Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu
Þriðjudaginn 13. nóvember 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Örstutt athugasemd. Frelsið er vissulega bæði tæki og takmark í sjálfu sér. En það sem ég vildi vara við er að gera það sem hv. 1. þm. Reykv. gerði hér áðan að leggja frelsið og markaðinn að jöfnu. Það er ekki rétt. Frelsið er markaðinum æðra, lýðræðið er markaðinum æðra, manneskjan er markaðinum æðri.