Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Borist hefur svohljóðandi bréf frá hæstv. forseta Nd.:
,,Steingrímur Hermannsson forsrh. hefur ritað mér á þessa leið:
,,Þar sem ég er að fara til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Níels Árni Lund, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Níels Árni Lund hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.