Geir H. Haarde :
Virðulegi forseti. Það fer ekki fram hjá neinum að hinir alvarlegu atburðir á húsbréfamarkaði fyrir helgina hafa vakið verulega athygli. ,,Geggjað ástand á húsbréfamörkuðunum,`` segir til að mynda í fyrirsögn í DV á laugardaginn og Morgunblaðið skýrir frá því að afföll af húsbréfum hafi verið allt að 14,7%.
Húsbréfakerfið hefur verið óskabarn núv. félmrh. og það er óhjákvæmilegt að ráðherrann útskýri fyrir Alþingi og þar með fyrir þjóðinni hvað hér hefur verið að gerast. Ráðherrann hefur lagt mikla áherslu á að húsbréfakerfið verði allsráðandi sem almennt húsnæðislánakerfi hér á landi og það beri að loka Byggingarsjóði ríkisins og lánakerfinu frá 1986. Þeirri stefnu var reyndar hafnað af Framsfl. nú um helgina og er ekki annað en sjá en að þessi mál séu í algjöru uppnámi í ríkisstjórninni og ekki samstaða um nokkurn hlut.
Félmrh. vill að húsbréfakerfið eitt verði starfandi. En er það ekki nokkuð langt gengið, virðulegi ráðherra, í ljósi atburðanna fyrir helgi að ætlast til þess að þeir sem eru að afla sér húsnæðis og taka húsbréfalán til 25 ára skuli þurfa að sæta dagprísum á bréfum sínum og það skuli ráðast af því hvort viðskipti eiga sér stað fyrir eða eftir hádegi hver vaxtakjörin eru og hvort menn tapa jafnvel tugum þúsunda? Á tímabundið erfiðleikaástand á verðbréfamarkaði að ráða vöxtum á íbúðarhúsnæði í 25 ár þegar fólk er jafnvel að ráðstafa aleigu sinni og ævisparnaði? Er þetta hugsjón Alþfl. um fyrirgreiðslu við unga fólkið í húsnæðismálum?
Þegar húsbréfakerfinu var komið á fót var fullyrt að hinn svokallaði viðskiptavaki mundi sjá til þess að alltaf yrði unnt að selja húsbréfin. Sl. fimmtudag tilkynnti hins vegar viðskiptavakinn, verðbréfafyrirtækið Landsbréf, að búið væri að kaupa það magn af húsbréfum sem samningur gerði ráð fyrir og meira yrði ekki keypt í þessum mánuði. Lá þá fyrir að markaðurinn var orðinn yfirfullur af bréfum sem ekki seldust þrátt fyrir hækkandi ávöxtunarkröfu. Félmrh. sá þá ástæðu til að kalla til sín bankastjóra Landsbankans og knýja þá til að halda þessum viðskiptum áfram. Þegar markaðir opnuðust síðan á ný á föstudag var búið að taka upp breytileg afföll á bréfunum innan dagsins. Þetta er að mínum dómi hreinn ruddaskapur gagnvart fólki í fasteignaviðskiptum og gengur þvert á allt sem því fólki hefur verið talin trú um og ráðherra hlýtur að bera á þessu fulla pólitíska ábyrgð.
Ástæðan fyrir þessum erfiðleikum nú er auðvitað sú að það hefur verið gífurlegt offramboð á húsbréfum og það var ónógur undirbúningur fyrir þetta kerfi. Það hefur verið farið allt of geyst af stað í húsbréfakerfinu án nægilega öflugs markaðsátaks og kynningar á því hvernig best er að nýta þessi bréf á fasteignamarkaðnum. Við þessu vöruðu sjálfstæðismenn þegar kerfið var lögfest. Við vildum fara hægar í sakirnar og undirbúa málið betur.
Húsbréfin seljast ekki sem skyldi, m.a. vegna þess að þau hafa átt í harðri samkeppni við önnur bréf sem
ríkissjóður býður upp á. Viðskiptavakinn situr uppi með mikið óselt magn af bréfum einmitt þegar húsbréfakerfið er opnað fyrir nýbyggingar og búast má við miklu magni viðbótarbréfa á markaðinn. Og þrátt fyrir að vitað sé um þetta offramboð er lagt hér fram í þinginu, þennan sama dag í síðustu viku, frv. sem gerir ráð fyrir enn meira framboði á bréfum, nú fyrir þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Það virðist stefna félmrh. að bjóða fólki í greiðsluerfiðleikum að leysa sín vandamál með því að selja húsbréf með 15% afföllum. Það er mikið kostaboð eða hitt þó heldur.
En mér sýnist, virðulegi forseti, að niðurstaðan af atburðarásinni í síðustu viku sé m.a. sú að það sé ekki unnt að byggja á húsbréfakerfinu einu til frambúðar, a.m.k. ekki gagnvart því unga fólki sem er að afla sér eigin húsnæðis í fyrsta sinn. Eftir það sem nú hefur komið fram er ekki hægt að bjóða upp á húsbréfakerfið sem eina valkostinn fyrir þetta fólk. Það verður að vera fyrir hendi einhver annar kostur fyrir þá sem hvorki eiga heima í félagslega kerfinu né ráða við að leggja fram 35% eigið fé og standa jafnframt undir 7 -- 8% ávöxtunarkröfu í húsbréfakerfinu.
En aðalatriðið er auðvitað það, virðulegi forseti, að ábyrg stjórnmálaöfl taki nú höndum saman um að afstýra frekara tjóni á húsbréfamarkaðnum og mynda breiða samstöðu um að finna framtíðarlausn á þessum vanda.