Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
Virðulegi forseti. Svo lengi lærir sem lifir. Hugleiðingar hv. 1. þm. Reykv. gefa mér tilefni til að segja að það sem hann kallar ,,vestræna leikaðferð``, sem ég kýs nú að kalla frjálsa aðferð í efnahagsmálum, miklu einfaldara og íþróttamannslegra orðalag sem ég veit að hv. þm. styður mig í, það er hin frjálsa aðferð sem gildir. En einu skulu menn þó aldrei gleyma: að markaðurinn er tæki en ekki tilgangur. Markaðsbúskapurinn er til fyrir fólkið. Og við verðum jafnan að gæta þess að hann valdi ekki rangsleitni, gangi ekki á auðlindaforða sem þjóðirnar eiga sameiginlegan og getur spillst ef markaðsöflin ein fá að ráða. Þetta á t.d. við um hinar sameiginlegu auðlindir sjávar sem eru okkur svo dýrmætar.
Þetta vildi ég segja um leið og ég tek undir það með hv. 1. þm. Reykv. að menn geta lengi lært af því að sjá hvernig aðrir fara að þegar þeir haga sínum búskap eins og þeir telja að best verði gert og ég mun alls ekki halda því fram að við getum ekki lært af því sem þjóðir Austur - Evrópu eru nú að glíma við. Ég er reyndar sannfærður um að það geta allar þjóðir Vestur - Evrópu og Vesturheims lært nokkuð af því. Reyndar er það svo að í lok þessa mánaðar mun Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunin OECD standa fyrir stóru málþingi um þessa umbreytingu hagkerfa Mið - og Austur - Evrópu til frjálsari markaðsbúskapar þar sem einmitt verður farið yfir reynslu Vestur - Evrópuríkja, hvað af þeim megi læra í þessum efnum. Þar munu taka þátt fjölmargir efnahags - og fjármálaráðherrar, atvinnumálaráðherrar Austur - Evrópuríkja ásamt starfsbræðrum sínum úr Vesturheimi. Ég mun taka þátt í þessari ráðstefnu fyrir hönd Íslendinga og reyndar stýra umræðum um nákvæmlega það sem hér var nefnt: Hvað má læra af reynslu Vesturlanda í þessu efni? Þess vegna tek ég undir það að hugleiðingar hv. 1. þm. Reykv. eiga fyllilega rétt á sér hér og ég vona að við getum náð góðri samstöðu um að samykkja þetta frv. En ég endurtek: Markaður er ekki tilgangur heldur tæki. Hann er ekki til sjálfs sín vegna heldur fyrir fólkið.