Ástandið á húsbréfamarkaðnum
Mánudaginn 19. nóvember 1990


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Nú er þessari utandagskrárumræðu lokið. Eins og forseti minnti á í upphafi umræðunnar þá má hún aðeins standa í allt að hálftíma. Hún hefur nú þegar staðið í 39 mínútur svo að forseti getur ekki leyft frekari umræður. ( AS: Ég þarf að bera af mér og fleirum sakir.) Hv. 1. þm. Vesturl. óskar eftir að bera af sér sakir og verður honum leyft að gera það.