Ástandið á húsbréfamarkaðnum
Mánudaginn 19. nóvember 1990


     Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Manni líður nú bara eins og jólin séu komin þegar maður heyrir þennan bjölluhljóm. En það eru hins vegar ekki jól hjá húsbyggjendum sem hafa fengið yfir sig húsbréfakerfið sem er hálfkarað kerfi. Ég minni á það kerfi sem hv. 7. þm. Reykn., hæstv. umhverfisráðherra, talaði fyrir, um húsbréfakerfi og húsbanka. Það var ljóst, og það hefur sannast núna, að án þess að fullkomlega sé gengið þannig frá þessum málum að það sé sett í eitt heildstætt kerfi sé þetta ónýtt eins og það er gert í dag með húsbréfin. Það er ekki nægilegt að taka hluta af einhverju kerfi og henda því inn á hinn almenna markað. Það er ófært og það er ófært að ganga þannig frá málunum að fjöldi manna sé ekki betur settur en áður. Ég er hins vegar ekki á móti því að dagvextir séu á húsbréfum. Ég tel auðvitað að framboð og eftirspurn eigi að ráða því að það liggur í augum uppi að við sem viljum frjálsan markaðsbúskap viljum auðvitað dagvexti eins og er víðast hvar annars staðar á slíku. Hitt er annað mál að með því að setja skattalög á sem hafa mismunað fólki stórlega hefur þessi ríkisstjórn gert húsbréfin og önnur mál er varða húsbyggjendur með þeim hætti að menn standa uppi þannig að það fer allt eftir því hvernig skattalögin taka á þeirra málum hvernig þeir standa. Hitt stendur jafnóhaggað sem ég hef haldið fram að menn standa verr í húsbréfakerfinu hvað varðar árlega greiðslubyrði en í almenna lánakerfinu eins og útreikningar sýna og ekki hefur það batnað við þetta. Það er því verulega mikil þörf á því að hér verði komið á heildstæðu húsnæðiskerfi sem taki á öllum þörfum íbúa og þeirra sem þurfa að byggja þannig að menn standi ekki frammi fyrir því að lenda í verulegum erfiðleikum eins og hefur verið á undanförnum árum. Ég held að það hljóti að vera krafa um að menn taki höndum saman og myndi eitt heildarkerfi.