Brúarframkvæmdir á Suðurlandi
Mánudaginn 12. nóvember 1990


     Skúli Alexandersson :
    Virðulegur forseti. Það var aðeins út af síðustu orðum hv. þm. Eggerts Haukdals um vegafé á undanförnum árum og ráðstöfun núv. ríkisstjórnar og niðurskurð hennar á því fé. Þá held ég að það sé rétt að það komi fram, án þess að ég sé að mótmæla því að núv. ríkisstjórn hafi ekki staðið sig nógu vel í útvegun fjár til vegamála, að enn þá verra var það nú á tímabili þeirrar ríkisstjórnar sem hv. þm. studdi, þ.e. ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar og þeirrar ríkisstjórnar sem þar var á undan, ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar, en staðan er í þessum málum núna. Það munu þó verða 1,5% af vergri þjóðarframleiðslu sem verður varið til þessara framkvæmda í ár en það fór niður í 1,16%, virðulegi þingmaður, á tímabili fyrri ríkisstjórnar eða á árinu 1986. Þannig að þó þeir skeri illilega núv. ráðherrar er það þó ekki eins illilega gert og þegar ríkisstjórn Sjálfstfl. og Framsfl. sátu hér að völdum. (Gripið fram í.) Ég bið
hv. þm., ef hann vill ekki taka þetta trúanlegt, að fletta bara upp í þeim gögnum sem liggja fyrir hjá Vegagerð ríkisins um þessa hluti. Er mjög auðvelt að sjá það.