Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
Virðulegi forseti. Það frv. sem ég mæli hér fyrir er um breytingar á lögum nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og um breytingar á lögum nr. 97/1974, um eftirlit með ráðningu starfsmanna og húsnæðismálum ríkisstofnana. Þetta frv. felur í meginatriðum í sér valddreifingu er birtist í því að verið er að veita fjmrh. almenna heimild til að fela einstökum ríkisstofnunum að annast framkvæmd kjarasamninga fyrir sína hönd. Með framkvæmd kjarasamninga er í þessu samhengi átt við útreikninga á launum og launavinnslu, eða þær ráðstafanir sem gera þarf til þess að unnt sé að borga starfsmönnum laun. Úrvinnsla á bókunum í samningum með öðrum atriðum sem vísað hefur verið til nefndar til nánari umfjöllunar og túlkun kjarasamninga falla utan við framkvæmd kjarasamninga samkvæmt þeim skilningi sem hér er lagður til grundvallar.
Um sl. áramót varð starfsfólk, sem ráðið hafði verið af sveitarfélögum eða stofnunum í samrekstri ríkis og sveitarfélaga, ríkisstarfsmenn eða starfsmenn ríkisins á grundvelli laga nr. 87/1989. Átti þetta við um starfsfólk heilsugæslustofnana, framhaldsskóla og fræðsluskrifstofa sem ekki voru þegar á launaskrá hjá ríkinu. Sjúkrasamlög voru lögð niður og sjúkratryggingar færðust til Tryggingastofnunar ríkisins sem hluti af almannatryggingakerfinu.
Launavinnslan fyrir allt það starfsfólk, um 800 manns, sem skipti um vinnuveitanda þann 1. jan. 1990 á grundvelli framangreindra laga var færð til Launaskrifstofu ríkisins. Nokkrar umræður urðu um það hvort þessi þróun væri æskileg og var niðurstaðan sú að svo væri ekki. Því var ákveðið að nýta það tækifæri sem býðst nú með breytingum á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 75/1990, þegar tæplega 3000 starfsmenn skipta um vinnuveitanda um nk. áramót og færast til ríkisins, til að stíga fyrstu sporin til fráhvarfs frá miðstýringu á launavinnslunni.
Allt frá því á síðustu öld annaðist ríkisféhirðir greiðslu launa ríkisstarfsmanna. Í fyrstu var um greiðslu á föstum árslaunum að ræða þar sem annað þekktist ekki. Með auknum umsvifum ríkisins um eða eftir síðari heimsstyrjöld voru greiðslur ríkisféhirðis á launum einskorðaðar við þá starfsmenn sem samþykktir voru á fjárlögum hverju sinni. Mjög fór í vöxt að þeim starfsmönnum ríkisins fjölgaði sem ekki voru samþykktir þar og fengu þeir þá greidd laun hjá hlutaðeigandi stofnun. Með tilkomu tölvutækninnar samtímis sem launagreiðslur urðu flóknari samfara margbrotnari samningsgerð varð þróunin fljótlega sú að launagreiðslur fluttust til launadeildar fjmrn. Er nú svo komið að nær allar launagreiðslur ríkisins og ríkisstofnana fara um það kerfi.
Sú tækniþróun sem nú hefur orðið með fjarvinnslu gerir það mögulegt að launaafgreiðslum sé dreift til stofnana á nýjan leik. Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1991 eru stigin mikilvæg skref í þá átt að auka fjárhagslega ábyrgð stjórnenda stofnana og aðild þeirra að ráðstöfun fjárveitinga. Þáttur í því gæti verið að veita
stjórnendum stofnana meira svigrúm til að afgreiða laun til starfsmanna sinna. Almenn heimild til að fela einstökum ríkisstofnunum að annast framkvæmd kjarasamninga opnar leið til að halda launa- og starfsmannamálum sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva í starfstengslum við þau sem mest heima í héraði eins og verið hefur.
Í frv. er auk þess lagt til í samræmi við þá stefnu sem mörkuð var með l. nr. 128/1989, um breyt. á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, að starfsmenn sem skipta um vinnuveitanda og gerast starfsmenn ríkisins eða ríkisstarfsmenn á grundvelli laga nr. 75/1990, fái að halda sinni stéttarfélagsaðild ef þeir óska. Loks er lagt til að forstöðumönnum eða stjórnendum stofnana verði heimilað að staðfesta ráðningarsamninga starfsmanna sinna en fram að þessu hafa ráðningarsamningar verið staðfestir af hlutaðeigandi fagráðuneyti og fjmrn. Með þessari tilhögun, bæði hvað varðar framkvæmd kjarasamninga og að fela stofnunum að staðfesta ráðningarsamninga, er verið að hverfa frá miðstýringu í og auka ábyrgð ríkisstofnana. Frv. felur því að meginstofni til í sér valddreifingu, þ.e. heimild til að hverfa almennt frá miðstýringu á launavinnslu og auka á þann hátt ábyrgð stofnana.
Hér er verið að stíga fyrstu skrefin í átt til þeirrar valddreifingar sem rætt hefur verið um hér á Alþingi um nokkurt skeið og m.a. hefur komið fram, bæði í grg. fjárlagafrv. og einnig í skýrslum Ríkisendurskoðunar, um æskilega þróun ríkisfjármála. Þess vegna þótti ástæða til að fela fjmrn. ákveðið eftirlitshlutverk með framkvæmdinni og heimild til afturköllunar ef ekki yrði farið að settum reglum. Þessi mál eiga efalaust eftir að þróast í framtíðinni en hyggilegast er að stíga fyrstu sporin af varfærni. Fjmrn. fer áfram með gerð kjarasamninga við þau stéttarfélög sem hér eiga hlut að máli. Því má öllum vera ljós nauðsyn þess að ráðuneytið geti fylgst með og haft áhrif á hvernig samningar eru framkvæmdir og túlkaðir.
Virðulegi forseti. Ég legg svo til að að lokinni 1. umr. verði frv. vísað til hv. fjh. - og viðskn. og 2. umr.