Endurgreiðsla á gjaldi af erlendum lánum
Miðvikudaginn 14. nóvember 1990


     Flm. (Halldór Blöndal) :
    Herra forseti. Það frv. sem ég endurflyt hér er stutt og skýrt. Það fjallar um það að gjald af erlendum lánum, sem tekin voru til skipasmíða hér á landi skv. lögum nr. 10/1988, um ráðstafanir í ríkisfjármálum, sbr. lög nr. 101/1988 og lög nr. 51/1989, skuli endurgreiðast úr ríkissjóði þegar í stað.
    Ástæðan fyrir þessu er mjög einföld. Þetta gjald hefur lent á þrem skipasmíðastöðvum samkvæmt upplýsingum sem fjh.- og viðskn. barst á síðasta þingi frá Sambandi málm- og skipasmiðja. Samkvæmt þeim upplýsingum nemur umrætt lántökugjald vegna nýsmíða á téðu tímabili samtals 8 millj. 97 þús. kr. og skiptist þannig: Slippstöðin hf., Akureyri, 5 millj. 800 þús., Skipasmíðastöð Marsellíusar hf., Ísafirði, 1 millj. 737 þús., Vélsmiðja Seyðisfjarðar hf., Seyðisfirði, 560 þús. Það er nauðsynlegt að taka fram að þessar fjárhæðir eru allar skráðar á verðlagi þess tíma sem lántökugjaldið var innheimt. Ef við tökum einstakar greiðslur hjá Slippstöðinni kemur fram að þær greiðslur voru hæstar á fyrri hluta árs 1988, þannig að það eru rúmlega tvö ár síðan sú skipasmíðastöð varð að inna þær greiðslur af hendi, síðasta greiðslan féll 2. maí 1989. Ef við tökum Vélsmiðju Seyðisfjarðar þá féllu greiðslurnar frá 10. ágúst 1988 til 25. apríl 1989 og ef við tökum Skipasmíðastöð Marsellíusar féllu greiðslurnar frá 6. nóv. 1988 til 20. mars 1989.
    Þessar fjárhæðir eru auðvitað verulega hærri ef við framreiknum fjárhæðirnar og leggjum síðan eðlilega vexti, fjármagnskostnað, á þær. Ég hygg að hv. þingdeildarmönnum sé kunnugt að skipasmíðaiðnaðurinn á undir högg að sækja og af þeim sökum er fjármagnskostnaðurinn meiri en menn geta búist við, án þess að taka inn í dæmið þá erfiðleika sem því fylgja í rekstri að verða uppiskroppa með almennt lausafé, eða rekstrarfé, og verða kannski að sætta sig við erfið greiðslukjör. Ég hygg að Slippstöðin á Akureyri liggi með fé, ef allt er fullreiknað, sem sé einhvers staðar í kringum 10 millj. kr. sem er að sjálfsögðu ekki lítil fjárhæð.
    Á síðasta þingi var þetta frv. sent til umsagnar fjögurra aðila, Sambands málm- og skipasmiðja, Landssambands iðnaðarmanna, Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri og svo loks til fjmrn. Umsagnir bárust frá Sambandi málm- og skipasmiðja, Landssambandi iðnaðarmanna og Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri. Ég grennslaðist eftir því í morgun og það kom í ljós að svar fjmrn. við beiðni fjh. - og viðskn. Ed. hafði enn ekki borist. Það sýnir auðvitað, herra forseti, að virðing þingsins er mátulega --- hvað á ég að segja --- lítil þegar svo er komið að ráðuneytið sem beðið er svara um skattamál og beðið um skýringar um útfærslu á álagningu sérstaks skatts, heimildarákvæði, skuli ekki sjá ástæðu til þess að svara þingnefnd. Það lýsir betur en flest annað hvernig komið er fyrir þessari ágætu stofnun og lýsir því kannski líka hvað þingmenn verða að sætta sig við ef stjórn þingsins er ekki í nógu föstum skorðum.
    Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri svaraði stutt

og laggott og mælti með því að umrætt frv. yrði samþykkt. Síðan þetta gerðist, 6. des. á sl. ári, hefur Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri með formlegum hætti sent erindi til þingmanna kjördæmisins vegna þeirrar þungu áhyggju sem félagið hefur út af erfiðri stöðu járn- og skipasmíðaiðnaðar á Akureyri og einstakir stjórnarmenn í Félagi málmiðnaðarmanna hafa átt einkasamræður við einstaka þingmenn og spurt þá hvort einhverjar líkur séu fyrir því m.a. að þessum rangláta skatti verði létt af Slippstöðinni á Akureyri, sem fellur með fullum þunga á það fyrirtæki. Þessi skattheimta hefur m.a. verið notuð til þess að sverta stöðu og orðspor fyrirtækisins þegar rætt hefur verið um það í hvaða verði það fiskiskip stendur sem hafin var smíði á fyrir rúmum tveim árum til þess að reyna að halda uppi atvinnu á Akureyri, á þeim tíma þegar það var viðkvæmt á Íslandi að verulegt atvinnuleysi yrði viðvarandi á einstökum stöðum. En nú er svo komið hagstjórninni í landinu að það þykir ekki lengur tiltökumál þótt fyrirtækjum sé lokað, fjöldi manns atvinnulaus, lífskjör hrapi um 20% á tveim árum.
    Þriðji aðilinn sem sendi inn umsögn um frv. var Landssamband iðnaðarmanna og til þess að skýra málið, rifja það upp fyrir einstökum þingmönnum tel ég óhjákvæmilegt að lesa það upp í heild sinni, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Landssamband iðnaðarmanna og Félag dráttarbrauta og skipasmiðja hafa fengið ofangreint frv. til umsagnar og hafa ákveðið að svara því sameiginlega. Samtökin mæla eindregið með frv. og færa fyrir því eftirtaldar ástæður:
    Þegar lögin um ráðstafanir í ríkisfjármálum nr. 10/1988, þar sem er að finna ákvæði um gjald af innlendum lántökum, voru sett, höfðu þau að geyma undantekningarákvæði, þar sem kveðið var á um að lántökur vegna hráefniskaupa til útflutnings - og samkeppnisiðnaðar svo og afurðalán skyldu verða undanþegnar gjaldinu. Allan þann tíma, sem lögin voru í gildi, var mjög erfitt ef ekki alveg ókleift fyrir skipaiðnaðinn að nýta sér þessa heimild laganna. Þetta stafaði fyrst og fremst af því að lán til skipasmíða og viðgerða eru tekin til kaupa á hráefni og vinnu í einu lagi, þ.e. vegna verkefna en ekki vegna kaupa á hráefninu einu saman. Þegar svo háttaði að erlend lán væru fyrst og fremst tekin til kaupa á hráefnum, eins og tíðkast í mörgum greinum, var hins vegar tiltölulega auðvelt að nýta sér þessa undanþágureglu. Því má einnig bæta við að skilgreining auglýsingar þeirrar sem kvað á um hvaða vörur skyldu teljast hráefni í þessu sambandi var mjög þröng, þannig að mjög margar vörutegundir, vélar og tæki, sem notaðar voru í skipaiðnaðinum, lentu utan undanþágunnar. Af ofangreindum ástæðum kom lántökugjaldið verr niður á skipaiðnaðinum en ýmsum öðrum samkeppnisiðnaði, svo og öðrum atvinnugreinum, svo sem fiskvinnslu og landbúnaði.
Eðlilegt hefði verið að meðhöndla þessi verkefnabundnu lán eins og um afurðalán væri að ræða, sem eru ekki eingöngu tekin út á hráefnakaup heldur fullunnar afurðir.
    Með breytingum sem gerðar voru á gjaldinu, lög nr. 101/1988, var ákveðið að undanþiggja lántökur vegna kaupa og reksturs á kaupskipum og flugvélum.`` Ég endurtek: ,,... var ákveðið að undanþiggja lántökur vegna kaupa og reksturs á kaupskipum og flugvélum. Líklega hafa samkeppnisástæður valdið þar mestu um. Á þeim tíma mæltu undirrituð samtök með því að sjálfsagt og eðlilegt væri að fella þetta gjald niður af fiskiskipasmíði með ofangreindum rökum, svo og með vísan til þess að skipaiðnaðurinn á við mjög óvægna og ósanngjarna samkeppni, niðurgreiðslur erlendis, að stríða.
    Að undanförnu hafa verið að koma í ljós ýmsir erfiðleikar í skipaiðnaðinum hér á landi. Um ástæðurnar verður ekki fjölyrt hér. En öllum má ljóst vera að hvert og eitt atriði sem skekkir samkeppnisstöðu hans gagnvart erlendum keppinautum getur valdið úrslitum um að hve miklu leyti tekst að snúa þróuninni við. Ofangreindar röksemdir ættu að sýna fram á að umrætt lántökugjald var íþyngjandi fyrir skipaiðnaðinn. Alþingi hefur nú tækifæri til að leiðrétta það óhagræði sem af þessu gjaldi stafaði fyrir hann.``
    Undir þetta skrifa Haraldur Sumarliðason, forseti Landssambands iðnaðarmanna, og Jósef H. Þorgeirsson, formaður Félags dráttarbrauta og skipasmiðja.
    Í þessum umsögnum vekur athygli í fyrsta lagi að stjórnvöld virðast ekki víla það fyrir sér að skerða samkeppnisstöðu skipasmíðastöðva hér á landi, þegar um fiskiskip er að tefla, á sama tíma og slíkur iðnaður er greiddur verulega niður erlendis. Enda var það um svipað leyti og verið var að salta frv. mitt á síðasta þingi og síðan drepa það hér í deildinni, að hæstv. iðnrh. lýsti því yfir að eðlilegt væri að útgerðarmenn reyndu að nýta sér það hagræði sem þeir hefðu af niðurgreiðslu á fiskiskipum erlendis og verkefnum og viðhaldi á fiskiskipum erlendis.
    Í öðru lagi er eftirtektarvert að það kostaði mjög mikil áflog hér í deildinni að fá hæstv. iðnrh. og hæstv. fjmrh. til þess að endurgreiða lántökugjald vegna viðhalds og viðgerða á fiskiskipum á sl. ári. Áflogin voru svo mikil að þegar málið var tekið fyrir með formlegum hætti í Sþ., formleg fyrirspurn var lögð fyrir hæstv. fjmrh. um dagsetningar, fjárhæðir og annað í sambandi við endurgreiðslur á gjaldi af lántökum vegna viðhalds á fiskiskipum þóknaðist hæstv. fjmrh. að fara rangt með staðreyndir og úrskurður forseta Sþ. var á þá lund að Alþingi hefði engin tök á því að krefja ráðherra svara ef honum þóknaðist að halda leyndum upplýsingum jafnvel þótt um þær upplýsingar væri beðið með formlegum hætti. Sú stjórn þingsins sem við búum nú við hefur með öðrum orðum lýst því yfir fyrir hönd sinnar stofnunar að hún sættir sig við athugasemdalaust að framkvæmdarvaldið, sem vinnur í umboði Alþingis, einstakir ráðherrar, haldi upplýsingum sem beðið er um með formlegum hætti í fyrirspurnatíma í Sþ.
    Áður en þetta mál hafði verið lagt fram á síðasta þingi höfðu einstakir stjórnarþingmenn lýst því yfir, bæði í ræðustól og í einkasamtölum, að ríkisstjórnin

mundi nýta heimildir laga til þess að endurgreiða gjald af erlendum lántökum vegna nýsmíði fiskiskipa hér á landi. Af þeim sökum var óhjákvæmilegt fyrir mig að taka málið upp í fyrirspurnatíma í Sþ. Ummælum hæstv. viðskrh. og iðnrh. og ummælum fjmrh. bar ekki saman. Þá lýsti hæstv. fjmrh. því yfir að hann teldi sig ekki hafa lagaheimildir til að endurgreiða þennan rangláta skatt. Þess vegna var frv. flutt.
    Í röðum stjórnarþingmanna eru einstaklingar sem í orði kveðnu, herra forseti, hafa borið skipaiðnaðinn fyrir brjósti. Í trausti þess að því fylgdi nokkur alvara beið ég með það að málið yrði tekið út úr fjh. - og viðskn., gerði einstökum þingmönnum aðvart um að meiri hl. fjh. - og viðskn. hefði snúist gegn málinu og spurði einstaka þingmenn úr röðum stjórnarliða, sem hafa lýst því yfir að þeir beri hag skipasmíðaiðnaðarins fyrir brjósti, hvort þeir hefðu aðra skoðun á málinu en einstakir nefndarmenn í fjh.- og viðskn. Hafði maður þó talið að sumir þeir sem skrifuðu undir nál. um að fella þetta frv., sem ég er hér að tala um, þekktu til skipasmíðaiðnaðarins. Það kom fyrir ekki. Þetta frv. var fellt á síðustu dögum þingsins.
    Ef litið er til þess staðar þar sem þetta lántökugjald er hæst kemur í ljós að rétt um 500 manns hefur verið sagt upp störfum hjá þrem fyrirtækjum í þeim bæ á síðustu missirum. Það þarf því ekki frekari lýsingar á ástandinu til að gera sér grein fyrir því að atvinnulífið á Akureyri er mjög veikt. Það er að vísu svo að Slippstöðin á Akureyri er að meiri hluta til í ríkiseign, en margendurteknar yfirlýsingar einstakra ráðherra um að þeir ætli að gera eitt eða annað fyrir skipasmíðina hafa reynst haldlausar með öllu þannig að ekki er að treysta á þá sem bera eigendaábyrgð á Slippstöðinni til þess að koma inn með öðrum hætti.
    Nú gladdi það mig mjög, herra forseti, að sjá það að hæstv. forseti hefur skrifað formönnum nefnda Ed. bréf, þar sem hann brýnir fyrir þeim að miklar annir séu fram undan og fer fram á það að menn nýti tímann vel í nefndum. Það hefur verið gert í fjh.- og viðskn. Ed. Einföld stjfrv., sem hafa verið lögð fyrir nefndina, hafa verið afgreidd og ég hygg að það sé búið að afgreiða þau hér úr þessari deild meðan ég var erlendis.
    Nú hittist svo á um þetta frv. að umsagnir liggja fyrir. Það er þess vegna ekkert því til fyrirstöðu að þetta mál fái skjóta og góða afgreiðslu í fjh.- og viðskn. þannig að það geti borist nægilega snemma til Nd. til þess að það geti einnig fengið afgreiðslu þar fyrir áramót, ef vilji þingsins stendur til þess að sýna skipasmíðaiðnaðinum þá sanngirni að þessum skipasmíðastöðvum séu endurgreiddir þeir fjármunir sem ranglega hafa verið af þeim teknir.
    Ég legg til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. og fjh. - og viðskn.