og nýjar reglur þannig að fólkið sem nú er á góðum aldri geti treyst því að það sé að kaupa sér öryggi?
    Það má líka spyrja, og menn auðvitað spyrja: Hvers vegna flytja menn svona tillögu, er eitthvað að? Það liggur fyrir að yfirlit til sjóðfélaga um greiðslustöðu þeirra hafa ekki verið send um árabil í mörgum tilfellum. Erfitt hefur reynst fyrir einstaka sjóðfélaga að fá upplýsingar um réttindi sín í sjóðunum. Margir launþegar hafa vaknað upp við vondan draum, vinnuveitandinn greiddi ekki gjaldið til sjóðsins. Iðulega hringir ungt fólk í mig eftir að aðgangi að Húsnæðisstofnun var breytt og segir: Ég á engin réttindi því ég stend í fjögurra, fimm ára stríði við vinnuveitandann minn. Hann tók af mér lífeyrisgreiðslurnar en hann skilaði þeim ekki af sér.
    Það er líka ljóst að í rekstrarvanda fyrirtækjanna hafa skuldir hrannast upp við lífeyrissjóðina. Rekstrarkostnaður sjóðanna er allt of hár þó misjafn sé. Dæmi er um að þriðja hver króna sem tekin er af sjóðfélaga fari beint í reksturinn. Bókhaldsóreiða hefur kostað ýmsa sjóði og sjóðfélaga verulega fjármuni í greiðslur til endurskoðenda umfram það sem eðlilegt má teljast. Ég ætla ekki að fara að rekja þau sorglegu dæmi hér á hinu háa Alþingi. En því miður hefur það gerst víða um land á síðustu árum að slíkt ástand hefur komið upp á yfirborðið og orðið lýðum ljóst.
    Ég vil líka vekja athygli á því sem mun gerast í framtíðinni. Það er aldursskipting Íslendinga. Hún mun breytast verulega. Sú ástæða ein væri næg rök til þess að menn settust niður og íhuguðu þetta stóra mál. Í dag eru 26 þús. Íslendingar 65 ára og eldri. Árið 2020 er talið að 50 þús. Íslendingar verði 65 ára og eldri. Þá fer nú að kárna gamanið og hirslur að tæmast ef við höldum þessari siglingu áfram.
    Ég spyr: Eigum við að halda þessu óbreytta kerfi áfram og taka þá áhættu sem því fylgir, bara miðað við þessa breytingu á aldursskiptingu þjóðarinnar? Og það þarf að horfa á hitt að það er ljóst að þegar þessi aldursskipting verður skollin yfir, þá verður sama hlutfall Íslendinga á vinnumarkaði og er í dag og þeir verða þá með vinnu sinni að bera uppi þetta mikla vandamál sem skapast.
    Nú er það ljóst að lífeyrissjóðirnir segja: Það er enginn vandi að breyta þessu kerfi. Það þarf bara að hækka gjaldtökuna af laununum, ekki taka 10%. Með því að taka 18 eða 20% af laununum til lífeyrissjóðanna er hægt að koma í veg fyrir gjaldþrotið og sjóðþurrðina. Þetta er það sem maður heyrir úr ýmsum áttum og þessa leið nefna margir sem færa leið til að forða þessu slysi.
    Ég veit að hlutverk lífeyrissjóðanna, hef rakið það hér, er tvíþætt. Það er eftirlaun og örorkutrygging og við, í þessu nýja kerfi sem við leggjum hér til, bendum á hvort tveggja og leiðir til þess að mæta því. Við teljum að rekstrarkostnaður nýja kerfisins, sem við hér bendum á, yrði sáralítill þar sem bankarnir mundu varðveita þessa peninga eins og hverja aðra sparisjóðsbók. Og ég er sannfærður um að þessi leið mundi

einnig styrkja unga fólkið inni í peningastofnunum landsins. Þar ættu menn sína sjóðbók. Ég óttast ekki að innheimtan yrði slæm því að ég treysti einstaklingnum til að fylgja því eftir að þetta væri greitt. Ég hef líka nefnt hugmyndir í því sambandi að hægt væri af ríkinu, Seðlabanka, að gefa út sérstakt hefti til þeirra sem reka atvinnufyrirtæki og eiga að greiða launþegum og þar með fengju þeir þetta og yfirstrikuðu ávísun og legðu það sjálfir inn í bankann og það væri hvergi hægt að leysa það út nema í bankanum sjálfum.
    Ég vek líka athygli á því að ef menn efast um að þessi leið gangi, þá er kerfið að molna í dag því að það er talið að jafnvel 15% manna á vinnumarkaði greiði ekki í einn einasta lífeyrissjóð.
    Ég hef farið hér yfir þessar hugmyndir okkar og bent á ýmsa af helsu vanköntum núverandi kerfis. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði þessu máli vísað til hv. félmn. En ég hvet hv. alþm. til þess að skoða þessa tillögu með jákvæðu hugarfari og íhuga þann mikla vanda, sem ég hef hér bent á, sem mun skella þungt á unga fólkinu sem er að ganga út í lífið og því fólki sem fætt er eftir seinni heimsstyrjöldina á Íslandi.