Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 160 og brtt. á þskj. 161 um frv. til laga um Norrænt fjármögnunarfélag á sviði umhverfisverndar. Í nál. segir m.a.:
,,Nefndin hefur fjallað um frv. Í ljós kom við yfirlestur þess að ákveðins ósamræmis gætti í texta frv. þar sem norræna fjármögnunarfélagið er stundum nefnt ,,félag`` og stundum nefnt ,,sjóður``. Nefndin leggur til að orðinu ,,sjóður`` í þremur greinum frv. verði breytt í ,,félag`` til samræmis við orðalag í samningi Norðurlandaþjóðanna um stofnun fjármögnunarfélagsins.
Nefndin mælir með samþykkt frv. með þessum breytingum sem fluttar eru tillögur um á sérstöku þskj.``
Guðrún J. Halldórsdóttir og Halldór Blöndal voru fjarverandi við afgreiðslu málsins, en undir nál. rita Guðmundur Ágústsson, Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson, Eiður Guðnason og Eyjólfur Konráð Jónsson.
Eins og fram kemur í nál. eru þær breytingar gerðar að á þremur stöðum er í staðinn fyrir ,,sjóður`` tekið upp orðið ,,félag``, enda samræmist það betur þeim félagssamþykktum sem eru um þetta félag og til að gæta samræmis í frv. Nefndin leggur til að frv. þetta, með þeim breytingum sem fluttar eru á sérstöku þskj., verði samþykkt.