Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Það er nú varla hægt að ætlast til þess að ég svari á tveimur mínútum því sem fram hefur komið hér í máli hv. fyrirspyrjanda og þeim makalausu ummælum sem hafa komið fram hjá ýmsum þingmönnum sem hafa tjáð sig um þetta mál á undanförnum dögum og æsifréttum í einstaka fjölmiðlum í kringum þetta mál.
Það er alveg ljóst og ég hef haldið því fram að aðgerðir Landsbréfa eru ámælisverðar og vanhugsaðar og samræmast ekki skyldum viðskiptavaka sem ber að hafa ávallt skráð sölu - og kaupgengi á húsbréfum. Ég tel að aðgerðir þeirra hafi einnig verið ástæðulausar. Þegar gripið var til þessara aðgerða tel ég að lífeyrissjóðirnir hafi verið að taka við sér með kaup á húsbréfum og það hafi vakað þá í málinu að Seðlabanki Íslands mundi koma inn í og greiða fyrir viðskiptum með húsbréf. Þessar klaufalegu aðgerðir Landsbréfa sköpuðu óróa og hræringar þar sem aðrir aðilar á verðbréfamörkuðum nýttu sér þessi mistök Landsbréfa og spenntu óeðlilega upp ávöxtunarkröfuna á húsbréfum. Allt bendir hins vegar til þess að ávöxtunarkrafan sé nú í toppi og muni fljótlega ganga niður. Og það er engin ástæða til að ætla annað en að húsbréfakerfið muni mjög fljótlega leita jafnvægis aftur og væntanlega mun á morgun skýrast hvernig Seðlabankinn mun greiða fyrir húsbréfaviðskiptum eins og ég hef óskað eftir.
Eins og fram kom í máli fyrirspyrjanda talar hann eins og sumir aðrir um offramboð á húsbréfum og afföll. Það mætti mjög margt um þetta segja. Það er ekki offramboð á húsbréfum vegna þess að áætlað var að sala á markaði á þessu ári yrði 4,5 -- 5 milljarðar. Hún er 2,7 -- 3 milljarðar nú. Ástæða þess er fyrst og fremst að lífeyrissjóðirnir hafa ekki keypt húsbréf sem skyldi eins og þeim er heimilað að gera þrátt fyrir það að þetta er hagstæðasti ávöxtunarkosturinn fyrir þá. Markaðskynningu og markaðssetningu Landsbréfa hefur einnig verið ábótavant.
Ég vil segja það varðandi afföllin að það er hrein rangtúlkun á þeim hvernig þetta er orðað af ýmsum. Íbúðakaupendur hafa ekki þurft að sæta afföllum þegar þeir kaupa sér íbúðir gegnum húsbréfakerfið. Íbúðaverð hefur ekki hækkað og þar af leiðandi hafa íbúðakaupendur ekki þurft að sæta afföllum. Seljendur hafa fengið sínar íbúðir nánast staðgreiddar og hver voru afföllin, hv. þm., fyrir húsbréfakerfið? Þá þurftu seljendur að sæta þeim afföllum að fá 75% af útborguninni vaxtalausa og eftirstöðvar án verðtryggingar á fjórum árum. Og ég tel að viðtöl við fólk, t.d. í Morgunblaðinu núna fyrir helgi, sem hefur gert sín íbúðakaup gegnum húsbréfakerfið, staðfesti að íbúðakaupendur hafa ekki þurft að sæta afföllum. Þegar þeir, seljendur einnig, láta húsbréfin ganga upp í næstu íbúðaskipti koma ekki til afföll. Þetta liggur hér fyrir, t.d. í viðtali við formann Félags fasteignasala. Hann segir orðrétt, með leyfi forseta: ,,Ég man ekki eftir einu einasta dæmi hjá mér þar sem menn hafa í svona áframhaldandi viðskiptum þurft að sæta afföllum.`` Það
er fyrst og fremst ef ekki er um slík viðskipti að ræða, og ég tel að það sé sumpart fasteignasölum að kenna, að hvetja ekki fólk til þess að láta húsbréfin ganga upp í næstu viðskipti, að fólk hefur þurft að sæta afföllum. Ef það leysir út sín húsbréf hefur það þurft að sæta afföllum og m.a. greiða óþarfa söluþóknun sem það þurfti ekki að gera ef það lét þetta ganga upp í næstu viðskipti. Ef þetta er látið ganga upp í næstu viðskipti eru húsbréfin á reiknuðu verði. Það er reiknað eins og húsbréf hafa hækkað með vísitölu og vöxtum. Ég tel að það sem hefur verið að ske hér á húsbréfamarkaðnum á undanförnum dögum sé ekki fyrst og fremst áhyggjuefni heldur æsifréttaskrif sumra fjölmiðla og hreinlega vankunnátta einstakra þingmanna í því hvernig húsbréfakerfið gengur fyrir sig.