Læknalög
Þriðjudaginn 20. nóvember 1990


     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég tek til máls vegna fréttar í hádegisútvarpi í dag þar sem gefið var í skyn að Alþingi hefðu orðið á mikil mistök við setningu laga nr. 53/1988 og síðan við setningu laga um breytingu á þeim sömu lögum. Ég hygg nauðsynlegt að skýra þetta í stuttu máli svo það sé fært til bókar í þingtíðindum.
    Fyrsta atriði þessa máls er það að umboðsmaður Alþingis fékk til meðferðar mál einstaklings sem krafðist að fá að sjá sjúkraskýrslur sínar og varði mál sitt með 2. mgr. 16. gr. læknalaga nr. 53/1988 og studdist við þau lög. Varðandi umboðsmann Alþingis, og það er fyrsta atriðið sem ég ætla að gera hér að umræðuefni, þá er það mjög algengur misskilningur að umboðsmaður Alþingis setji sig í spor löggjafans og bendi alþingismönnum á hverjar skoðanir þeir eigi að hafa í hinum og þessum málum. Þetta er auðvitað rangt, enda er þetta ekki verkefni umboðsmanns Alþingis. Umboðsmaður Alþingis bendir á þegar lög eru ekki nógu skýr. Hann biður þá löggjafann að skýra lögin. Í þessu ákveðna tilviki krafðist maður að fá að sjá sjúkraskýrslur sínar. Í skýrslu umboðsmanns Alþingis segir, með leyfi hæstv. forseta: ,,Umboðsmaður leit svo á, að skýra ætti 2. mgr. 16. gr. læknalaga nr. 53/1988 svo, sbr. meginreglur 1. og 5. mgr. 3. gr. laga nr. 59/1983 um heilbrigðisþjónustu, að lækni, sem ekki teldi rétt að verða við beiðni sjúklings eða forráðamanns sjúklings um afhendingu sjúkraskrár, bæri að afhenda landlækni ,,sjúkraskrá til frekari fyrirgreiðslu``. Kæmi þá í hlut landlæknis að taka ákvörðun um afhendingu. Voru það tilmæli umboðsmanns, að landlæknir og heilbr.- og trmrn. myndu sjá til þess að nefndum lagareglum yrði fylgt, að því er beiðni A [sem svo er nefndur] varðaði, en umboðsmaður var þeirrar skoðunar, að 16. gr. læknalaga nr. 53/1988 ætti við allar sjúkraskrár, hvort sem þær hefðu verið færðar fyrir eða eftir gildistöku laganna.``
    Vitnað er í læknalög frá 5. maí 1988. Í 16. gr. þeirra laga er ekkert ákvæði sem þrengir afhendingarskyldu eða eins og segir hér, með leyfi hæstv. forseta: ,,Lækni er skylt að afhenda sjúkraskrá, alla eða að hluta, sjúklingi eða forráðamanni ef það þjónar ótvíræðum hagsmunum sjúklings. Leiki vafi á nauðsyn afhendingar sjúkragagna eða þyki ástæða til vegna ákvæða laga þessara um þagnarskyldu er lækni heimilt að afhenda landlækni einum sjúkragögn sem trúnaðarmál til frekari fyrirgreiðslu. Ráðherra setur nánari reglur um afhendingu og varðveislu sjúkragagna og röntgenmynda að fengnum tillögum landlæknis og Læknafélags Íslands.``
    Þannig hljóðaði 16. gr. þessara laga. Það er því aldeilis hárrétt hjá umboðsmanni Alþingis að samkvæmt þessum lögum á sjúklingurinn tvímælalausan rétt á að fá að sjá allar sjúkraskýrslur, hvort sem þær eru nýjar eða gamlar, en lækni er heimilt að afhenda landlækni einum sjúkragögn ef einhver vafi þykir leika á um að það séu hagsmunir sjúklings að afhenda gögnin.

    Umboðsmaður bendir á að þetta séu óskýr lög og þá er gerð breyting á læknalögum á þinginu 1990 sem verða síðan að lögum nr. 50/1990. Hið upphaflega frv. ráðuneytisins er í þá veru að umrædd grein hljóði svo, með leyfi forseta, mjög svipaðs efnis og hún áður var: ,,Lækni er skylt að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit sjúkraskrár, allrar eða að hluta, og sama gildir gagnvart opinberum aðilum.`` En síðan segir í frv. hæstv. ráðherra: ,,Gildir þetta einnig um sjúkraskrár sem færðar eru fyrir gildistöku þessara laga.`` Hæstv. ráðherra gerir ráð fyrir að hvort sem er sjúklingur eða landlæknir geti fengið allar sjúkraskrár, hvort sem þær eru gamlar eða nýjar.
    Og þá kemur að hlut Alþingis. Alþingi er ósammála þessu og um þetta urðu verulegar umræður. Þingmenn töldu, man ég úr þeirri umræðu, að menn skrifuðu öðruvísi sjúkraskrár ef þeir vissu að sjúklingur ætti eftir að geta fengið þær hvenær sem er. En hæstv. ráðherra leggur til með frv. um breytingu á lögum sem voru nýsett að þetta gildi um allar sjúkraskrár. Í meðferð málsins hafa þingmenn á því aðra skoðun. Og lögin sem eru gefin út, nr. 50/1990, segja eins og áður að lækni sé skylt að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit sjúkraskrár, allrar eða að hluta. Sama gildir gagnvart opinberum aðilum sem lögum samkvæmt athuga kæru sjúklings eða umboðsmanns vegna læknismeðferðar. En síðan kemur inn nýtt ákvæði: ,,Þetta gildir þó ekki um sjúkraskrár sem færðar eru fyrir gildistöku þessara laga,`` og varðar það sjúklingana.
    Síðan kemur í 3. gr. þeirra laga: ,,Nú telur læknir að það þjóni ekki hagsmunum sjúklings að afhenda framangreindum aðilum afrit sjúkraskrár og skal læknir þá án tafar`` --- og nú er honum ekki lengur heimilt heldur skal hann án tafar --- ,,afhenda landlækni afrit sjúkraskrárinnar til frekari afgreiðslu.``
    Þarna er verið að tryggja betur stöðu landlæknis, að hann geti fengið þessar skrár þótt sjúklingur geti það ekki. Þá eru gerð mistök, og það eru einu mistökin sem gerð hafa verið í málinu og þess vegna er alrangt að væna hv. Alþingi um að hafa ekki farið að óskum umboðsmanns. Það sem þarna gleymist í hinum nýju lögum er að það er ekki tekið fram að landlæknir eigi rétt á að sjá eldri sjúkraskrár. Og því er fram komin breyting í 2. mgr. 4. gr. þess frv. sem hæstv. ráðherra nú er að flytja, og mun hún væntanlega skýra málið endanlega. Ákvæðin um að sjúklingur fái ekki sjúkraskrár sem skrifaðar eru fyrir gildistöku laganna eru óbreytt, en breytingin í 2. mgr. hljóðar svo, með leyfi forseta: ,,Lækni er skylt að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit sjúkraskrár, allrar eða að hluta, sé sjúkraskráin færð eftir 30. júní 1988.`` Og síðan segir í þessu frv. sem hæstv. ráðherra hefur rétt talað fyrir: ,,Lækni er skylt, án tillits til aldurs sjúkraskráa, að afhenda landlækni og öðrum opinberum aðilum sjúkraskrár, sé þeim með lögum falið að athuga kæru sjúklings eða umboðsmanns hans vegna læknismeðferðar.``
    Þá er það orðið alveg ljóst. Þetta er það flókið mál að ég taldi rétt að skýra það hér. Sjúklingur getur skv.

frv. fengið skrárnar sem skrifaðar eru eftir gildistöku laganna í júní 1988 en landlæknir getur og skal hafa heimild til að fá allar sjúkraskrár.
    Í fréttum í dag var þessu máli slegið upp í þá veru að hið háa Alþingi hefði hunsað vilja umboðsmanns. Hér er svo alvarlegur misskilningur á ferðinni á hlutverki umboðsmanns Alþingis að ég taldi rétt að gera þessa 4. gr. að umræðuefni. Hv. þm. mega ekki halda að umboðsmaður Alþingis sé að troða skoðunum upp á hv. alþm. Hann benti hins vegar aldeilis réttilega á að lagagreinin sem umræddur kvörtunaraðili benti á heimilaði honum að fá allar sínar sjúkraskrár. Og það var alveg hárrétt. Umboðsmaður Alþingis sneri sér því til hins háa Alþingis og taldi að nema þessu væri breytt til einhverrar þrengingar væri það tvímælalaust að maðurinn ætti rétt á þessu. Alþingi brást því alveg nákvæmlega eins við, og hæstv. ráðherra þar með, og ætlast er til. Þegar umboðsmaður Alþingis bendir á einhvern skavanka í lögum þá ber okkur að taka það til greina og bæta um betur. Það eina sem segja má að hafi misfarist í meðferð þingsins á þessum síðustu þingdögum 1990 var að taka ekki fram leyfileg aldursmörk þeirra sjúkraskráa sem landlæknir skal eiga aðgang að þótt heimild til sjúklingsins sé þrengri.
    Þetta vil ég gera alveg skýrt vegna þess að ég á von á því að síðar í dag verði bæði hæstv. ráðherra og sú sem hér stendur í útvarpsþætti um þetta mál og ég varð mjög vör við það að bæði fréttamaðurinn og ýmsir sem um þetta mál hafa fjallað telji að umboðsmaður bendi þingmönnum á ýmislegt sem heppilegt sé að lögfesta í þjóðfélaginu. Það er ekki hans hlutverk, enda veit ég ekki til að hann hafi nokkurn tíma gert það. Hans hlutverk er að benda á lög sem ekki er hægt að vinna eftir og ef einhver er rangindum beittur. Það gerði hann og ég vil leggja á það áherslu að Alþingi og hæstv. ráðherra brugðust við því nákvæmlega á þann hátt sem vera ber. Þetta vil ég biðja hv. þm. að hafa í huga ef þessi umræða heldur áfram. Nokkur blaðaskrif hafa orðið um þetta mál og sum þeirra hafa einmitt borið keim af þessum sama misskilningi að umboðsmaður Alþingis setji sig í hlutverk löggjafans og bendi á það sem betur megi fara í þjóðfélaginu. Það er ekki hans hlutverk og verður ekki, það held ég að hann sé alveg fullviss um sjálfur. Því bið ég menn nú, einnig vegna fram kominna þingmála þar sem sami misskilningur er á ferðinni, að þingmenn hafi það mjög í huga hvert hlutverk löggjafans sé og hvert sé hlutverk umboðsmanns Alþingis.
    Ég bið hv. þm. afsökunar hversu langt mál ég hef flutt um þessa 4. gr. en ég taldi alveg nauðsynlegt að þetta atriði kæmi fram. Hæstv. ráðherra hefur þegar gert grein fyrir öðrum greinum frv. og ég skal ekki lengja mál mitt með því en þetta tel ég mjög mikilvægt að komi fram.