Halldór Blöndal :
Herra forseti. Það er rétt hjá hæstv. sjútvrh. að þetta voru nokkrir molar. Ég hafði auðvitað gert mér grein fyrir því eða tel mig muna það að ábyrgðadeild fiskeldislána heyrir undir landbrn. ( Gripið fram í: Fjmrn.) Var það fjmrn.? Ég vissi að það var ekki sjútvrn. en það er ekki kjarni málsins. Kjarni málsins er að viðskiptavinir þessarar deildar sæta slíkum afarkostum að sýnt hefur verið fram á að reksturinn stendur ekki undir þeim kostnaði sem því fylgir að eiga viðskipti við ábyrgðadeild fiskeldislána. Af þeim sökum óskaði ég eftir því að Byggðastofnun vekti sérstaka athygli forsrh. á því að lagasetningin hefði algerlega mistekist, ekki náð sínum tilgangi.
Nú heyri ég það, gagnstætt því sem mér var sagt á fundi Byggðastofnunar í gær, að þetta sérstaka málefni sem stjórn Byggðastofnunar vakti athygli forsrh. á er ekki eitt af þeim verkefnum sem ráðherranefnd er ætlað að fjalla um. Mér skildist á ráðherra að niðurstaða væri í rauninni fengin. Um frekari rekstrarfjármögnun gæti varla orðið að ræða sem ég skil svo að það sé skoðun ráðherra að ástæðulaust sé að greiða fyrir því að þau fyrirtæki sem hafa kannski nýlega verið stofnuð á rústum annarra geti fengið eðlileg afurðalánaviðskipti, en eitthvað er um það, ég veit a.m.k. um eitt fyrirtæki sem stofnað hefur verið á rústum annars og ekki hefur fengið bankaviðskipti.
Má vera að það verði talið þjóðhagslega hagkvæmt að við drögum algerlega í land og reynum ekki að stuðla að frekara fiskeldi hér á landi. Ég tel þó að við höfum lagt þvílíka fjármuni í fiskeldið að varasamt sé að loka öllum slíkum stöðvum nema þá kannski ef einstakir sjóðir telja óhjákvæmilegt að halda rekstri eitthvað áfram til þess að forðast enn frekara tap. Að viðhorfið til fiskeldisins sé með öðrum orðum á neikvæðum forsendum en ekki jákvæðum. En ég vil helst ekki horfa á fiskeldið með því hugarfari. Þó svo að erfiðlega gangi á erlendum mörkuðum nú um sinn og þó svo að aðeins tvær litlar lúður lifi hjá Fiskeldi Eyjafjarðar, þá eru það þó tvær litlar lúður.
Ég vildi gjarna óska eftir því, herra forseti, að þingið hefði milligöngu um það að einstakir þingmenn geti fengið þá skýrslu í hendur sem ráðherra lýsti að gerð hefði verið af Framkvæmdasjóði, er það ekki rétt skilið? ( Sjútvrh.: Jú.) Í stjórn Framkvæmdasjóðs eru fulltrúar tveggja ráðuneyta og Seðlabankans. Ég geri þess vegna ráð fyrir því að stjórnin telji að þar sé um trúnaðarmál að ræða. Ég tel á hinn bóginn, herra forseti, að málið sé svo viðamikið og þýðingarmikið að eðlilegt sé að a.m.k. fjárhags - og viðskiptanefndarmenn fái þessa skýrslu í hendur til að meta þá alvarlegu stöðu sem hæstv. sjútvrh. talaði hér um. Það er auðvitað alveg óþolandi þegar verið er að tala um jafnþýðingarmikið mál og þetta hversu mikil hula eða leynd á að hvíla yfir einstökum málum gagnvart þinginu.
Ég get nefnt annað dæmi, herra forseti. Ég fór fram á það í sambandi við álmálið, viðræður við hina
erlendu aðila, Atlantsálshópinn, við iðnrn. að fá í hendur ákveðna skýrslu sem mér var kunnugt um að væri í höndum réttra manna og höfðu birst glefsur úr í blöðum. Ég vildi fá þá skýrslu í hendur sem alþingismaður með eðlilegum og formlegum hætti. En að sjálfsögðu var ekki hægt að verða við þeirri beiðni. Á hinn bóginn er það að verða heldur leiðinlegur vani ráðherra að hlaupa fyrir framan sjónvarpsmyndavélar út á hvað eina, enda er þessi ríkisstjórn að verða heimilisplága hjá öllum sjónvarpseigendum hér á landi, og má segja að ég eigi ekki að lasta það svo mjög því að það á m.a. ríkan þátt í því mikla fylgishruni sem stjórnarflokkarnir hafa orðið fyrir hversu oft einstakir ráðherrar birtast á sjónvarpsskerminum.