Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Eins og fram kom í minni framsögu fyrir þessari þáltill. er hún og sáttmálinn sem hér er um að ræða í fullkomnu samræmi við okkar sveitarstjórnarlöggjöf að áliti þeirra sem um hafa fjallað. Vegna tilvitnunar hv. 2. þm. Vestf. í 5. gr. sáttmálans leyfi ég mér að endurtaka að þar er áskilnaður um það að fyrst þurfi að leita álits viðkomandi sveitarfélaga ef fyrirhugaðar eru breytingar á staðarmörkum, svo sem með almennri atkvæðagreiðslu þar sem lög leyfa, eins og reyndar er áskilið í okkar sveitarstjórnarlögum.