Námslán og námsstyrkir
Miðvikudaginn 14. nóvember 1990


     Flm. (Þórhildur Þorleifsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 72 frá 1982, um námslán og námsstyrki. Flm. með mér eru hv. þm. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Guðmundur G. Þórarinsson, Guðrún Helgadóttir, Rannveig Guðmundsdóttir og Jóhann A. Jónsson. Þetta er í annað skipti sem frv. er flutt því það náði ekki fram að ganga á síðasta þingi, hlaut ekki afgreiðslu.
    Megininntak þessa lagafrv. er að við 2. gr. laga um námslán og námsstyrki bætist eftirfarandi málsliður: ,,Jafnframt er heimilt að veita einstæðum foreldrum fjárhagsaðstoð til framhaldsnáms, óháð aldri þeirra og eðli námsins.``
    Í athugasemdum við frv. þetta er nánari útskýring á inntaki þessarar greinar. Þar er gert ráð fyrir að vikið sé frá núgildandi úthlutunarreglum Lánasjóðs ísl. námsmanna, bæði hvað varðar aldur lánþega og eðli námsins í því skyni að gera einstæðum foreldrum kleift að afla sér almennrar menntunar eða sérmenntunar til undirbúnings frekara námi eða starfi. Þarna er átt við nám sem er að öllu jöfnu ekki lánshæft nú. Til samræmis þyrfti að breyta 2. gr. reglugerðar um námslán og námsstyrki þannig að almennir framhaldsskólar yrðu þar á lista yfir þá skóla þar sem nám telst námshæft, þ.e. ef um einstæða foreldra væri að ræða, og eins ýmiss konar starfsþjálfunarnám og námskeið þar sem skólagjalda er krafist, ef um er að ræða einstæða foreldra. Þyrfti þá sérstaklega að setja í reglugerð ákvæði um lágmarks - og hámarksviðmiðun skólagjalda og endurgreiðsluákvæði vegna námskeiðagjalda.
    Þarna er vissulega um undanþáguheimild að ræða sem gerði einum hópi í þjóðfélaginu kleift að fá námslán við skilyrði sem öðrum hópi bæri ekki, þ.e. að einstæðir foreldrar gætu fengið námslán þar sem aðrir hópar gætu ekki fengið slík lán. Fyrir því liggja nokkuð augljósar ástæður. Þessi hópur, þ.e. einstæðir foreldrar, sker sig frá öðrum hópum þjóðfélagsins hvað nokkur atriði varðar. Það sem er mest áberandi er það að þessi hópur er upp til hópa fjárhagslega verr stæður en aðrir hópar þjóðfélagsins, þó vissulega sé ekki hægt að setja þarna alla undir sama hatt. Í skýrslu sem félagsvísindadeild Háskóla Íslands gerði fyrir félmrn. og var birt í maí 1984 komu fram margar athyglisverðar upplýsingar um kjör og aðstæður þessa hóps. Það sem helst er athyglisvert er auðvitað að fjárhagsleg staða þeirra markar félagslega stöðu þeirra að öðru leyti þannig að bæði húsnæði og annað er þessum hópi þungt í skauti. Þetta frv. hér tekur aðeins til eins þáttar, þ.e. að gera þessum hópi greiðara að afla sér menntunar.
    Nú er það svo að í þessari skýrslu kemur einmitt fram að um 78% einstæðra foreldra á aldrinum 20 -- 29 ára hafa aðeins grunnskólamenntun eða minna. Þetta er talsvert frávik frá sambærilegum aldurshópi í þjóðfélaginu, þ.e. það er miklu stærra hlutfall einstæðra foreldra á þessum aldri sem hefur ekki skólagöngu umfram skylduskólagöngu en hjá aldurshópnum í heild.

    Þegar þess er gætt að einstæðir foreldrar í landinu eru um 7500 og þar af eru 7000 einstæðar mæður og þær hafa á framfæri sínu 9700 börn er ljóst að þarna er um verulega stóran hóp að ræða sem hefur forsjá með börnum og hefur svo litla menntun sem raun ber vitni. Þá þarf ekki að sökum að spyrja að framfærslumöguleikar þessara foreldra eru lakir þar sem fólk sem ekki hefur lengri menntun en þetta telst að sjálfsögðu til ófaglærðs fólks og er þar af leiðandi í launalægstu hópum þjóðfélagsins.
    Upp á síðkastið hefur orðið vart við mjög aukinn þunga hjá félagsmálastofnunum landsins. Auðvitað er öllum þingmönnum kunnugt um að ásókn í félagslega hjálp hefur aukist, svo sums staðar nemur mörgum tugum prósenta. Af þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér hjá félagsráðgjöfum virðist ljóst að það séu einstæðar mæður sem eru ákaflega áberandi í hópi þess fólks sem sækir um aðstoð hjá félagsmálastofnunum, þ.e. þarna er í flestum tilfellum að tala um konur sem vinna fulla vinnu og reyna allt hvað þær geta til að sjá börnum sínum farborða, en hafa svo lág laun að þau nægja engan veginn og það þarf að leita eftir opinberri aðstoð.
    Þessir félagsráðgjafar segja m.a. að ákaflega algengt sé að þessar konur láti í ljósi ósk um að þær gætu aflað sér meiri menntunar til þess að verða færar um að sjá fyrir sér og börnum sínum en þá eru ýmsar hindranir í veginum. Þær vantar mjög oft menntun til þess að komast í lánshæft nám. Af sjálfu leiðir, þar sem svo stór hluti þeirra hefur aðeins grunnskólamenntun, að oft þarf að brúa margra ára nám áður en kemur að lánshæfu námi. Það gefur auga leið að jafnframt því að sjá fyrir barni og vera kannski eini umsjónar - og forsjármaður barns er efitt að samhæfa vinnu, umönnun barns og nám.
    Í þessari skýrslu sem ég hef rætt um eru tekin fjölmörg dæmi af aðallega konum, eðli málsins samkvæmt, sem láta í ljósi ósk um lengra nám eða að afla sér aukinnar menntunar og fyrst og fremst er borið við bágum fjárhagsaðstæðum að þær geta ekki uppfyllt þær óskir sínar. Að vísu verður að taka fram að þó nokkrar þeirra segja að þær hafi getað klárað nám með aðstoð foreldra. En það er nú einmitt eitt af meginmarkmiðum Lánasjóðs ísl. námsmanna að gera öllum kleift að stunda nám óháð fjárhag foreldra, þannig að afskaplega æskilegt væri að það gilti um þennan hóp líka. Þó að þarna væri um aukin útgjöld að ræða, þá má líka reikna með því að það sparaði útgjöld annars staðar, samanber það sem ég sagði um félagsmálastofnanir og félagsmálaaðstoð og eins að því færara sem fólk er til þess að afla sér tekna, þeim mun meira skilar sér aftur í ríkiskassann í formi skatta. Þetta yrði því ekki allt aðeins aukin útgjöld og svo auðvitað kemur þetta til endurgreiðslu í Lánasjóðnum eins og önnur námslán. Þó að þarna sé um undanþágu að ræða er spurning hvort hún er ekki réttlætanleg í þessum tilfellum einmitt til þess að gera þetta fólk hæfara til þess að sjá sér sjálfu og börnum sínum farborða og komast yfir þann hjalla sem oft hindrar þetta fólk í að afla sér framhaldsmenntunar.

    Í frv. er líka gert ráð fyrir því að nám á ýmiss konar námskeiðum og í styttri skólum geti verið lánshæft. Það getur verið mikils virði fyrir konur að afla sér starfsþjálfunar á slíkum námskeiðum og getur munað talsvert miklu þegar kemur að því að fá vinnu og laun fyrir þá vinnu.
    Það er líka hætt við að félagslegar aðstæður gangi í arf þannig að þessi stóri hópur barna sem er á framfæri einstæðra foreldra, sem greina sig menntunarlega frá öðrum hópum, sé að nokkru leyti dæmdur til sömu félagslegu aðstæðnanna og foreldrarnir. Því að af sjálfu leiðir að sá sem litla hefur menntun er oft ekki eins hvetjandi og þyrfti ef til vill við börn til þess að afla sér menntunar. Þar að auki getur auðvitað fjárhagur ráðið miklu um menntun. Við værum þess vegna ekki einungis að gera foreldrana hæfari til eigin framfærslu heldur værum við líka að búa í haginn fyrir börn þessara foreldra. Auk þess megum við ekki gleyma að menntun er ekki bara til þess að geta aflað sér meiri tekna í lífinu, heldur er innihald hennar og tilgangur miklu meiri og er þá oft um að ræða það sem við mundum kalla lífsfyllingu eða andlegan þroska sem þessi hópur á ekki síður rétt á en aðrir.
    Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta þar sem þetta er í annað skiptið sem ég mæli fyrir þessu frv. en ég hvet þingmenn til þess að kynna sér þessa skýrslu um kjör og aðstæður einstæðra foreldra, sem var gefin út árið 1984, því að í henni er að finna mjög merkilegar upplýsingar um þennan hóp sem ættu að ýta við okkur öllum, sem hér störfum, að reyna að leggja af mörkum til þess að bæta hag þessa stóra hóps einstæðra foreldra og barna þeirra. Samtals eru þetta hátt í 20 þúsund manns og í ekki stærra þjóðfélagi en Íslandi er það vissulega stór hópur og verðskuldar að að aðstæðum hans sé hugað og reynt að bæta þar úr.
    Að lokinni þessari umræðu, virðulegi forseti, legg ég til að málinu sé vísað til 2. umr. og hv. menntmn.