Umhverfisráðherra (Júlíus Sólnes) :
Virðulegi forseti. Í tilefni af þessari utandagskrárumræðu get ég ekki látið hjá líða að minna á tillögur okkar borgaraflokksþingmanna sem við fluttum á fyrsta þingi sem við sátum haustið 1987. Þá lögðum við til uppstokkun á húsnæðiskerfinu sem gerði ráð fyrir tvenns konar kerfi, í fyrsta lagi að ríkisvaldið sæi einungis um húsnæðislán til þeirra hópa sem þurfa á hjálp að halda, þ.e. lágtekjuhópa, aldraðra, fatlaðra og hugsanlega þeirra sem eru að byggja eða kaupa sína fyrstu íbúð. Allir aðrir ættu að vera með sín húsnæðislán hjá almennum lánastofnunum sem væru fyrst og fremst í umsjón lífeyrissjóðanna sjálfra. Við lögðum þar af leiðandi fram frv. til laga um sérstakt húsnæðislánakerfi eða húsnæðisbanka sem væri í umsjón lífeyrissjóðanna og þar kom í fyrsta sinn fram á Alþingi Íslendinga sú hugmynd að fjármagna slík lán með húsbréfum. Þaðan er það hugtak og það orð komið. Því miður var farin allt önnur leið. Ég get út af fyrir sig vel sætt mig við að sú leið hafi verið farin til þess að gera tilraun með fjármögnun húsnæðislána með húsbréfum, en ég sannfærist frekar og frekar um að það kerfi og sú tillaga sem við komum fram með haustið 1987 hafi verið hin rétta. Ég tel því að það sé orðið tímabært að prófa þá aðferð líka.
Síðan langar mig aðeins til að víkja að misræmi sem virðist hafa orðið með
upptöku húsbréfakerfis á Íslandi. Það er að í staðinn fyrir að vísa húsbréfunum á kaupendurna hafa húsbréfin fallið í hlut seljendanna. Þetta hefur ekki verið gert annars staðar en á Íslandi og mér sýnist að sú reynsla sé slæm. Ég vil t.d. benda á að flestar Norðurlandaþjóðirnar sem eru með húsbréfakerfi byggja fjármögnun húsnæðislána á því að húsbréfin eru seld fyrir fram og síðan fær kaupandi íbúðar bein peningalán. Hvorki kaupandi né seljandi þurfa yfirleitt nokkurn tíma að hugsa um sjálf húsbréfin. Þau eru eins og hver önnur markaðsvara sem er seld og keypt á verðbréfamörkuðum og liggur sem undirstaða að þeim húsnæðislánum sem síðan er hægt að veita. En hvorki kaupandi né seljandi þurfa að hafa hinar minnstu áhyggjur af því að meðhöndla nokkru sinni þessi húsbréf.