Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
Virðulegi forseti. Með frv. því sem ég mæli hér fyrir er lagður grunnur að einkaleyfalöggjöf sem er ætlað að svara betur þörfum atvinnulífs og almennings en núgildandi lög um þetta efni sem eru frá árinu 1923. Það er líka tilgangur frv., sem ég mæli hér fyrir, að stefna að því að samræma okkar löggjöf einkaleyfalöggjöf sem gildir annars staðar á Norðurlöndum og í helstu iðnríkjum Evrópu.
Þetta frv. var lagt fram til kynningar í lok síðasta þings. Í framhaldi af því sendi iðnrn. þeim aðilum sem málið helst varðar frv. til umsagnar. Skriflegar umsagnir bárust frá nokkrum aðilum og lýstu þeir allir stuðningi við efnisatriði frv. Umsagnir sem hafa að geyma sérstakar athugasemdir og ábendingar eru prentaðar sem fylgiskjöl með frv. Ábendingar og athugasemdir sem fram komu snertu einkum gildistökuákvæðin.
Eins og frv. nú liggur fyrir hafa sumar þessara athugasemda verið teknar til greina að fullu. Í einu tilfelli, sem varðar gildistökuákvæði frv., eru þó skoðanir nokkuð skiptar hjá hagsmunaaðilum. Þetta snertir þá spurningu hvenær ákvæði frv. um einkaleyfi fyrir lyfjum skuli taka gildi. Í því efni hefur verið reynt að fara bil beggja og er í frv. gert ráð fyrir að fimm ár líði frá gildistöku laganna þar til hægt verður að veita hér einkaleyfi fyrir lyfjum. Eftir að frestur til að skila athugasemdum rann út og búið var að ganga frá frv. til framlagningar bárust athugasemdir frá réttarfarsnefnd um réttarfarsatriði í frv. Er það ætlun mín að þeim athugasemdum verði komið sérstaklega á framfæri við hv. iðnn. þessarar deildar.
Eins og ég hef lýst hafa margir aðilar þegar haft tækifæri til þess að kynna sér efni frv. og sú umfjöllun sem það hefur þegar fengið meðal sérfróðra manna og hagsmunaaðila í atvinnulífinu ætti að auðvelda okkur meðferð þess hér á hv. Alþingi.
Umfjöllun um endurskoðun á núgildandi einkaleyfalögum má rekja allt aftur til ársins 1981, en þá var settur starfshópur til þess að fjalla um þörfina fyrir endurbætta löggjöf á þessu sviði. Síðan hafa, að ég tel, þrjár nefndir verið skipaðar til að takast á við þetta verkefni. Sá starfshópur sem síðast vann að málinu lauk störfum í júlí 1989 og skilaði til ráðuneytisins drögum að frv. ásamt skýringum við einstakar greinar. Starfsmenn einkaleyfa - og vörumerkjadeildar iðnrn. bjuggu frv. til flutnings í þeirri mynd sem það er nú.
Ég mun, með leyfi forseta, rekja helstu nýmæli og breytingar miðað við núgildandi einkaleyfalöggjöf á einfaldan hátt og ætla að telja hér upp nokkur atriði.
Í fyrsta lagi er skýrar kveðið á um umfang og takmörk einkaleyfisverndar. Þetta er gert í 1. -- 3. gr.
Í öðru lagi er heimilað að veita einkaleyfi fyrir lyfjum og næringarefnum, eins og ég hef þegar vikið lítillega að.
Í þriðja lagi er nú betur skilgreint hvað talist getur einkaleyfishæf uppfinning með tilliti til nýlundu og frumleikastigs þess sem sótt er um einkaleyfi fyrir.
Þ.e. að hve miklu leyti uppfinning teljist frábrugðin þekktri tækni.
Í fjórða lagi eru skýrari ákvæði um frágang einkaleyfisumsókna og meðferð þeirra á öllum stigum. Þau ákvæði eru í II. kafla frv.
Í fimmta lagi er lagt til að umsóknir verði gerðar aðgengilegar almenningi í síðasta lagi 18 mánuðum eftir að þær hafa verið lagðar inn. Um þetta er fjallað í 22. gr. Í núgildandi lögum er þessi frestur sex mánuðir.
Í sjötta lagi eru í frv. mun ítarlegri ákvæði um andmæli gegn veitingu einkaleyfis og ágreiningsmál sem rísa kunna vegna réttar til einkaleyfis.
Í sjöunda lagi gerir frv. ráð fyrir að aðild Íslands að alþjóðasamningi um einkaleyfisumsóknir verði að veruleika. Í samningnum felst m.a. að sama umsókn geti tekið gildi í mörgum löndum samtímis. Um þetta er fjallað í III. kafla frv.
Í áttunda lagi verður hægt að halda einkaleyfi, skv. ákvæðum frv., í gildi í 20 ár frá umsóknardegi. Skv. núgildandi lögum hefur gildistími að hámarki verið 15 ár frá útgáfudegi. Um þetta er fjallað í 40. gr.
Í níunda lagi eru svo fyllri ákvæði um nytjaleyfi og rýmkuð eru skilyrði fyrir veitingu svonefndrar nauðungarleyfa. Ég bendi í þessu sambandi á 43. -- 50. gr. frv.
Í tíunda og síðasta lagi vil ég svo nefna að ýmsar breytingar verða á gjaldtöku fyrir umsóknir og einkaleyfi. Þar á meðal er gert ráð fyrir greiðslu árgjalda af einkaleyfisumsóknum á meðan þær eru til meðferðar. Um þetta er fjallað eða að þessu vikið í 8., 20., 25., 40. -- 42. og 51. gr. frv. Með þessari upptalningu hef ég gert grein fyrir helstu breytingum sem í frv. felast.
Eins og vænta má hefur skipan einkaleyfamála á alþjóðavettvangi tekið afar miklum breytingum frá því lögin voru sett um einkaleyfi á Íslandi árið 1923. Iðnríkin hafa yfirleitt kappkostað að breyta löggjöf sinni til samræmis við breytingar í tækniþróun. Það er þannig orðið löngu tímabært að við færum okkar löggjöf á þessu sviði til nútímahorfs. Þar kemur hvort tveggja til, annars vegar þær skuldbindingar sem Parísarsáttmálinn um vernd eignarréttinda í iðnaði leggur okkur á herðar og hins vegar hagsmunir íslensks atvinnulífs og iðnaðarins ekki síst.
Þeir sem hafa haslað sér völl hér á landi í nýjum greinum, ég nefni þar líftækni, rafeindatækni og tölvutækni, verða að eiga þess kost að geta sótt um einkaleyfisvernd á hugsanlegum nýjungum í sínu starfi. Sama máli gegnir vitanlega um þá mörgu hugvitsmenn sem hér vinna að ýmiss konar endurbótum og nýsköpun í okkar hefðbundnu atvinnugreinum. Íslendingar gerðust aðilar að Parísarsáttmálanum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar árið 1961.
Í þessu frv., eins og ég hef þegar nefnt, er gert ráð fyrir að Ísland gerist aðili að svonefndum samstarfssáttmála um einkaleyfi, ,,Patent Cooperation Treaty``, yfirleitt skammstafað PCT. En þessi sáttmáli var gerður í Washington árið 1970. Eins og ég lýsti áðan fela ákvæði III. kafla frv. í sér lagagrundvöll til þess að
hægt sé að framfylgja sáttmálanum á Íslandi. Meginmarkmið PCT - sáttmálans er að koma í veg fyrir tvíverknað við rannsóknir á einkaleyfisumsóknum sem lagðar eru inn samtímis í mörgum ríkjum. Sænska einkaleyfastofnunin mun annast rannsókn alþjóðlegra umsókna fyrir Norðurlönd og líka er gert ráð fyrir að hún taki að sér rannsókn á íslenskum alþjóðaumsóknum.
Fyrir þann sem vill sækja um einkaleyfi er einn helsti kostur við aðild okkar að sáttmálanum sá að umsókn í einu aðildarlandi getur, ef umsækjandinn óskar þess, tekið gildi samtímis í þeim löndum sem hann hefur áhuga á að fá einkaleyfisvernd. Þetta losar umsækjanda við umstang sem fylgir því að leggja inn sjálfstæða umsókn í hverju landi.
Ákvæði þessa PCT - sáttmála eru nokkuð flókin í framkvæmd. Því þarf að miða undirritun hans við það hvenær einkaleyfayfirvöld hér á landi eru undir það búin að framfylgja honum. Uppfinningum í iðnríkjum hefur fjölgað ár frá ári og einkaleyfisumsóknum að sama skapi. Einnig taka umsóknir stöðugt til flóknari fyrirbæra. Þetta þýðir að rannsókn á einkaleyfishæfi uppfinninga verður stöðugt yfirgripsmeiri og vandasamari. Stjórnvöld í hverju landi hafa reynt að bregðast við þessari þróun með því m.a. að hagnýta alþjóðastofnanir og alþjóðasamninga á þessu sviði og með því að endurskipuleggja starfsemi einkaleyfastofnananna. Þá hafa stofnanirnar lagt mikla áherslu á að auka þekkingu starfsmanna sinna, bæta gagnasöfn og hagnýta upplýsingatækni sem opnar aðgang að stórum gagnabönkum.
Með nýjum einkaleyfalögum, með aðild að samstarfssáttmálanum um einkaleyfi, má gera ráð fyrir að verkefni þeirrar deildar iðnrn. sem nú fer með einkaleyfamál aukist til muna. Iðnrn. hefur að undanförnu gert ýmislegt til þess að búa betur að þessari starfsemi. Á árinu 1989 var einkaleyfa - og vörumerkjadeild flutt úr húsnæði ráðuneytisins í Arnarhváli í sérstakt húsnæði að Lindargötu 9. Jafnframt var ráðinn lögfræðingur og verkfræðingur til skrifstofunnar. Með þessum verklegu skipulagsbreytingum og tölvuvæðingu starfseminnar undanfarin ár hefur nú verið lagður grunnur að betri og sérhæfðari þjónustu á þessu sviði en verið hefur.
Það er ekki gert ráð fyrir í þessu frv. að ríkið taki á sig þann kostnaðarauka sem af því leiðir. Gjöld fyrir vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar hafa á síðustu árum verið ákvörðuð með hliðsjón af því meginmarkmiði að þau stæðu að verulegu, eða helst að öllu leyti undir kostnaði við þjónustuna. Til marks um það að þetta hefur tekist vil ég nefna að á árinu 1989 stóðu gjöld fyrir vörumerki, einkaleyfi og aðra þjónustu að fullu undir rekstrarkostnaði við deildina og ég geri ráð fyrir að svo verði einnig á yfirstandandi ári. Sama máli gegnir um árið 1991. Rekstur einkaleyfa- og vörumerkjadeildar er nú færður upp sem sérstakt viðfangsefni á fjárlögum. Starfsemin hefur þannig í reynd verið skilin frá annarri starfsemi ráðuneytisins.
Ég hef nú ákveðið að festa þá skipan í sessi með því að setja reglugerð um sjálfstæða einkaleyfaskrifstofu sem heyri undir iðnrn. Það verður lögð áhersla á að þróa skrifstofuna, ekki eingöngu sem skráningarstofnun í þröngri merkingu heldur og ekki síður að hún geti orðið miðstöð fyrir þekkingar- og upplýsingamiðlun um tæknileg efni sem komi einstaklingum, fyrirtækjum, rannsóknar- og þróunarstofnunum að notum.
Ég tel rétt að fara hér nokkrum orðum um þá þróun sem er að gerast í heiminum í kringum okkur á sviði hugverkaréttinda og það sem á döfinni er í iðnrn. í því samhengi. Það er augljóst að með auknum samskiptum þjóða fá hugverkaréttindin aukið vægi. Gildir þar einu hvort um er að ræða höfundarrétt samkvæmt Bernarsáttmálanum eða réttindi í iðnaði samkvæmt Parísarsáttmálanum. Helstu hugverkaréttindi auk einkaleyfa tilheyra eignarréttindum á sviði iðnaðar, eru vörumerkjavernd, mynsturvernd, vernd á iðnhönnun ,,Industrial design`` á ensku máli, og smáeinkaleyfi sem einnig hafa verið kölluð nytjamynstur, sbr. danska heitið ,,brugsmønster`` og þýska orðið ,,Gebrauchsmuster``. Vernd á svokölluðum smárásum, rafeindarásum, liggur á mörkum höfundarréttar og iðnaðarréttinda.
Það vantar enn talsvert á að okkar löggjöf um vernd eignarréttinda í iðnaði sé jafnvíðtæk og í þeim löndum sem við höfum mest skipti við. Hér er eingöngu, eins og þingheimi er kunnugt, löggjöf um einkaleyfi og vörumerki. Framleiðendum og aðilum í viðskiptalífi þessara landa er mjög í mun að þeir geti fengið hér á landi hliðstæða vernd á hugverkum sínum og þeir eiga kost á í sínu heimalandi. Fyrirspurnir um þessi mál berast ráðuneytinu ýmist frá sendiráðum viðkomandi ríkja, frá erlendum fyrirtækjum eða umboðsaðilum þeirra hér á landi. Þróunin á sviði hugverkaréttinda er mjög ör í Evrópu um þessar mundir og það skiptir ákaflega miklu máli að við fylgjumst vel með því sem þar er að gerast.
Úrbætur og samræming löggjafar um hugverkaréttindi hefur komið talsvert við sögu í þeim umræðum og þeim viðræðum sem nú fara fram milli EFTA - ríkjanna og Evrópubandalagsins um myndun Evrópsks efnahagssvæðis. Sem dæmi um þetta vil ég nefna að EFTA - ríkin hafa skuldbundið sig til þess gagnvart Evrópubandalaginu að setja sérstaka löggjöf um einkaréttarvernd á smárásum, rafeindarásum. Slík vernd hefur mikla þýðingu fyrir fyrirtæki sem framleiða háþróaðan rafeindabúnað. Og þótt íslenskur rafeindaiðnaður hafi enn ekki náð því þróunarstigi að löggjöf um vernd smárása hafi teljandi þýðingu fyrir hann þá er nauðsynlegt að við stöndum við skuldbindingar okkar í þessu efni eins og önnur EFTA - ríki. Iðnrn. og menntmrn. vinna nú saman að undirbúningi lagafrv. um þetta efni. En eins og ég nefndi áðan þá er hér enn ekki um beina hagsmunagæslu að ræða fyrir íslenskan iðnað vegna þess að okkar rafeindaiðnaður flytur inn sínar smárásir. En auðvitað getur að því komið síðar að við þurfum á slíkri réttarvernd að halda vegna okkar eigin hagsmuna en við þurfum líka að bjóða erlendum hugvitsmönnum og framleiðendum réttarvernd í þessu efni.
Annars staðar á Norðurlöndum og í mörgum ríkjum Evrópu hefur lengi verið í gildi löggjöf um svokallaða mynsturvernd sem verndar útlit, form og skreytingu vörunnar. Ýmis hagsmunasamtök í iðnaði hér á landi hafa lagt að stjórnvöldum að hraða setningu slíkrar löggjafar. Frv. um þetta efni sem byggt er á norrænni löggjöf frá árinu 1961 er nú á lokastigi í iðnrn. Einkaleyfayfirvöld annars staðar á Norðurlöndum hafa nú ákveðið að gera gagngerar breytingar á sinni mynsturlöggjöf með hliðsjón af löggjöf um sama efni sem nú er verið að móta í ríkjum Evrópubandalagsins. Ég tel því ekki rétt að leggja mynsturverndarfrv., sem ég nefndi áðan, fram að sinni í þeirri mynd sem það er nú, heldur vil ég að við tökum þátt í samstarfi okkar nágrannaþjóða um mótun nýrrar löggjafar um vernd á iðnhönnun.
Smáeinkaleyfi er verndarform sem lítið hefur verið kynnt hér á landi, ég nefndi það stuttlega hér áðan. Bæði Danir og Finnar eru í þann veginn að setja löggjöf um þetta efni. Hér er um að ræða eins konar millistig milli mynsturverndar og tæknilegra einkaleyfa. Verndin er frábrugðin mynsturvernd að því leyti að hún tekur líka til tæknilegra eiginleika uppfinningarinnar, ekki eingöngu mynstureiginleika hennar eða útlits. Verndin getur átt vel við minni háttar uppfinningar sem ekki uppfylla kröfur um vernd skv. einkaleyfalögunum. Rannsókn á skráningarhæfi er takmarkaðri og um leið ódýrari en þegar um fullkomna einkaleyfisumsókn er að ræða.
Þá vil ég líka nefna að hér skortir tilfinnanlega lagareglur um réttarstöðu manna sem starfa í þjónustu annarra að uppfinningum.
Undirbúningur frv. um þetta efni er á verkefnaskrá iðnrn. en ég vil geta þess að samningur um þetta efni milli Bandalags háskólamanna og ríkisins hefur verið gerður hvað varðar starfsmenn á nokkrum stofnunum og þá nefni ég Iðntæknistofnun. Ráðuneytið mun leggja áherslu á að afla sem gleggstra upplýsinga um þau verndarform sem ég hef hér nefnt stuttlega og reynslu annarra þjóða af þeim. Þessum upplýsingum mun verða komið á framfæri við hagsmunaaðilana en Parísarsamþykktin kveður svo á að aðildarlöndin hafi lágmarksskyldur varðandi vernd hugverkaréttinda. Það er hins vegar mjög mikilvægt að samtök iðnaðarins og aðrir hagsmunaaðilar meti af raunsæi hver þeirra verndarforma, sem ég hef hér nefnt, sé skynsamlegt að innleiða hér með þeirri fyrirhöfn sem því fylgir.
Virðulegi forseti. Ég legg áherslu á að frv. þetta verði að lögum á yfirstandandi þingi. Ég legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. iðnn.