Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson) :
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir það sem hann sagði hér í ræðu sinni, skilning hans á mikilvægi málsins og ítrekaðar óskir af hans hálfu um að málið fái vandaða og þinglega meðferð. Ég þarf ekki að ræða við hæstv. dómsmrh. um einstök atriði þessa máls. Það kom ekki fram neinn ágreiningur milli okkar um þessi efni.
Að sjálfsögðu þarf ég heldur ekki að svara neinu sem meðflm. minn, hv. 2. þm. Vesturl., sagði. Hann lagði áherslu á að þó að það væri í grg. með till. og í máli mínu bent á ýmsar leiðir sem til greina koma um skipun þessara mála, þá er það af hálfu okkar flm. ekki meint á þann veg að ekki geti aðrar leiðir komið til greina. Ég mun kannski ekki hafa í þessari umræðu lagt áherslu á þetta sjónarmið, en ég gerði það í mars sl., þegar ég mælti í upphafi fyrir þessari till., að það er auðvitað augljóst að margir leiðir geta verið færar í einstökum atriðum í svo veigamiklu máli sem hér um ræðir. Og það er einmitt með tilliti til þessa sem flm. till. leggja áherslu á svo vandaðan undirbúning að frv. um þetta efni sem gert er ráð fyrir í till. og ég gerði grein fyrir hér áðan í minni framsöguræðu.
Hv. 2. þm. Vestf. ræddi nokkuð um málið og ég vil þakka honum, eins og öðrum ræðumönnum, fyrir framlag hans. Þó kemst ég ekki hjá því að gera örlitla athugasemd við það sem hv. þm. sagði. Ég skildi hv. þm. svo að í grundvallaratriðum væri hann samþykkur tilgangi till. um að öryggismálin væru tekin til meðferðar. En hann taldi að það væri ekki ástæða til þess að gera þetta mál að einhverju forgangsmáli. Ég er honum algerlega ósammála um það og vísa í því efni til þess sem ég áður sagði um mikilvægi þess að málið fengi hér afgreiðslu og það yrði ekki dregið á langinn. Ég benti líka á umsagnir aðila sem málið varðar, sem ég gerði grein fyrir, og lögðu áherslu á að málið væri aðkallandi og þyrfti úrlausnar nú á næstunni eins og till. gerir ráð fyrir.
Hv. 2. þm. Vestf. hafði sérstakar áhyggjur af því að það kynni að vera að með framkvæmd þessarar till. yrði ríkisvaldið of öflugt og þá stæðum við frammi fyrir þeirri hættu að þeir sem færu með öryggismálin snerust gegn ríkinu sjálfu og, að manni skildist, gerðu byltingu og tækju völdin. Ég verð að segja það að það er nokkuð langt gengið hjá hv. 2. þm. Vestf. þegar hann er að gera sér upp hættu af þessu og er þetta naumast svaravert. Því að það vitum við allir, þó að hv. 2. þm. Vestf. kunni að vita það ekki, að ríkisvaldið hjá okkur er ákaflega veikt og verður ákaflega veikt þó að þessi till. verði framkvæmd, sem hér er til umræðu, miðað við ríkisvaldið í þeim löndum sem okkur standa næst og eru sambærilegust í stjórnarháttum við okkur sjálfa, þar sem þau hafa her sem við gerum ekki ráð fyrir. Og ef mesta hættan fylgir því að það sé haldið uppi einhverju ríkisvaldi þá er ég hræddur um að hér sé ekki verið að tala um neitt sem er raunhæft og raunar ekki svaravert.
Hv. þm. er úti að keyra í þessu efni og sem kom líka mjög glöggt í ljós þegar hann fann ástæðu til þess að tengja þetta mál því, eins og hann orðaði, að við Íslendingar hefðum eftir stríðið farið þess á leit að það yrðu leystir úr haldi á Norðurlöndum tilteknir eintaklingar sem þar hefðu verið taldir hafa brotið lög á stríðstímanum. Ég verð að segja að mig brestur algerlega hugarflug til þess að finna nokkurt samhengi í þessu máli og geri ekki minnstu tilraun til þess að svara slíkum hugleiðingum.
En ég endurtek það að ég er ánægður yfir því að það hefur í raun og veru engin bein andstaða komið fram við þessa till. Það gefur mér vonir um að það muni rætast, sem ég óskaði eftir í framsöguræðu minni, að málið fengi góða og örugga afgreiðslu á þessu þingi.