Brúarframkvæmdir á Suðurlandi
Mánudaginn 12. nóvember 1990


     Unnar Þór Böðvarsson :
     Virðulegi forseti. Bættar samgöngur á Suðurlandi eru eitt stærsta hagsmunamál Sunnlendinga. Það er nú þannig ástatt að þetta hérað, sem er hvað þéttbýlast af dreifbýlishéruðum landsins, skera stórfljót í sundur og það að brúa þessi stórfljót er eitthvert mesta hagsmunamálið. Hvort þessi till. hefur verið frumhlaup eða ekki ætla ég ekki að gera að umræðuefni hérna. Ég held fyrst og fremst að þarna sé þörf umræða í gangi. Það er rétt, sem kom hér fram hjá 5. þm. Suðurl. áðan, að það hefur verið tekin ákvörðun um það af þingmönnum Suðurlands hvernig farið skyldi með Markarfljótsbrúna og held ég að það sé vel ásættanleg lending sem þar náðist. Það er einfaldlega þannig að hún verður byggð á næsta ári og tekin í samband ef stórslys verður. Það mál tel ég því fyllilega komið í höfn.
    Mig langar til að gera það að umræðuefni hversu mikið hagsmunamál það er fyrir sveitir Suðurlands að þessum málum verði sinnt. Ég tel að á Suðurlandi, þangað til viðunandi lausn hefur náðst í samgöngumálum, eigi að vera ein stórbrúarframkvæmd í gangi hverju sinni. Brú á Hvítá við Bræðratungu er ekki bara hagsmunamál þeirra byggðarlaga sem þar eru heldur er það þjóðhagslega hagkvæm fjárfesting. Þessi byggðarlög, fjórir hreppar í uppsveitum Árnessýslu, standa saman að atvinnuuppbyggingu á mjög sérstæðan hátt. Hafa stutt við bakið hvor á öðrum í því að leita sameiginlegra leiða í þeim málaflokki sem atvinnumálin eru og sem er líka að skila sér í mjög bættri stöðu í atvinnumálum á þessum svæðum. Félagslegt samstarf þessara sveitarfélaga er mjög mikið og yrði enn þá meira með bættum samgöngum. Síðast en ekki síst mundi í skólamálum verða alger bylting með brú á Hvítá við Bræðratungu. Sem dæmi þar um vil ég nefna það að þá yrðu aðeins 14 km á milli stærstu skólanna á þessu svæði. Með öðrum orðum gerði hún mögulegt að samnýta þá skóla sem þarna eru í stað þess að fara út í stórfelldar viðbótarbyggingar eða byggingu nýrra skóla. Ég bendi líka á byggðaáætlanir og alls konar ráðstafanir í byggðamálum og atvinnumálum. Það virðist einhvern veginn vera þannig að það er aldrei tekið á þessum málum fyrr en þau eru komin í hnút. Í uppsveitum Árnessýslu eru málin ekki í neinum hnút í dag. Þarna er þróttmikið fólk að berjast áfram og sem betur fer hefur hagað þannig til að því hefur tekist að verjast þeim þunga fólksflutninga sem eru á höfuðborgarsvæðið. En ég óttast það að þetta sama fólk fái ekki áheyrn þjóðarinnar fyrr en málin eru komin í það mikið öngstræti að það horfi til vandræða. Með öðrum orðum er ég að benda á hvort ekki sé betra að hraða þessum framkvæmdum sem geta stutt fólkið í því að sinna atvinnumálum, og félagslegu málahliðinni og skólamálum, á ódýrari hátt og þann hátt að það fullnægi kröfum þess fólks sem í byggðunum býr.
    Að lokum vil ég bara minna á það að Samband sunnlenskra sveitarfélaga hefur hvað eftir annað ályktað í þessa átt. Við þurfum á því að halda að

færa byggðirnar saman, við þurfum að stytta vegalengdir milli stórra sveitarfélaga jafnt sem smárra. Og ég minni á það að á Suðurlandi, þótt þar séu ekki fjallgarðar eða firðir sem skilja að héruð eða sveitir, eru þar stórfljót og þessi stórfljót verður að brúa.