Vegalög
Þriðjudaginn 13. nóvember 1990


     Flm. (Guðmundur G. Þórarinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á vegalögum með síðari breytingum. Flm. með mér eru hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson, Guðni Ágústsson og Alexander Stefánsson. 1. gr. þessa frv. hljóðar svo:
    ,,40. gr. laganna, sbr. 72. gr. laga nr. 87/1989, orðist svo:
    Vegagerð ríkisins skal aðstoða nýbýlastjórn við lagningu nýbýlavega, enda sé kostnaður greiddur af sérstakri fjárveitingu í fjárlögum, samkvæmt vegáætlun eða á annan hátt.
    Vegagerð ríkisins skal sjá um gerð og viðhald reiðvega samkvæmt sérstakri reiðvegaáætlun sem samgrh. lætur gera í samráði við samtök hestamanna og sveitarfélaga til fjögurra ára í senn. Kostnaður við gerð reiðvega skal greiddur af hóffjaðragjaldi skv. 2. gr. laga um fjáröflun til vegagerðar, nr. 3/1987, og sérstökum fjárveitingum á fjárlögum, samkvæmt vegáætlun eða á annan hátt.
    2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.``
    Það frv. sem hér er um að ræða er flutt samhliða frv. um breytingu á lögum um fjáröflun til vegagerðar og þáltill. um reiðvegaáætlun.
    Hestamennska nýtur sívaxandi vinsælda. Umferð ríðandi manna er víða orðin mjög mikil, einkum í nágrenni þéttbýlisstaða. Sambýli umferðar ríðandi manna og aukinnar umferðar bifreiða getur verið örðugt. Nauðsynlegt er að taka tillit til hestamennsku í umferðinni umfram það sem gert hefur verið. Óhjákvæmilegt er því að gera sérstaka reiðvegaáætlun þar sem forgangsröð framkvæmda kemur fram. Gerð reiðvega er yfirleitt ekki dýr, en framkvæmd þarf að vera með skipulegum hætti.
    Í vegalögum er einungis fjallað um reiðvegi í 46. gr. en þar segir:
    ,,Vegagerð ríkisins skal aðstoða nýbýlastjórn við lagningu nýbýlavega og samtök hestamanna við gerð reiðvega, enda sé kostnaður greiddur af sérstakri fjárveitingu í fjárlögum, samkvæmt vegáætlun eða á annan hátt.``
    Með flutningi þessa frv. eru tekin af öll tvímæli um að Vegagerð ríkisins skuli annast gerð reiðvega, enda er hún sá aðili í þjóðfélaginu sem best er búinn til að taka að sér slíka framkvæmd. Jafnframt er með sérstöku frv. gert ráð fyrir að fjár sé aflað til gerðar reiðvega umfram fé á fjárlögum til reiðvegagerðar. Gerir það frv. ráð fyrir sérstöku ,,hóffjaðragjaldi``. Samhliða þessum frv. tveimur flytur flutningsmaður þáltill. um að samgrh. verði falið að láta gera sérstaka reiðvegaáætlun í samvinnu við samtök hestamanna og sveitarfélaga til fjögurra ára í senn. Í reiðvegaáætlun skal koma fram forgangsröð framkvæmda.
    Árlega hafa verið takmarkaðar fjárveitingar á fjárlögum ákveðnar af Alþingi í þál. um vegáætlun. Landssamband hestamanna ákveður skiptingu þessarar fjárveitingar milli hestamannafélaga og umdæmisverkfræðingar Vegagerðar ríkisins fylgjast með því að áætlaðar framkvæmdir séu inntar af hendi og greiða

féð út. Einnig eru dæmi um að Vegagerðin annist framkvæmdir fyrir hestamannafélögin. Undirritað var 7. maí 1982 samkomulag milli Landssambands hestamannafélaga og Vegagerðar ríkisins um gerð reiðvega. Samkomulag þetta er fylgiskjal með þessu frv. Ágreiningur varð fljótlega um túlkun þessa samkomulags.
    Vandkvæði hafa þannig verið ýmis við gerð reiðvega og ástæða er einnig til að leggja áherslu á hlut sveitarfélaga og þátt reiðvega í skipulagi, en sveitarfélög eru öll skipulagsskyld samkvæmt skipulagslögum frá 1978.
    Virðulegi forseti. Hér liggur fyrir frv. um breytingu á vegalögum þar sem gert er ráð fyrir að Vegagerð ríkisins sé gert skylt að annast gerð og viðhald reiðvega samkvæmt sérstakri reiðvegaáætlun.
    Ég legg til, virðulegi forseti, að frv. þessu verði vísað til hv. samgn. að lokinni umræðu.