Ástandið á húsbréfamarkaðnum
Mánudaginn 19. nóvember 1990


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég hygg að færa megi full rök að því sem hæstv. ráðherra sagði, að hvorki seljendur né kaupendur hafa skaðast af húsbréfaviðskiptunum eins og þau hafa verið. Hins vegar blasir það við að húsbréf eru seðlaútgáfa. Það hlýtur að vera spurning um það hvaða sparnaður á sér stað í landinu, hversu mikið hægt er að kaupa af slíkum bréfum af fjármagnsmarkaðinum í landinu. Og auðvitað liggur það í hlutarins eðli, ef um frjálsan markað er að ræða, að þessi afföll sveiflist eitthvað til.
    Ég hef verið þeirrar skoðunar að þetta kerfi gæti ekki gengið upp nema ef þeir sem ættu húsbréfin mundu í mjög ríkum mæli geyma þau í staðinn fyrir að selja þau. En ég stend hér upp fyrst og fremst til að vara við því að menn láti sér detta í hug að Seðlabanki Íslands eigi að vera skyldugur að kaupa húsbréf og fastsetja þar með gengi bréfanna. Ef það er gert er það ákvörðun um gífurlega seðlaprentun sem mundi fljótlega skapa verulega þenslu hér innan lands.