Fyrirspyrjandi (Jóhann Einvarðsson) :
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að bera svohljóðandi fsp. fram til hæstv. umhvrh.:
,,Hefur Sorpeyðingarfélagi höfuðborgarsvæðisins verið veitt starfsleyfi til fyrirhugaðrar starfsemi í Álfsnesi?``
Það er öllum ljóst sem fylgst hafa nokkuð vel með hér á landi að sorpeyðingarmál hafa verið í ólestri hjá okkur Íslendingum í langan tíma. Það er því verulega jákvætt þegar átta sveitarfélög ná samkomulagi um að gera þar bragarbót á. En það þarf hins vegar að vera ljóst líka að nauðsynleg starfsleyfi séu fyrir hendi. Þess vegna er fsp. lögð fram. Mér er kunnugt um það að bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur beint áskorun til félagsins að leita að öðrum urðunarstað þar sem íbúar í Mosfellsbæ hafa áhyggjur af því að það geti verið bæði sjónmengun og lyktarmengun og önnur óþægindi af þessari starfsemi þarna. Ekki skal ég leggja dóm á hvort það er tilfellið en samkvæmt lögum skal liggja fyrir starfsleyfi frá réttum yfirvöldum áður en starfsemin hefst. Framkvæmdir eru vel á veg komnar, bæði með pökkunarstöðina og þegar hafnar við urðunarstaðinn. Í ljósi þess er fsp. lögð fram.